Segir hækkun á húsaleigu námsmanna verulegt högg fyrir stúdenta

Bygg­inga­fé­lag náms­manna hefur boðað 7,5 pró­senta hækkun á húsa­leigu stúd­enta í apríl. Formaður SHÍ segir að hækk­unin sé ekki í neinu sam­ræmi við náms­lán.

Leiga á stúd­enta­í­búðum á vegum Bygg­inga­fé­lags Náms­manna mun hækka um 7,5 pró­sent eftir 1. apríl næst­kom­andi. Þessi hækkun þýðir að ein­stak­lings­í­búð, sem áður kost­aði um 101.000 krónur muni hækka í 110 þús­und. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn félags­ins.

Húsaleiga allt að 62 prósent af heildartekjum

Ragna Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, segir að þessi hækkun sé mikið högg fyrir stúd­enta og sé í engu sam­ræmi við hækkun náms­lána sem var síð­ast um 2 pró­sent á milli ára. Ein­hleypur náms­maður með full náms­lán fær 177.000 krónur og því verður húsa­leiga 62 pró­sent af heild­ar­tekjum náms­manna, að und­an­töldum húsa­leigu­bótum sem eru um 32.000 krónur á mán­uði. Ragna bendir á að sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði telj­ist öll greiðslu­byrði húsa­leiga yfir 40 pró­sent af heild­ar­tekjum vera „veru­lega íþyngj­andi“.

Frítekjumarkið stendur í stað

Frí­tekju­markið hjá LÍN hefur staðið í stað, þrátt fyrir almennar hækk­anir í sam­fé­lag­inu. Ragna segir það vera tölu­vert lægra en það sem gengur og ger­ist á Norð­ur­lönd­unum. Hún segir að fólk sé að lenda í því að vinna meira til að borga leig­una sína en á móti skerð­ast þá náms­lánin.

Bygg­inga­fé­lag Náms­manna segir ástæðu hækk­un­ina vera mikil hækkun opin­berra gjalda á síð­ustu árum vegna ört hækk­andi fast­eigna­verðs auk hækk­unar á launa­kostn­aði. Félagið hafi mætt þeirri áskorun með fækkun stöðu­gilda. Stúd­enta­ráð hefur átt sam­tal við borg­ar­yf­ir­völd um leiðir til þess að stöðva þessa miklu hækkun á fast­eigna­gjöldum og öðrum opin­verum gjöldum þegar að kemur að íbúðum sem ekki eru reknar í hagn­að­ar­skyni.

Engar breyt­ingar verða gerðar á núver­andi samn­ingum heldur ein­ungis þeim sem verða end­ur­nýj­aðir eftir 1. Apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár