Mest lesnu aðsendu greinar ársins 2017

Hvað á tann­lækna­þjón­usta hæl­is­leit­enda, ömur­legt heim­il­is­of­beldi og kerfi sem bregst þolendum, #metoo og hús­næð­is­kerfi sem er ekki rekið með hagn­að­ar­sjón­ar­miði sam­eig­in­legt? Þau eru við­fangs­efni þeirra aðsendu greina sem mest voru lesnar á Kjarn­anum í ár.

5. Um meint lúxuslíf hælisleitenda

„Tann­lækna­þjón­usta sem hæl­is­leit­endur á Íslandi fá felst í tveimur val­kost­um. Ann­að­hvort taka verkja­lyf við tann­pínu eða láta draga úr sér tenn­urn­ar. Í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum er gert við tennur í börnum þjá­ist þau af tann­pínu.

Leigu­bíla­þjón­usta hefur ekki staðið hæl­is­leit­endum til boða nema í neyð­ar­til­vikum þar sem um alvar­leg veik­indi hefur verið að ræða, en ekki svo alvar­leg að sjúkra­bíl þyrfti til. Hluti hæl­is­leit­enda hefur fengið strætókort. Eftir að ný reglu­gerð um útlend­inga tók gildi er óljóst hvernig það verður fram­veg­is.“

Bryn­hildur Bolla­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Rauða krossin á Íslandi, skrif­aði grein og kall­aði eftir vand­að­ari umræðu um flótta­fólk og hæl­is­leit­endur á Íslandi.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

4. Harmleikur

„Fyrir framan mig stóð unga, fal­lega, góða dóttir mín - nið­ur­brotin mann­eskja á lík­ama og sál. Sítt hárið hékk í tætlum niður eftir bak­inu eftir að hann dró hana fram og til bak­a á hár­inu. Hár­svörð­ur­inn var þak­inn kúl­um. Hún var rispuð og marin í and­liti. Háls­inn var þak­inn mar­blettum beggja vegna eftir kyrk­ingstak fingra. Eyrun bólg­in, hvellrauð og brjóskið marið eftir að hann hélt í eyrun til að lemja höfð­inu niður í stól­inn og stein­gólf­ið. Það blæddi úr eyrna­hlust­inni öðru meg­in. Skafsár voru á herða­blöðum og mjó­baki eftir að hann dró hana á bak­inu eftir stein­gólf­in­u. F­ingraför/mar­blettir voru á báðum fram­hand­leggj­um. Rispuð og marin á mjöðm og fót­um, helaum yfir brjóst­bein­i.“

Guðrún Sverr­is­dóttir skrif­aði grein um ofbeldi sem dóttir hennar varð fyrir. Máli hennar var vísað frá vegna form­galla frá hendi ákæru­valds­ins.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

3. Kerfið sem átti að vernda og verja systur okkar sem þolanda heimilisofbeldis brást

„Þegar systur minni tókst með hetju­skap og þraut­seigju að enda ofbeld­is­sam­bandið hafði hún upp­lifað í langan tíma að hún skipti engu máli og hún á allan hátt háð ákvörð­un­um X. Loks­ins þegar hún komst út úr þessu og í fang þeirra aðila sem áttu að vernda hana og verja, varð upp­lifunin sú hin sama - að hún skipti ekki máli.“

Syst­urnar Erna, Ransý og Sólveig Guð­munds­dætur, dætur Guðrúnar sem skrif­aði grein­ina hér að ofan, skrif­uðu saman um heim­il­is­of­beldi sem yngsta systir þeirra varð fyrir og hvernig þær töldu að kerfið hefði brugð­ist henni með margs­konar hætti.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

2. Þögnin rofin

„Ég hef álasað sjálfa mig fyrir að hafa þagað yfir mál­inu. Að hafa ekki sagt frá og þar með lagt mitt á vog­ar­skál­arnar til að forða því að menn af þessu tagi kæmust í áhrifa­stöð­ur. Að hafa með þögn­inni stefnt öðrum konum í hættu. En ekki leng­ur. Tím­inn þagn­ar­innar er lið­inn. Við verð­um, sem þjóð­fé­lag, að rísa upp gegn kúltúr sem lætur ein­stak­linga halda að þeir geti traðkað yfir annað fólk á skítugum skón­um. Við verð­um, sem þjóð, að krefj­ast þess að virð­ing sé borin fyrir öllum og standa vörð um þá hug­sjón.“

Ragn­hildur Ágústs­dóttir varð ung for­stjóri hjá fyr­ir­tæki í tækni­geir­anum. Hún var beitt kyn­bundnu ofbeldi af mönnum sem lok­uðu hana inni í fund­ar­her­bergi, neyddu Ragn­hildi, sem var barns­haf­andi, til að skrifa undir samn­ing og mein­uðu henni útgöngu.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

1. Tabú á Íslandi: Leiga fyrir nfp íbúðir 61.000 á mánuði

„Núorðið er íslensk hús­næð­ispólítík samin af almanna­tenglum stuttu fyrir kosn­ing­ar. Glæru­sýn­ing­arn­ar eiga eitt ­sam­eig­in­legt: Þær byggja allar á sömu kerf­is­villu og olli hrun­in­u. NFP er ekki til í orða­bók­inn­i.

Nið­ur­staðan er olía á hækk­un­ar­eld fast­eigna­verðs. Og síhækk­andi þrösk­uldur nýliða á íbúða­mark­aði.

Stefna nýrrar rík­is­stjórnar í hús­næð­is­málum er ekk­ert verri en fyr­ir­renn­ara henn­ar. Engin stefna þarf ekki að vera verri en vond eða heimsku­leg ­stefna. Sem er klastrað saman á aug­lýs­inga­stofu. Korteri fyrir kosn­ing­ar.“

Guð­mundur Guð­munds­son á mest lesnu aðsendu grein árs­ins. Hún fjallar um hús­næð­is­stefnu sem rekin er án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, eða NFP (e. Not for profit).

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár