Ákvörðun um að hætta gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum hefur ekki verið tekin

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að tvö­földun Hval­fjarð­ar­gang­anna sé óum­flýj­an­leg vegna auk­innar umferðar um göngin. Hann úti­lokar ekki að verk­efnið verði fjár­magnað með gjald­töku í göngin.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra segir að tvö­földun Hval­fjarð­ar­gang­anna sé óum­flýj­an­leg vegna auk­innar umferðar um göngin. Enn sé óljóst hvernig staðið verður að því en Spölur, sem rekur göngin í dag, hefur sýnt verk­efn­inu áhuga. Sigurður Ingi úti­lokar ekki að verk­efnið verði fjár­magnað með gjald­töku í göngin. Ákvörðun um að hætta gjald­töku í Hval­fjarð­ar­göng end­an­lega hefur því ekki verið tekin.

Eins og kveður á um í samn­ingi Hval­fjarð­ar­gang­anna er stefnt að því að ríkið eign­ist göngin og yfir­taki rekstur þeirra þann 11. júlí næst­kom­andi. Stefnt var að því að gjald­töku í göngin yrði hætt eftir eig­enda­skiptin. Kjarninn hefur greint frá því að Spölur hafi verið með áform um tvö­földun gang­anna. Sú ákvörðun verður því í höndum rík­is­ins.

Sigurður Ingi segir að umræðan um hvernig staðið verði að tvö­földun Hval­fjarð­ar­gang­anna hafi verið til skoð­unar í ráðu­neyt­inu í nokkurn tíma en mikið liggur á að taka ákvörðun áður en göngin verða færð til rík­is­ins þann 11. júlí og gjald­töku verður hætt.

Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi sam­göngu­ráð­herra, hefur sagt að það stæði ekki til að ríkið myndi inn­heimta veggjöld í Hval­fjarð­ar­göng­unum þrátt fyrir að heim­ild til þess sé til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár