Þúsund einstaklingar eiga nær allt eigið fé einstaklinga í fyrirtækjum

Til­tölu­lega fáir ein­stak­lingar eiga það eigið fé fyr­ir­tækja sem til­heyrir ein­stak­lingum.

Til­tölu­lega fáir eiga nær allt eigið fé ein­stak­linga í ís­lensk­um fyr­ir­tækj­um, sam­kvæmt sam­an­tekt Cred­it­in­fo fyr­ir Við­skipta­Mogg­ann, sem fjallað er um í blaði dags­ins.

[links]Um þús­und manns eiga ríf­lega 98 pró­sent alls eig­in fjár sem er í eigu ein­stak­linga. Hlut­ur­inn sem til­heyrir ein­stak­lingum, sam­kvæmt sam­an­tekt Creditinfo, nemur um 1.200 millj­örðum króna.

„Enn­frem­ur sést þegar rýnt er í töl­urn­ar að tíu eigna­mestu ein­stak­ling­ar lands­ins eiga tæp­lega þriðj­ung alls eig­in fjár í ís­lensk­um fé­lög­um, sem er í hönd­um ein­stak­linga,“ segir í umfjöllun Við­skipta­Mogg­ans.

[adspot]Það þýðir að þeir tíu rík­ustu eiga um 400 millj­arða, sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem vitnað er til.

Misskipting auðs hefur aukist

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um skipt­ingu gæða í íslensku sam­fé­lagi á und­an­förnum árum. Í októ­ber greindi hann frá því að þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – áttu 2.062 millj­arða króna í hreinni eign í lok árs 2016. Alls átti þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu á þeim tíma. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á árinu 2016. Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á árinu 2016 fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.

Þegar eigið fé 20 pró­sent efna­mestu fjöl­skyldna þjóð­ar­innar var skoðað kom í ljós að sá hópur átti 85 pró­sent af öllu eigið fé í land­inu. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem átti minnst var sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé upp á 175,3 millj­arða króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár