Forlagið með allt að helmings hlutdeild og í markaðsráðandi stöðu

Sam­keppn­is­eft­ir­litið neitar að fella úr gildi skil­yrði sem sett voru vegna mark­aðs­ráð­andi stöðu For­lags­ins á mark­aði með bækur. Ástæðan er ein­fald­lega sú að staða For­lags­ins sem sterkasta fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði hefur ekk­ert breyst.

Forlagið ehf. er stærsta bóka­út­gáfa á Íslandi með 45-50 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í almennri bóka­út­gáfu. Það er um fjór­falt meiri hlut­deild en sá útgef­andi sem kemur næst á eftir, en það er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu sam­an­borið við flesta aðra bóka­út­gef­endur. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum umfangs­mik­illar úttektar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á mark­aði fyrir bóka­út­gáfu á Íslandi. Þar segir að það sé nið­ur­staða ákvörð­unar eft­irlts­ins að Forlagið sé ennþá í mark­aðs­ráð­andi stöðu á bóka­mark­aði.

Ástæða athug­unar var sú að Forlagið óskaði eftir því að skil­yrði sem voru sett árið 2008 vegna sam­runa JPV útgáfu og Vegamóta, þegar Forlagið varð til í núver­andi mynd, yrðu felld úr gildi eða dregið úr þeim.

Þau skil­yrði fela m.a. í sér að:

  • Forlagið má aðeins semja um útgáfu­rétt á einum bók­artitli hverju sinni við hvern rit­höf­und.
  • For­lag­inu er óheim­ilt að veita end­ur­selj­endum bóka afslátt frá heild­sölu­verði bóka sinna nema Forlagið geti með óyggj­andi hætti sýnt fram á kostn­að­ar­legt hag­ræði af við­skiptum við við­kom­andi end­ur­selj­anda sem sé í sam­ræmi við afslátt­inn.
  • For­lag­inu er óheim­ilt að mis­muna end­ur­selj­endum bóka í hvers kyns kynn­ing­ar­starfi, aug­lýs­inga­her­ferðum, eða með efni sem snýr að upp­still­ingu og aug­lýs­ingu bóka í versl­unum end­ur­selj­enda nema slík mis­munun bygg­ist á almennum við­skipta­legum sjón­ar­miðum.
  • For­lag­inu er óheim­ilt að gera hvers kyns einka­kaupa­samn­inga við end­ur­selj­endur bóka.
  • For­lag­inu er óheim­ilt að hafa nokkur afskipti af sölu­verði end­ur­selj­enda þeirra bóka sem félagið gefur út eða birta með nokkru móti sölu­verð end­ur­selj­enda.

Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu segir: „Athugun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á bóka­mark­aðnum núna sýnir að staða For­lags­ins hefur ekki breyst í meg­in­at­riðum á liðnum árum. Forlagið er enn stærsta bóka­út­gáfan á Íslandi með 45-50% hlut­deild í almennri bóka­út­gáfu og er með u.þ.b. fjór­falt meiri hlut­deild en sá útgef­andi sem næst kemur að stærð sem er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu sam­an­borið við flesta aðra bóka­út­gef­endur. Er það því nið­ur­staðan í ákvörðun eft­ir­lits­ins að Forlagið sé ennþá í mark­aðs­ráð­andi stöðu á bóka­mark­aði.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur því mik­il­vægt að skil­yrðin, sem Forlagið óskar nú eftir að verði felld niður, og snú­ast aðal­lega um að Forlagið beiti ekki styrk sínum gagn­vart keppi­nautum og skaði þannig sam­keppni, gildi áfram. Skiptir líka máli að meiri­hluti keppi­nauta sem tók þátt í könnun eft­ir­lits­ins telja að skil­yrðin hafi stuðlað að auk­inni sam­keppni og að ekki séu for­sendur til að fella þau úr gildi að hluta til eða öllu leyti. Þá telur eft­ir­litið að Forlagið hafi ekki rök­stutt hvernig skil­yrðin setji félag­inu í raun skorður og hvaða áhrif það hafi fyrir það og aðra ef þau yrðu felld niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár