Stóru bankarnir þrír fá heimild til að reka saman seðlaver

Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn fá und­an­þágu til að reka saman seðla­ver. Slíkur sam­rekstur á að leiða til kostn­að­ar­sparn­aðar fyrir bank­ana.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur fall­ist á að veita Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum til stofn­unar og rekst­urs sam­eig­in­legs seðla­vers gegn til­teknum skil­yrðum. Bankarnr þrír, sem eru sam­an­lagt nær ein­ráðir á íslenskum við­skipta­banka­mark­aði, hafa skuld­bundið sig til að fara að þeim skil­yrðum.

Starf­semi seðla­vers felst í meg­in­dráttum í því að taka við seðlum og mynt frá úti­búum, hrað­bönkum og öðrum starfs­stöðvum við­skipta­banka og spari­sjóða, telja og skrá reiðufé, varð­veita það, dreifa því til baka til úti­búa, hrað­banka og ann­arra starfs­stöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðla­bank­anum.

Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu segir að megin rökin fyrir stofnun og rekstri sam­eig­in­legs seðla­vers felist í því að sam­rekstur á þessu sviði geti leitt til tölu­verðs kostn­að­ar­sparn­aðar sam­an­borið við að reka hvert seðla­ver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafn­framt gæti sam­eig­in­legt seðla­ver verið betur í stakk búið til að upp­fylla örygg­is­kröfur.

„Skil­yrðum sátt­ar­innar er m.a. ætlað að tryggja að sam­eig­in­legt seðla­ver verði rekið með sjálf­stæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sam­eig­in­lega félagi, tryggja að verð­lagn­ing félags­ins mið­ist ein­göngu við þörf­ina fyrir að við­halda starf­sem­inni, vinna gegn því að starf­semi félags­ins skerði sam­keppni á milli eig­enda félags­ins (stóru við­skipta­bank­anna þriggja) á mark­aði fyrir almenna við­skipta­banka­þjón­ustu og tryggja að sú hag­ræð­ing sem leiðir af sam­rekstr­inum við­hald­ist til fram­tíðar.

Fram­an­greind und­an­þága byggir á 15. gr. sam­keppn­islaga, en sam­kvæmt henni getur Sam­keppn­is­eft­ir­litið veitt und­an­þágu frá banni lag­anna við sam­keppn­is­hamlandi sam­starfi fyr­ir­tækja, að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár