20 þúsund manns á þrítugsaldri búa í foreldrahúsum

Mikill vandi hefur skap­ast á hús­næð­is­mark­að­inum und­an­farin ár og um þessar mundir búa um 20.000 manns á aldr­inum 20 til 29 ára í for­eldra­húsum og fer sá fjöldi vax­andi.

Skortur er á íbúðarhúsnæði um allt land en vandinn er mismunandi eftir landsvæðum.
Skortur er á íbúð­ar­hús­næði um allt land en vand­inn er mis­mun­andi eftir land­svæðum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um þessar mundir eru búa um 20.000 manns á aldr­inum 20 til 29 ára í for­eldra­húsum og hefur sá fjöldi farið vax­andi. Ísland hefur gengið í gegnum miklar sveiflur á hús­næð­is­mark­aði síð­ast­liðin miss­eri en til­tölu­lega stórir árgangar ungs fólks hafa komið inn á fast­eigna­markað á und­an­förnum árum á sama tíma og nýbygg­ingar hafa ekki verið færri síðan á 6. ára­tugnum.

Þetta kom fram í erindi Sigrúnar Ástu Magn­ús­dóttur, verk­efna­stjóra hús­næð­is­á­ætl­ana hjá Íbúða­lána­sjóði, á hús­næð­is­þingi sem haldið var síð­ast­lið­inn mánu­dag á Hilton Reykja­vík Nordica.

Fjöldi íbúa á hverja íbúð hér á landi hefur hækkað und­an­farin ár á meðan hann hefur almennt farið lækk­andi á hinum Norð­ur­lönd­unum. Í dag eru um 2,5 íbúar í hverri íbúð á Íslandi en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum eru um 2 íbúar í hverri íbúð.

Hluti hús­næð­is­vand­ans felst í auk­inni skamm­tíma­leigu íbúða til ferða­manna. Í erindi Sigrúnar kom fram að um 1,2 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið í leigu á Airbnb í 180 daga eða fleiri á síð­ustu 12 mán­uðum. Staðan er öðru­vísi á mörgum öðrum land­svæðum þar sem minna er um að íbúðir séu í svo mik­illi útleigu á Airbnb.

Flest sveit­ar­fé­lög á land­inu vinna nú að gerð hús­næð­is­á­ætl­ana í sam­starfi við Íbúða­lána­sjóð. Mark­miðið með hús­næð­is­á­ætl­unum er að tryggja að fjölgun íbúða í ein­stökum sveit­ar­fé­lögum og á land­inu öllu sé í takt við mann­fjölda­spár og breyttar fjöl­skyldu­gerðir. Með þeim hætti er gengið úr skugga um að allir hafi aðgang að öruggu hús­næði við hæfi.

48 sveit­ar­fé­lög hafa nú hafið vinnu við hús­næð­is­á­ætlun og eru 15 þeirra ýmist langt komin eða hafa birt áætlun. Sem dæmi um afrakstur vinn­unnar má nefna að sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesjum gera ráð fyrir sam­tals 1.000 nýjum íbúðum á árunum 2017 til 2021.

Sigrún segir að það sé mjög ánægju­legt að sjá heilt lands­svæði takast á við þær miklu áskor­anir sem munu fylgja ef spá um mikla mann­fjölda­aukn­ingu ganga eftir en öll sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesj­unum eru nú á loka­metr­unum við gerð sinnar hús­næð­is­á­ætl­unar.

Hún segir jafn­framt að annar vandi blasi hins vegar við á lands­byggð­inni þar sem á mörgum lands­svæðum hefur nán­ast ekk­ert verið byggt svo árum og jafn­vel ára­tugum skiptir. Það sé mik­il­vægt að Íslend­ingar greini þann vanda með nákvæmum hætti eftir ólíkum lands­svæðum og þar séu hús­næð­is­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga lyk­il­þáttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár