4,3 milljarða hagnaður WOW Air - Umsvif jukust mikið á einu ári

Tekjur juk­ust um tæp­lega 20 millj­arða króna hjá WOW Air í fyrra, og kostn­aður um 13,8 millj­arða, sam­kvæmt sam­stæðu­reikn­ingi félags­ins.

Hagnaður af rekstri WOW Air sam­stæð­unnar nam 4,3 millj­örðum króna á árinu 2016 sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi.

Eigið fé sam­stæð­unnar í árs­lok 2016 nam 5,9 millj­örðum króna en glögg­lega má sjá á reikn­ingi sam­stæð­unnar að umfang rekst­urs­ins jókst mikið milli ára.

Á árinu 2016 flaug félagið til alls 29 áfanga­staða þegar mest var með tólf flug­vélar í fullum flug­rekstri. Af 29 áfanga­stöðum jók sam­stæðan flug til Banda­ríkj­anna úr tveimur í fimm áfanga­staði og hóf beint flug til Los Angeles og San Francisco.

Skúli Mogensen, for­stjóri félags­ins, stofn­andi og eig­andi í gegnum félagið Títan fjár­fest­inga­fé­lag, hefur sagt að áfram­hald verði á vexti félags­ins, og hefur þetta ár ein­kennst af því með nýjum áfanga­stöðum og auknum umsvifum.

Tekjur og gjöld vaxa mikið

Mikil breyt­ing varð á rekstri félags­ins á árinu 2016 miðað við árið 2015. Þannig juk­ust tekjur af flug­rekstri um tæp­lega 20 millj­arða króna. Árið 2015 voru tekj­urnar 16,6 millj­arðar króna en í fyrra voru þær 35,7 millj­arðar króna.

Að sama skapi jókst kostn­aður úr 12,4 millj­örðum króna í 26,2 millj­arða.

Launa­kostn­aður hækk­aði um 3,2 millj­arða króna, en hann fór úr 2,2 millj­örðum króna árið 2015 í 5,4 millj­arða í fyrra.

Innborganir á flugvélar vega þungt

Sé horft til eigna flug­fé­lags­ins, hefur orðið mik­ill vöxtur þar milli ára. Heild­ar­eignir voru metnar á 37,5 millj­arða króna í lok árs í fyrra, en árið 2015 voru eign­irnar 19,3 millj­arðar.

Af þessum heild­ar­eignum eru rekstr­ar­fjár­munir 24,1 millj­arður, inn­borg­anir á flug­vélar og trygg­ing­arfé 4,3 millj­arðar, og við­skipta­kröfur og aðrar skamm­tíma­kröfur eru metnar á 7,1 mill­lj­arð. Þar vega þyngst kor­ta­kröfur, upp á 5,9 millj­arða króna, að því er fram kemur í skýr­ingum með reikn­ingnum.

Eldsneytið stór þáttur

Eins og jafnan í flug­rekstri er elds­neytis­kostn­aður stór kostn­að­ar­liður. Í fyrra var hann 7,3 millj­arðar króna, en árið 2015 4,3 millj­arðar. Við­halds­kostn­aður við flug­vélar félags­ins sexfald­að­ist milli ára, og fór úr 303 millj­ónum króna í 1,8 millj­arð.

Starfs­gildum hjá félag­inu hefur fjölgað hratt, en í árs­lok í fyrra voru þau 648. Í árs­lok 2015 voru þau hins vegar 264. Laun for­stjóra og átta fram­kvæmda­stjóra félags­ins námu 199 millj­ónum króna, eða sem nemur ríf­lega 1,8 milljón á mann, sé mið tekið af með­al­tali.

Umfangsmiklir leigusamningar vegna flugvéla

Leigu­samn­ingar vegna flug­vélaga sem félagið notar eru miklir að umfangi, í sam­hengi við rekstur félags­ins. Í lok árs í fyrra voru þeir metnir á ríf­lega 17 millj­arða króna. Fram til árs­ins 2021 eru árlegar afborg­anir 1,7 millj­arðar króna. Afborg­anir sem koma síðar en það eru ríf­lega 8 millj­arðar króna. Vaxta­kjör á fjár­mögn­un­ar­leigu í evrum mið­ast við þriggja mán­aða EURIBOR auk 1,85% álags og í Banda­ríkja­dal er miðað við LIBOR auk 2,00% álags.

Hvers virði er félagið?

Vöxtur WOW Air hefur verið mik­ill, sam­hliða miklum vexti í ferða­þjón­ust­unni hér á landi, og má segja að félagið sé nú í lyk­il­hlut­verki í ferða­þjón­ustu á land­inu ásamt Icelandair Group. Það félag er skráð á markað og nemur mark­aðsvirði þess nú 71,6 millj­örðum króna, en eigið fé félags­ins nemur 61,3 millj­örðum króna, miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal (USD=108 ISK). 

Sé þessi staða notuð til að meta virði WOW Air þá nemur verð­mið­inn 6,8 millj­örðum króna. Mat sem þetta verður þó ávallt leikur að tölum, og útkoman mis­mun­andi eftir því til hvaða for­sendna er horft í aðferð­ar­fræð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár