Rauður dagur í kauphöllinni - Er dýfa framundan?

Grein­andi hjá Goldman Sachs bank­anum segir að með­al­tals leið­rétt­ingin á mark­aði, sem er með bólgin eigna­verð, sé um 13 pró­sent á fjórum mán­uðum.

Fimmtán af sautján félögum á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands lækk­uðu í dag, og voru því rauðar tölur lækk­unar ein­kenn­andi fyrir mark­að­inn. Mesta lækk­unin var á bréfum Haga, 3,27pró­sent, en Marel sýndi hækkun upp á rúm­lega eitt pró­sent.

Mark­aðsvirði Haga hefur hækkað nokkuð að und­an­förnu, mark­aðsvirðið er nú um 40 millj­arðar króna og hefur hækk­unin numið um 15 pró­sentum það sem af er ári, sem er langt umfram þróun mála á mark­aðnum almennt. Á þessu ári hefur hækk­unin num ríf­lega 7 pró­sentum, en sé horft yfir eitt ár er lækkun rúm­lega 6 pró­sent.

Á meðan út í heimi...

Að und­an­förnu hafa grein­endur á alþjóða­mörk­uðum velt því upp, hvort tölu­verð dýfa sér framundan á alþjóð­legum hluta­bréfa­mörk­uðum, ekki síst í Banda­ríkj­unum. Ef slíkt myndi ger­ast, þá er lík­legt að smitá­hrif kæmu fram á öðrum mörk­uðum, enda banda­ríski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn sá lang­sam­lega stærsti í heimi.

Peter Opp­en­heimer, yfir­maður hjá Goldman Sachs bank­anum, segir í við­tali við CNBC að miklar líkur séu á því, að á kom­andi mán­uðum verði ein­hvers konar „leið­rétt­ing“ á hluta­bréf­mörk­uðum, þar sem dýfa kæmi þá fram í mark­aðsvirði.

Samkvæmt mæl­ingum bank­ans, þá sé með­al­tal leið­rétt­ingar á mark­aði sem sé með „bólgið“ eigna­virði um 13 pró­sent lækkun yfir fjög­urra mán­aða tíma­bil. Ef af slíkur yrði, myndi það telj­ast til mik­illa ham­fara á mark­aði, en þó hefur hækkun á hluta­bréfum und­an­farin miss­eri verið slík, að margir hafa búist við því lengi að eitt­hvað myndi láta undan.

Opp­en­heimer segir að þrátt fyrir að hag­töl­urnar í Banda­ríkj­unum þessi miss­erin, líti vel út, þá sé það reynslan af mark­aði að oft séu kauptæki­færin betri þegar töl­urnar líti illa út og eigna­verð sé lægra. Því ættu fjár­festar að fara var­lega og fylgj­ast með því hvernig málin þró­ist á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagslíf

Leiðari

Magnús Halldórsson

Ánægju­leg tíma­mót - Óhag­ræðið er ekk­ert grín

Skráning Arion banka á markað hefur heppn­ast vel og er mik­il­væg fyrir íslenskt efna­hags­líf. Eitt af því sem er mik­il­væg­ast við skrán­ing­una, er að í aðdrag­anda hennar fór fram hrein­skiptin umræða um stöðu íslenska banka­kerf­is­ins eftir end­ur­reisn­ina á grund­velli neyð­ar­lag­anna og fjár­magns­hafta fyrir tæpum ára­tug. Þegar hugsað er til baka, þá var þetta eðli­leg - en vissu­lega nokkuð hörð -...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár