Þrjú stærstu stefnumál Miðflokksins eru Sigmundur, Davíð og Gunnlaugsson

Tveir menn sem heita Andrés ræða ímynda­stjórn­mál, subbu­skap í kosn­inga­bar­áttu og fram­boð sem hverf­ast um ein­stak­linga sem nær­ast á stans­lausri umfjöllun í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans. Hann er á dag­skrá Hring­brautar klukkan 21 í kvöld.

„Fyrir Sigmund Davíð skiptir mjög miklu máli að koma þremur helstu mál­efnum flokks hans á fram­færi. Sem eru Sig­mundur, Davíð og Gunn­laugs­son.“ Þetta segir Andrés Magn­ús­son, blaða­maður á Við­skipta­blað­inu í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut í kvöld.

Þar eru ímynd­ar­stjórn­mál, nýjar til­hneig­ingar í stjórn­málum og kosn­inga­bar­áttan fram undan til umræðu. Hinn við­mæl­andi Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans og stjórn­anda þátt­ar­ins, er Andrés Jónsson almanna­teng­ill.

Andrés Jónsson segir að almennt séð sé ekki öll athygli góð athygli. Það sé mik­il­vægt að fram­bjóð­endur séu sýni­legir af réttum ástæðum. Það að halda athygli á sér hjálpi þó til að ná árangri við að setja mál á dag­skrá.

Aðspurður hvort að aðstæður eins og þær sem nú eru uppi, þar sem nær öll athygli er á einu fram­boði Mið­flokks­ins, sem hefur enn ekki kynnt nein stefnu­mál né fram­boðs­lista, skaði aðra flokka í kosn­inga­bar­átt­unni segir Andrés Magn­ús­son svo vera. Það skipti Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, leið­toga þess flokks og þann sem flokk­ur­inn var stofn­aður utan um, mestu máli að koma helstu áherslu­málum sínum á fram­færi. Þau áherslu­mál séu hann sjálfur. „Enn sem komið er hefur honum tek­ist mjög vel að kalla sitt fólk fram. Hitt fólkið var ekk­ert á leið­inni til hans flokks hvort sem var. Það skiptir hann ekki máli. En fyrir hina flokk­anna á miðj­unni, og aðra sem eru með popúl­ískar hneigðir skulum við segja, þá er þetta mjög erfitt ef hann er að ná svona mik­illi athygli á sig. Ekki nein mál­efni, nema kannski Wintris-málið, sem ég fæ ekki séð hvernig aðrir flokkar eiga aðkomu að.“

Það sé erfitt fyrir aðra flokka að finna mál til aðgreina sig þegar kast­ljósið bein­ist ann­ars vegar að stórum vinstri flokki, Vinstri grænum, og hins vegar að stórum hægri flokki, Sjálf­stæð­is­flokknum, og síðan „þessum karli þarna á miðj­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár