Frægðin er fallvölt: „Vandi” íslenskrar knattspyrnu

Upp­gangur lands­liðs­ins hefur átt sér stað á sama tíma og aukin ein­stak­lings­hyggja, græðgi og firr­ing hafa rutt sér til rúms í íþrótt­inni. Þessi krísa hefur að hluta skapað tæki­færi Íslands og aðstæður þar sem styrk­leikar okkar nýt­ast best.


Upp­gangur lands­liðs­ins hefur átt sér stað á sama tíma og aukin ein­stak­lings­hyggja, græðgi og firr­ing hafa rutt sér til rúms í íþrótt­inni. Þessi krísa hefur að hluta skapað tæki­færi Íslands og aðstæður þar sem styrk­leikar okkar nýt­ast best. En hnignun kann að leyn­ast handan við hornið.

Íslensk knatt­spyrna stendur á hátindi frægðar sinnar. Eftir árangur karla­lands­liðs­ins á Evr­ópu­mót­inu 2016, og eftir að liðið fylgdi þeim árangri eftir með því að tryggja sig á loka­keppni Heims­meist­ara­móts­ins í Rúss­landi næsta sumar, hafa augu heims­byggð­ar­innar beinst að Íslandi. Augu undr­unar og aðdá­unar.

For­víg­is­menn knatt­spyrn­unnar á Íslandi hafa eignað þennan árangur góðu starfi innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar á und­an­förnum árum, að mörgu leyti með réttu. Miklar fram­farir hafa átt sér stað í umgjörð íslenskrar knatt­spyrnu á síð­ustu árum og fag­mennska ein­kennir alla vinnu í kringum lands­liðið. En það er fleira sem hangir á spýt­unni. Árangur karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu er ekki afrakstur ára­langrar og þaul­skipu­lagðrar vinnu knatt­spyrnu­yf­ir­valda með það að mark­miði að akkúrat þetta lið myndi slá í gegn með þessum hætti akkúrat núna. Til­vilj­anir og heppni ráða þar einnig miklu.

Önnur mik­il­væg ástæða þess að íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu nær þessum árangri má segja að sé að mörg lands­lið þaul­reyndra knatt­spyrnu­þjóða eiga í til­vist­ar­kreppu. Hún er til­komin vegna alþjóð­legrar þró­unar sem felur í sér aukna atvinnu­væð­ingu, mark­aðsvæð­ingu og stjörnu­dýrkun sem hefur myndað kúltúr í íþróttum sem ýtir undir ein­stak­lings­hyggju, græðgi, firr­ingu og jafn­vel spill­ingu. Slíkur kúltúr, þar sem ein­stak­lings­hyggju er hampað á kostnað heild­ar­hyggju, er alveg sér­stak­lega óheppi­legur í hóp­í­þróttum, þar sem byggja þarf upp lið sem þarf að vinna saman og nýta sér allar bjargir til að ná árangri í harðri keppni. Þegar and­rúms­loft innan liða ein­kenn­ist af frama ein­stak­lings­ins, græðgi, öfund og stirðum sam­skiptum þá eru for­sendur þess að liðið virki sem lið ekki til staðar. Slík lið – ef lið skyldi kalla – ná ekki hámarks­ár­angri.

Krísa afreksíþrótta og tækifæri Íslands

Þessi krísa afrek­s­í­þrótta hefur leitt til þess að mikið af sterkum knatt­spyrnu­þjóðum – þjóðum sem búa yfir mik­illi sögu, hefð, fjár­magni og afburða hæfi­leik­a­ríkum knatt­spyrnu­mönnum – eiga nú undir högg að sækja á knatt­spyrnu­vell­inum. Hefur árangur marga þess­ara þjóða því verið langt undir vænt­ingum. Vandinn sem fylgir mark­aðsvæð­ingu knatt­spyrn­unnar er þó ekki ein­skorð­aður við „stóru” atvinnu­manna­þjóð­irnar heldur birt­ist hann hjá nán­ast öllum liðum í kjöl­far þess að þau ná árangri á hinu stóra sviði afrek­s­í­þrótta. Þetta á því einnig við um minni þjóðir sem eiga sín tíma­bundnu gull­ald­ar­skeið. „Smá­þjóðir” eins og Noregur, Holland og Króatía eru ágætis dæmi um þetta. Gull­aldir renna sitt skeið.

Karla­lands­lið Noregs átti sitt gull­ald­ar­skeið á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Liðið, undir hand­leiðslu Egils „Drillo” Olsen, komst á þrjú stór­mót (sín fyrstu) og í annað sætið á FIFA list­anum svo­nefnda. Frábær árangur hjá ekki stærri þjóð. En frá alda­mótum hefur norska liðið ekki náð inn á fleiri stór­mót og árangur þess farið lóð­beint niður á við. Sama má segja um hol­lenska lands­liðið. Eftir að hafa náð brons­verð­launum í Heims­meist­ara­keppn­inni 2014 þá hefur liðið hvorki náð að kom­ast í loka­keppni Evr­ópu­móts­ins 2016 né Heims­meist­ara­móts­ins 2018. Hnignun hol­lenskrar knatt­spyrnu blasir við. Það sama er að ger­ast í Króatíu en kannski ekki með jafn afdrátt­ar­lausum hætti, alla vega enn sem komið er. Gullöld Króata hófst við sam­bands­slitin frá Júgóslavíu í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins og hafa króat­ísk lands­lið verið ein­stak­lega sig­ur­sæl und­an­farin miss­eri í knatt­spyrnu, körfuknatt­leik og hand­knatt­leik. En það er mál manna í Krótíu að gull­ald­ar­skeiðið sé á enda. Landslið Króata hafa ekki náð sömu hæðum og áður og á und­an­förnum miss­erum hefur árangur þeirra verið langt undir vænt­ingum, sér­stak­lega í körfuknatt­leik og knatt­spyrnu.

Það má því halda því fram að árang­urs­rík lið verði oft fórn­ar­lömb eigin vel­gengni. Menn verða góðu vanir og eiga erfitt með að takast á við breyttar aðstæður og áskor­anir sem fylgja því að ná árangri í íþróttum. Frægðin getur verið fall­völt. Sviðs­ljósið blindar og árangur stígur litlu lið­unum til höf­uðs sem fjar­læg­ast smátt og smátt þau gildi sem upp­haf­lega skópu árangur þeirra. Dæmin hér að ofan eiga það öll sam­merkt að hnignun þess­ara lands­liða hélst í hendur við vax­andi ein­stak­lings­hyggju á kostnað heild­ar­hyggju og fórn­fýsi fyrir liðið, land og þjóð. Þau hafa að ein­hverju leyti tapað þessum jákvæðu, upp­byggi­legu og árang­urs­ríku gildum sem eru und­ir­stöður góðra liða. Það verður þessum liðum að falli.

Lánsemi íslenskra lands­liða liggur meðal ann­ars í því að veik­leikar and­stæð­inga okkar – og nútíma afrek­s­í­þrótta – hafa gefið okkur færi á að nýta okkur þá, og kom­ast fram úr þeim, alla vega um stund­ar­sakir. Ef Hol­lend­ingar hefðu til að mynda spilað eins og þeir eiga að sér í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins 2016 þá hefði Ísland senni­lega ekki kom­ist í loka­keppn­ina. Ef Króatar og Tyrkir hefðu spilað eins og þeir eiga að sér í und­ankeppni Heims­meist­ara­móts­ins 2018 þá hefði Ísland senni­lega ekki kom­ist í loka­keppn­ina. Eins dauði er ann­ars brauð í þessu eins og öðru.

Ísland hefur gert vel í að nýta sér þau tæki­færi sem hafa skap­ast í afrek­s­í­þróttum á und­an­förnum árum. Ekki bara í knatt­spyrnu, heldur líka í körfuknatt­leik og hand­knatt­leik. Það að öll okkar helstu lands­lið séu að kom­ast á stór­mót í íþróttum þessi árin ber merki þess. Hluti skýr­ing­ar­innar á árangri íslenskra lands­liða þessi miss­erin er að við erum á réttum stað á réttum tíma. Lánsemi okkar felst í því að helstu eig­in­leikar okkar sem íþrótta­þjóðar eru þeir eig­in­leikar sem þessi afrek­s­í­þróttalið hafa einmitt tapað á und­an­förnum árum. Í því felst sér­staða okkar.

Forskot íslenskra lands­liða liggja því í gild­unum, vinnu­brögð­unum og hug­ar­far­inu sem þau hafa til­einkað sér – sem eru mikið til sömu gildi og þjóðir eins og Norðmenn, Hol­lend­ingar og Króatar höfðu í hávegum þegar frægð­ar­sól þeirra reis sem hæst. Gildi eins og sam­vinna, fórn­fýsi, þjóð­arstolt, vinnu­semi, leik­gleði og agi. Íslensku lands­liðin hafa þessi gildi í hávegi. „Við eigum fullt af leik­mönnum sem eru til­búnir að leggja allt á sig þó svo að þeir fái ekki sviðs­ljósið” sagði Heimir Hall­gríms­son, lands­liðs­þjálf­ari. Þessi eft­ir­sókn­ar­verðu gildi gera liðin okkar ekki bara að góðum liðum, heldur leik­menn­ina að heil­steyptum og góðum ein­stak­lingum. Heimir kall­aði einmitt eftir þessum gildum eftir ófar­irnar gegn Finnum. „Við núll­stilltum okkur og fórum aftur í grunn­gildin” sagði hann eftir fræk­inn sigur íslenska karla­lands­liðs­ins á Tyrkjum. Gildin virka sem ósýni­legt afl sem tengir ein­stak­linga saman í eitt­hvað stærra, meira og merki­legra og nær því besta frá öllum – í sam­of­inni heild. Það gildir nefni­lega einu hvað við eigum góða fót­bolta­menn. Ef gildin, við­horfin og karakt­er­inn eru ekki í lagi þá náum við ekki hámarks­ár­angri.

Íslenskur íþróttakúltúr er enn þá frekar ósnort­inn af pen­inga­væð­ing­unni. Við Íslend­ingar erum enn þá áhuga­menn í eðli okkar. Við höfum ekki gleymt leiknum í íþrótt­unum. Íslensku leik­menn­irnir setja lands­liðið í fyrsta sæti. Þeir eru vinir og félagar, þeir spila með hjart­anu og smita frá sér metn­aði, jákvæðni og trú sem gerir það að verkum að það er eins og við séum allt í einu komnir með tólfta, og jafn­vel þrett­ánda mann­inn, inn á völl­inn. Það eru þessir grund­vall­ar­þættir góðra liða sem virka svo sjálf­sagðir í orði, en eru það ekki endi­lega á borði.

Vandi fylgir vegsemd hverri

Vandi íslenskrar knatt­spyrnu í dag – ver­andi á hátindi frægð­ar­innar – er hvernig á að takast á við hnign­un­ina sem kann að leyn­ast handan við hornið. Nýlegur árangur íslenskrar knatt­spyrnu gerir það að verkum að lands­liðin okkar standa frammi fyrir ógn af mark­aðsvæð­ingu íþrótta. Dæmin frá Noregi, Króatíu, Hollandi og fleiri þjóðum eiga að vera okkur víti til varn­aðar. Hnatt­væð­ingin máir út stað­bundin ein­kenni og ein­stak­lings­hyggjan og græðgin breiða úr sér til þeirra sem ná árangri og verða þeir því oft mark­aðsvæð­ing­unni að bráð. Þetta eru þættir sem hola liðin að innan þannig að ekk­ert stendur eftir nema umbúðir, en ekk­ert inni­hald.

Við þurfum því að vera á varð­bergi ef við ætlum að við­halda árangrinum. Við þurfum að við­halda gild­unum. Við verðum, í þeirri stöðu sem við erum í í dag, að styrkja grunn­stoð­irnar og vinna í því að efla karakter lands­liðs­manna fram­tíð­ar­innar, frá fyrstu skrefum til þeirra síð­ustu. Að kenna grunn­gildin sem hafa reynst öllum sig­ur­sælum smá­þjóðum gulls ígildi. Við þurfum einnig að fræða þá sem standa leik­mönn­unum næst; þjálf­ara, for­eldra, umboðs­menn og aðra áhrifa­valda. Hjálpa þeim að sjá stóru mynd­ina og halda sínu fólki við efnið. Því ef við náum að koma böndum á óæski­leg áhrif mark­aðsvæð­ingar íþrótta þá getur litla Ísland ekki bara komið á óvart einu sinni eða tvisvar, heldur fest sig í sessi meðal þeirra bestu. Hættan er aftur á móti sú að við hverfum af stóra svið­inu eins skyndi­lega og við komust á það og að and­laus lands­lið fram­tíð­ar­innar leiki á nýja þjóð­ar­leik­vang­inum hálf­tómum, leiki sem engu máli skipta.

Almenn nálgun okkar Íslend­inga á íþróttir er í dag bæði heil­brigð og árang­urs­rík; höldum henni þannig.

Höfundur starfar sem dós­ent í félags­fræði við Háskóla Íslands og sem íþrótta­ráð­gjafi. Hann er höf­undur bók­ar­innar „Sport in Iceland: How small nations achieve international success“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár