FME varar almenning við Bitcoin

Fjár­mála­eft­ir­litið varar almenn­ing við þeirri miklu áhættu sem fylgir við­skiptum með sýnd­arfé.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sent frá sér aðvörun til almenn­ings um sýnd­arfé og þeirri miklu áhættu sem fylgir við­skiptum með slíkt fé. Í til­kynn­ing­unni segir að verð á sýnd­arfé, eins og Bitcoin, hafi sveifl­ast gríð­ar­lega und­an­farið ár og hafi miklar lækk­anir fylgt í kjöl­farið á miklum hækk­unum.

Bitcoin fylgi lög­málum spá­kaup­mennsku og sé mjög áhættu­samt. Þeir sem kaupi sýnd­arfé eigi á hættu að tapa stórum hluta fjár­fest­ingar sinnar.

Fjár­mála­eft­ir­litið segir að meðal áhættu­þátta sem fylgi sýnd­arfé séu þeir að engin neyt­enda­vernd sé í gildi þar sem engar reglur gildi á mark­aði með sýnd­arfé. Þannig sé féð ekki við­ur­kenndur lög­eyrir eða gjald­mið­ill sam­kvæmt íslenskum lögum. Þá fellur slíkur gjald­mið­ill hvorki undir ákvæði laga um greiðslu­þjón­ustu né ákvæði laga um útgáfu og með­ferð raf­eyris. Þó að þetta sé meðal þess sem gerir mark­að­inn með sýnd­arfé spenn­andi hefur það jafn­framt í för með sér að neyt­endur njóta ekki þeirrar verndar sem fjár­mála­mark­aður og fram­an­greind lög veita.

Þá sýni mark­aður með sýnd­arfé skýr merki um bólu­myndun þar sem verð er mjög sveiflu­kennt og ekki tengt und­ir­liggj­andi eignum. Markaðir með sýnd­arfé þurfi ekki starfs­leyfi, falla ekki undir lög um verð­bréfa­við­skipti og lúti ekki eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Verð­gagn­sæi hafi verið ábóta­vant á þessum mörk­uðum og sumir þeirra hafi lenti í rekstr­ar­vanda, sem tild dæmis hafi leitt til stöðv­unar við­skipta. Að auki sé sýnd­arfé ekki stutt af und­ir­liggj­andi eignum né af Seðla­bönkum og hafi þannig engan bak­hjarl.

Fjár­mála­eft­ir­litið varar neyt­endur við að fjár­festa í sýnd­arfé og hætta þannig fjár­munum sem þeir mega ekki við því að tapa nema að mjög vel athug­uðu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár