Í þá tíð… Dauði fjölmiðlamógúlsins

Blaða­út­gef­and­inn Robert Maxwell var einn fyr­ir­ferð­ar­mesti útgef­andi Bret­lands um ára­bil. Hann fór með him­in­skautum á hátindi veldis síns, en fallið var hátt og enda­lokin voveif­leg.

Eigendur fjöl­miðla hafa oft haft lag á því að verða frægir af endemum og jafn­vel orðið frægð­ar­menni af svip­uðu stigi og þeir sem eru til umfjöll­unar í þeirra eigin miðlum. Dæmin eru all­mörg, allt frá dögum William Randolph Hearst sem var stærsti og valda­mesti útgef­andi í Banda­ríkj­unum í meira en hálfa öld, sitt­hvoru megin við alda­mótin 1900.

Hann nýtti sér miðla sína mis­kunn­ar­laust í per­sónu­legu frama­poti og hags­muna­gæslu og var einn af frum­kvöðlum „Gulu pressunnar“ þar sem hann hik­aði ekki við að láta blöð sín birta skáld­aðar fréttir og við­töl ef það hent­aði honum.

Sá maður sem kemst hvað næst Hearst í nútím­anum er auð­vitað Ástr­al­inn Rupert Murdoch, sem hefur setið á valda­stóli hjá Sun, News of the World og Fox News, svo fátt eitt sé nefnt. Færri muna senni­lega eftir einum af helstu keppni­nautum Murdochs á sínum tíma, manni að nafni Robert Maxwell, sem var eins konar hold­tekja oflætis, drambs, yfir­gangs og skefja­lauss metn­aðar í breska fjöl­miðla­brans­anum á níunda ára­tug síð­ustu aldar.

Úr fátækt til frama

Það verður seint sagt að Robert Maxwell hafi fetað troðnar slóðir í sínu lífi. Hann fædd­ist í litlu þorpi í tékk­nesku Karpata­fjöllum árið 1923 (svæðið var síðar fært undir Ung­verja­land og er nú innan landamæra Úkraínu), einn af sjö börnum blá­fá­tækra hjóna sem voru bók­stafstrú­aðir gyð­ingar. Sjálfur sagði Maxwell, sem var gefið nafnið Ján Ludvík Hyman Binyamin Hoch, að hann hafi ekki eign­ast skó fyrr en hann var sjö ára gam­all.

Á árum seinni heims­styrj­ald­ar­innar var Ung­verja­land undir áhrifa­valdi Þýska­lands nas­ista og varð þar skilj­an­lega erfið til­vera fyrir gyð­inga. Þannig fór að Maxwell slapp úr landi árið 1940 en nær gervöll fjöl­skylda hans lét lífið í Auschwitz útrým­ing­ar­búðum nas­ista. Hann gekk til liðs við útlaga­her Tékka sem barð­ist með banda­mönnum, en færði sig yfir í breska her­inn árið 1943 og var sæmdur við­ur­kenn­ingum fyrir frammi­stöðu sína í stríð­inu.

Fljót­lega eftir stríðs­lok hóf Maxwell feril sinn í útgáfu­brans­anum. Fyrst ein­beitti hann sér að útgáfu ýmissa fræði­bóka og fag­tíma­rita en rekst­ur­inn vatt fljótt upp á sig og hann varð fljótt máls­met­andi útgef­andi dag­blaða og virkur þátt­tak­andi í stjórn­málum. Hann var kos­inn á þing fyrir Verka­manna­flokk­inn árið 1964 og sat þar til árs­ins 1970. Strax á þeim árum hafði hann það orð­spor að vera erf­iður í sam­skiptum, og hann hik­aði ekki við að fara dóm­stóla­leið­ina gegn hverjum þeim sem gagn­rýndi hann eða setti sig upp á móti honum.

Rétt áður en hann féll af þingi, hafði hann reynt að selja hlut í fyr­ir­tæki sínu Pergamon, en rétt áður en við­skiptin gengu í gegn hætti kaup­and­inn við eftir að í ljós kom að stór hluti hagn­aðar Pergamon var til­kom­inn vegna gern­inga sem tengd­ust öðrum fyr­ir­tækjum Maxwells og fjöl­skyldu.

Hann missti tökin á Pergamon um nokk­urra ára skeið en kom sér aftur inn árið 1974. Næstu árin hélt Maxwell sínu striki og eign­að­ist árið 1980 stærsta prent­fyr­ir­tæki Bret­lands British Printing Corporation.

Maxwell hafði lengi ætlað sér að eign­ast eitt af stóru dag­blöð­unum í Bret­landi. Hann gerði meðal ann­ars til­boð í News of the World árið 1969, en ungur fjöl­miðla­maður frá Ástralíu, Rupert Murdoch, skaut honum ref fyrir rass með kaupum á blað­inu og með kaup­unum á Sun skömmu síðar náði hann fót­festu á Fleet Street (sem er sam­nefn­ari fyrir blaða­brans­ann í London) sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Síðar kom í ljós að eig­endur NOTW höfðu engan áhuga á að selja tékk­neskum inn­flytj­anda blaðið.

Draumur Maxwells rætt­ist svo loks árið 1984 þegar hann keypti Mirror Group Newspapers og með því Daily Mirror, Sunday Mirror og fleiri blöð. Hann breytti þegar í stað um stefnu og hóf að líkja eftir efn­is­tökum Sun sem hafði tekið fram úr Daily Mirror í sölu nokkru áður. Létt­klæddar konur prýddu síður blaðs­ins, sem og ýmsir leikir þar sem vinn­ings­hafar áttu að geta unnið milljón pund. Starfs­menn hafa síðar upp­lýst að leik­irnir voru svindl frá upp­hafi; Maxwell tryggði að eng­inn myndi nokkru sinni vinna verð­launin.

Fljót­lega eftir kaupin réði Maxwell nýjan rit­stjóra á Daily Mirror, Roy Greenslade, sem hafði verið lengi í brans­anum og séð þar eitt og annað. Hann áleit að hann gæti unnið með Maxwell, en það var rangt.

„Þetta var alveg ómögu­legt. Hann skipti sé af öllu á öllum stigum. Ef ég tók mér til dæmis frí einn dag­inn, þá var hann búinn að reka ein­hvern þegar ég kom til baka og þá þurfti ég að ráða við­kom­andi aftur.“

Maxwell var mik­ill vexti og hrika­legur yfir­gangs­seggur sem virti til­finn­ingar starfs­fólks lít­ils, en gætti þess þó að vera stima­mjúkur í sam­skiptum ef það þjón­aði hans hags­munum. Eins ákveð­inn og fyr­ir­ferð­ar­mik­ill og Maxwell var, kunnu sumir und­ir­manna á honum lagið og sagði einn til dæmis að ef stjór­inn bað hann um nákvæma skýrslu um eitt­hvað mál fyrir næstu viku, var næsta víst að hann myndi gleyma því jafn­óðum og aldrei minn­ast á hana aftur. Þá átti hann það til, ef honum leidd­ist um helgar, að boða til fundar á skrif­stofu sinni en mundi svo ekki hvert til­efnið var þegar fólk mætti.

Maxwell lifði hátt á þessum árum. Hann skondrað­ist um allan heim í einka­þotum og barst mikið á og fjár­festi grimmt í fyr­ir­tækjum. Þegar mest lét voru um 400 fyr­ir­tæki undir hans stjórn, en það voru kaup á banda­ríska útgáfuris­anum Macmillan Publ­is­hers árið 1988 sem áttu eftir að koma honum í koll.

Kaupin slig­uðu Maxwell sam­steypuna sem safn­aði skuldum á ógn­ar­hraða, en á meðan hélt Maxwell áfram að víkka út veldi sitt. Meðal ann­ars keypti hann slúð­ur­blaðið New York Daily News og stofn­aði blaðið The European árið 1990, sem átti að gefa út um alla Evrópu.

Skemmst frá að segja fjar­aði fljótt undan Maxwell á þessum tíma. Árið 1991 var svo allt komið í strand og óráðsían var að kom­ast upp á yfir­borðið. Frétta­flutn­ingur af slæmri stöðu Maxwells sem gekk allt sum­arið, þyngd­ist enn um haustið. Panorama á BBC og Financial Times sýndu fram á ýmsar vafa­samar aðgerðir og milli­færslur innan sam­steypunnar og vörp­uðu fram spurn­ingum um hvort hann gæti staðið undir skulda­hal­anum sem hafði safn­ast upp.

Það var um þetta leyti sem Maxwell lagði upp í ferða­lag á snekkj­unni sinni. Hann sigldi, aleinn ásamt áhöfn, frá Gíbraltar til Madeira og þaðan til Kanarí-eyja. Allan tím­ann sem á ferð­inni stóð bár­ust honum skila­boð með faxi um sífellt versn­andi stöðu fyr­ir­tæk­is­ins sem var talið skulda um tvo millj­arða punda.

Hinn 4. nóv­em­ber skip­aði hann skip­stjór­anum að leggja úr höfn. Áhöfnin heyrði síð­ast frá honum á fimmta tím­anum um nótt­ina en um morg­un­inn sást ekk­ert til hans um borð. Leitar- og björg­un­ar­að­gerðir fóru strax í gang og þyrlu­sveit fann lík hans fljót­andi í haf­inu.

Atburða­rásin er engum kunn, og sér­fræð­ingar sem kall­aðir voru til, gátu ekki skorið með vissu úr um dán­ar­or­sök, en úrskurður yfir­valda var að hjarta­á­fall og drukknun hafi orðið honum að ald­urtila. Hann var 68 ára að aldri og hafði lengi átt við hjarta- og lungna­sjúk­dóma að etja.

Þrátt fyrir þetta eru margir sann­færðir um að Maxwell hafi stytt sér aldur með því að kasta sér fyrir borð.

Stal lífeyrispeningum starfsmanna

Það var ekki fyrr en eftir að Maxwell var lát­inn sem raun­veru­leg staða fyr­ir­tæk­is­ins varð lýðnum ljós. Varla stóð þar steinn yfir steini, en það alvar­leg­asta var að hann hafði notað líf­eyr­is­sjóði starfs­fólks til að greiða skuldir fyr­ir­tæk­is­ins. Alls vant­aði um 440 millj­ónir punda, sem setti afkomu rúm­lega 30.000 starfs­manna í mikla óvissu.

Eftir nokk­urra ára mála­rekstur fékkst obb­inn af þeim fjár­munum sem teknir höfðu verið úr líf­eyr­is­sjóð­unum til baka með dómsátt. Meðal ann­ars þurfti breska ríkið að punga út 100 millj­ónum punda en restin kom frá þeim fyr­ir­tækjum sem eftir voru, end­ur­skoð­enda­stofum og fjár­fest­inga­bönkum.

Saga Maxwells er stór­merki­leg og í þess­ari grein hef ég hvorki minnst á umdeild sam­skipti hans og stuðn­ing við Ísrael og hina ýmsu harð­stjóra aust­an­tjalds­ríkja á sínum tíma né afskipti af knatt­spyrnu­liðum.

Til er frasi á ensku til að lýsa fólki sem ber mikið á – „Larger than Life“ – og vissu­lega átti Maxwell sitt fólk, en eftir þennan merki­lega feril eru eft­ir­mælin almennt ekki um neitt stór­menni, heldur lít­inn karl í stórum skrokki sem gekk fram með ofríki og stal pen­ingum af eigin starfs­fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár