Ný Hvalfjarðargöng á teikniborðinu

Und­ir­bún­ingur fyrir gerð nýrra Hval­fjarð­ar­ganga er haf­inn.

Und­ir­bún­ing­ur að gerð nýrra Hval­fjarð­ar­ganga er haf­inn hjá Vega­gerð­inni. Göng­in verða sam­hliða nú­ver­andi göng­um og verða þau sam­tengd, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag.

Í við­tali við Morg­un­blaðið segir G. Pét­urs Matth­ías­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerðar­inn­ar, að búið sé að semja við verk­fræði­stof­una Mann­vit um út­tekt og und­ir­bún­ing vegna gang­anna og verður út­tekt­in unn­in á þessu ári.

Fram kom hjá Gísla Gísla­syni, stjórn­ar­for­manni Spal­ar ehf., á aðal­fundi fé­lags­ins í gær að bygg­ing­ar­kostn­aður nýrra ganga ásamt teng­ingu við eldri göng væri áætl­aður rúm­lega 13,5 millj­arðar króna með virð­is­auka­skatti á nú­ver­andi verð­lagi, að því er segir í Morg­un­blað­inu. Verktími er áætl­aður 3-4 ár frá ákvörðun­ar­töku til þess tíma að bæði göng­in verða kom­in í notk­un.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár