Evrópusambandið ræðst gegn plastmengun

Vilja að allar plast­um­búðir verði gerðar úr end­ur­vinn­an­legu efni fyrir árið 2030.

Evr­ópu­sam­bandið hefur ein­sett sér að allar plast­um­búðir verði gerðar úr end­ur­vinn­an­legu efni fyrir árið 2030. Þannig verður dregið veru­lega úr notkun einnota plasts og skorður settar við notkun örplasts.

Áætlun ESB til að bregð­ast við plast­mengun er ætlað að vernda nátt­úr­una, verja íbú­ana og styrkja fyr­ir­tækin sam­kvæmt til­kynn­ingu frá sendi­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi.

„Ef við umbreytum ekki plast­notkun okkar og fram­leiðslu, verður meira af plasti en fiski í sjónum okkar árið 2050. Við verðum að koma í veg fyrir að plast kom­ist í vatnið okkar, mat­inn og jafn­vel í lík­ama okkar. Eina lang­tíma­lausnin er að draga úr plast­úr­gangi með því að end­ur­vinna meira og end­ur­nýta. Þetta er áskorun sem borg­ar­arnir, iðn­fyr­ir­tæki og stjórn­völd þurfa að tækla í sam­ein­ingu,“ er haft eftir Frans Timmermans, fyrsta vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, í til­kynn­ing­unni.

Minna en þriðj­ungur af því plasti sem Evr­ópu­búar fram­leiða ratar í end­ur­vinnslu. Plast­rusl er 85% af draslinu sem finnst á strand­svæðum víða um ver­öld. Plast­efni er jafn­vel farið að koma sér fyrir í lungum fólks og á mat­ar­borð­inu. Það er örplast í lofti, vatni og fæð­unni og áhrif þess á heilsu okkar eru óþekkt. Evr­ópu­sam­bandið hyggst takast á við þessi úrlausn­ar­efni af fullri festu.

Evr­ópu­sam­andið ætlar að setja 100 millj­ónir evra eða 12,6 millj­arða íslenskra króna í að þróa gáfu­legri og end­ur­vinn­an­legri plast­efni. Þá mun sam­bandið leið­beina atvinnu­líf­inu og stjórn­völdum til að menga eins lítið og mögu­legt er. Stefnt er að því að atvinnu­líf muni hagn­ast á því að verða umhverf­is­vænna þar sem bæði séu tæki­færi í nýsköpun á þessu sviði auk þess sem kostn­aður við end­ur­vinnslu sé nú hár.

Löggjöf ESB hefur þegar dregið úr plast­poka­notkun í nokkrum ESB löndum. Nú er sjónum beint að öðrum einnota plast­efnum, til að mynda þeim sem eru notuð í veið­ar­færi, á grund­velli rann­sókna og sam­ráðs við hags­mun­að­ila. Skorður verða settar við notkun örplasts og merk­ingar bættar.

Plast­á­ætlun ESB verður að sögn sendi­nefnd­ar­innar áþreif­an­legt fram­lag til að ná 2030 Heims­mark­mið­unum um sjálf­bæra þróun og til að upp­fylla Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Hún er hluti af yfir­grips­mik­illi stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins um að koma á nútíma­legu hringrás­ar­hag­kerfi í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár