Uppfæra launaviðmið skaðabótalaga

Dóms­mála­ráð­herra óskar eftir umsögnum um frum­varp um breyt­ingu á skaða­bóta­lögum. Breyt­ingar nauð­syn­legar þar sem núver­andi mynd lag­anna í sér að bætur fyrir lík­ams­tjón eru ekki lengur í sam­ræmi við það sem lagt var upp með.

Dóms­mála­ráð­herra hefur óskað eftir umsögnum um drög að frum­varpi til breyt­ingu á skaða­bóta­lögnum. Á grund­velli þeirra laga eru fjár­hæðir bóta fyrir lík­ams­tjón ákveðnar, og skipta því ákvæði lag­anna miklu máli fyrir fjöl­marga ein­stak­linga sem verða fyrir lík­ams­tjóni á hverju ári.

Skaða­bóta­lögin hafa að meg­in­at­riðum staðið óbreytt í tæp 20 ár en helstu breyt­ingar eru á ákvæðum um lág­marks- og hámarks­tekjur sem miðað er við til að ákveða bóta­fjár­hæðir, vísi­tölu­teng­ingar fjár­hæða og frá­drátt vegna líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna, auk breyt­inga á svoköll­uðum mar­feld­is­stuðli sem not­aður er til að upp­reikna áætl­aðar tekjur þess sem verður fyrir tjóni.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir meðal ann­ars að ljóst sé að frá því lögin voru upp­haf­lega sett hafi orðið ýmsar breyt­ingar á for­sendum til­tek­inna ákvæða. Umtals­verð skerð­ing hafi orðið á lág­marks­launum sem lögin mæla fyrir um í sam­an­burði við laun á vinnu­mark­aði, auk þess sem hámarks­laun lag­anna hafa farið lækk­andi í sam­an­burði við launa­þróun.

Markmið lag­anna er að bregð­ast við þeirri þróun og laga ákvæði lag­anna að núver­andi aðstæðum. Slíkt sé nauð­syn­legt enda feli núver­andi mynd lag­anna í sér að bætur fyrir lík­ams­tjón eru ekki lengur í sam­ræmi við það sem lagt var upp með. Til dæmis var fjár­hæð lág­marks­árs­launa lag­anna ákveðin sem 85 pró­sent af þáver­andi með­al­launum land­verka­fólks en nemur í dag ekki nema rúmum helm­ingi af með­al­launum verka­fólks. Þá hafa sífellt fleiri tjón­þolar þurft að sæta hámarks­árs­launum lag­anna, með til­heyr­andi skerð­ingu bóta, vegna meiri hækk­unar launa á vinnu­mark­aði en hámark lag­anna.

Frum­varpið vann Eiríkur Jónsson pró­fessor en að verk­inu kom jafn­framt ráð­gjafa­hópur skip­aður full­trúum frá Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja, Lög­manna­fé­lagi Íslands, Sjálf­björgu, Öryrkja­banda­lag­inu og Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Frestur til að skila athuga­semdum við frum­varpið er til 26. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár