Í þá tíð… Bakslag í baráttu fyrir kvenpeningi í Bandaríkjunum

Áður en Donald Trump tók við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna hafði verið ákveðið að hressa aðeins upp á doll­ara­seðl­ana vest­an­hafs. Þorgils Jónsson kynnti sér bar­áttu­kon­una Harriet Tubman og von­ina um að hún fái að prýða seðil.

Harriet Tubman er ein af frægustu baráttukonum nítjándu aldar. Hún barðist fyrir réttindum blökkumanna og kosningarétti kvenna og frelsaði hundruð manna úr þrældómi. Fyrirhugað var að mynd af henni yrði á næstu útgáfu 20$ seðilsins.
Harriet Tubman er ein af fræg­ustu bar­áttu­konum nítj­ándu aldar. Hún barð­ist fyrir rétt­indum blökku­manna og kosn­inga­rétti kvenna og frels­aði hund­ruð manna úr þræl­dómi. Fyr­ir­hugað var að mynd af henni yrði á næstu útgáfu 20$ seð­ils­ins. Mynd: Thorgils Jonsson

Lengi hefur verið þrýst á um að kona fái sess á banda­rískum seðlum. Í fyrra var ákveðið að bar­áttu­konan Harriet Tubman færi á næstu útgáfu 20$ seð­ils­ins, en þær fyr­ir­ætl­anir eru í upp­námi á meðan núver­andi for­seti er við völd.

Banda­ríkja­dalur er senni­lega það sem kemst næst því að heita alþjóð­legur gjald­mið­ill. Varla er sá staður á jarð­ríki sem „bucks“ eru ekki gjald­gengir og „greenbacks“, eins og doll­ara­seðlar eru oft kall­aðir, eru nokk­urs konar alþjóð­legt tákn fyrir pen­inga.

Félags­skap­ur­inn á þessum seðlum er frekar eins­leitur – jafn­vel fábreyttur – þar sem þar eru á fleti sjö karlar, ýmist for­setar eða hluti af hópi „Lands­feðr­anna“. Elstur er fræði­mað­ur­inn og sjálf­stæð­is­for­kólf­ur­inn Benjamin Franklin, sem fædd­ist 1706 og prýðir 100$ seð­il­inn. Yngsti með­lim­ur­inn er hins vegar Ulysses S. Grant, sem er á 50$ seðl­inum, en hann var her­for­ingi í borg­ara­styrj­öld­inni og síðar for­seti og lést 1885. Þar á milli eru George Washington (f. 1782), fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins, sem er á 1$ seðl­inum, Abraham Lincoln á 5$, Alex­ander Hamilton, fyrsti fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, á 10$, Andrew Jackson á 20$ og – nokkuð sem er flestum ókunn­ugum dulið – Thomas Jeffer­son á 2$ seðl­inum. (Síð­ast­nefndi seð­ill­inn er afar lítið not­aður meðal almenn­ings.)

(Þess ber þó að geta að enn eru í umferð full­gild ein­tök af stærri seðlum, 500$, 1.000$, 5.000$ og 10.000$, en þeir hafa ekki verið prent­aðir frá 1934 og eru því afar lítið not­aðir. Þess utan er fyr­ir­sætugall­er­íið þar sótt í sama pott, þrír for­setar og einn fjár­mála­ráð­herra, allir frá 19. öld.)

Þessi upp­still­ing hefur hald­ist óbreytt í hart­nær öld þrátt fyrir að breyt­ingar hafi vissu­lega komið til tals.

Umdeildur forseti settur af seðli

Í tíð Baracks Obama á for­seta­stóli fór að rofa til í þessum málum. Í júní 2015 hóf fjár­mála­ráðu­neytið vinnu við að koma konu á seðil. Fyrst var talað um 10$ seð­il­inn, en mörgum fannst illa að Hamilton vegið með því, enda er hann allt að því skil­get­inn faðir banda­ríska efna­hags­kerf­is­ins (og varla hefur spillt fyrir hans mál­stað að í upp­hafi þess árs sló söng­leikur, byggður á ævi hans, ræki­lega í gegn á Broadway og lyfti nafni hans upp í áður óþekktar hæðir.)

Hins vegar voru fáir að fara að rísa upp til varnar fyrir Jackson sem var á 20$, enda var hann um flest frekar ósjar­mer­andi per­sónu­leiki, harður og durts­legur her­for­ingi sem hefur verið afar umdeildur síð­ustu ára­tug­ina. Hans er nú helst minnst fyrir að hafa fyr­ir­skipað brott­rekstur frum­byggja, meðal ann­ars af Cherokee- og Sem­inóla­ættum, frá löndum sínum í Suð­austri, vestur yfir Miss­issippi-fljótið til að rýma fyrir land­töku hvítra manna. Þessi feigð­ar­för reif tugi þús­unda upp með rótum og þús­undir lét­ust á leið­inni.

[adspot]

Þannig til­kynnti Jack Lew, fjár­mála­ráð­herra Obama-stjórn­ar­innar, þá ákvörðun um mitt síð­asta ár, að bar­áttu­konan Harriet Tubman hefði verið valin til þess að prýða nýjan 20$ seðil sem yrði kynntur árið 2020 og komið í umferð á árunum eftir það.

Baráttukona í húð og hár

En hver var Harriet Tubman og hvað afrek­aði hún til að eiga heima á stalli með hinum háu herrum í seðla­geng­inu (pun intended) með for­setum og ráð­herr­unum fyrri alda?

Alveg hreint fjöl­margt, þegar að er gáð.

Tubman fædd­ist í ánauð í Mar­yland­ríki ein­hvern tíma í kringum árið 1820. Hún vann fyrst á heim­ili „eig­enda“ sinna og síðar á ökrunum. Árið 1849 flúði hún úr ánauð­inni og komst við ramman leik til Phila­delp­hiu, um 150 km leið, þar sem hún fékk vinnu og kom sér fyrir. Haft er eftir henni að þegar hún komst yfir rík­is­mörkin til Penn­syl­vaniu hafi hellst yfir hana mik­ill léttir. „Ég horfði í hendur mér til að athuga hvort ég væri ennþá sama mann­eskjan. Það var svo mikil dýrð yfir öllu; gylltir sól­ar­geislar bár­ust gegnum trén og yfir akrana og mér fannst eins og ég væri komin til himna­ríkis.“

Hún lét sér ekki nægja að hafa höndlað eigið frelsi, heldur hélt aftur suður á bóg­inn árið eftir og frels­aði systur sína og börn hennar úr þræl­dómi, og síðar bróður sinn og fleiri. Næstu tíu árin fór hún alls nítján ferðir og frels­aði hund­ruð blökku­manna úr þræl­dómi. Hún var einn af for­sprökk­unum í Underground Railroad, félags­skap sem vann ötul­lega að því að ferja þræla úr ánauð til norð­ur­ríkj­anna, og jafn­vel allt til Kanada. Hún varð fljótt þekkt meðal þræla­hald­ara, sem settu fé til höf­uðs hennar.

Upp úr 1860 þegar mót­staðan gegn þræla­haldi í Banda­ríkj­unum fór á flug fyrir alvöru tók hún virkan þátt í því starfi og eftir að borg­ara­styrj­öldin braust út gerð­ist hún njósn­ari fyrir her sam­bands­sinna.

Tubman var ekki bara umhugað um rétt­indi þræla, heldur vann hún líka ötul­lega að rétt­indum kvenna og fór víða til að tala fyrir kosn­inga­rétti kvenna, í sam­vinnu við þekktar súf­fra­gettur líkt og Susan B. Anthony.

Tubman lést í hárri elli árið 1913, umkringd ást­vinum, en hún hafði verið mjög veik síð­ustu árin, sem mátti rekja til ofbeldis sem hún mátti þola á árunum í þræl­dómi.

Hún skildi eftir sig stór­merki­legt ævi­starf sem annar frum­kvöð­ull í rétt­inda­bar­áttu blökku­manna, Barack Obama, hafði hug á að við­ur­kenna með ofan­greindum heiðri. Jackson hefði mögu­lega fengið að vera áfram á bak­hlið seð­ils­ins.

Bakslagið

Þá ger­ist hið óvænta. Donald nokkur Trump er kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna og ekki hið ein­asta er hann bor­inn til emb­ættis á höndum fólks sem er síst gefið um blökku­fólk og aðra minni­hluta­hópa, heldur er hann bein­línis – og við­búið – tals­verður aðdá­andi Jacksons, sem Tubman hefði rutt úr rúmi. Hann hengdi upp mál­verk af Jackson í skrif­stofu for­seta og skemmst er líka að minn­ast sam­heng­is­lausrar lof­rullu Trumps um Jackson fyrr á árinu, sem studd­ist ekki nema að tak­mörk­uðu leyti við veru­leik­ann eins og flest fólk skynjar hann.

Þannig er kven­pen­ingur í Banda­ríkj­unum kom­inn á bið, um stund­ar­sakir hið minnsta. Steve Mnuchin, núver­andi fjár­mála­ráð­herra sagði í síð­asta mán­uði að ekk­ert lægi fyrir um hvort unnið verði áfram í mál­inu. Fleiri og meira aðkallandi verk­efni lægju fyrir stjórn­völdum þessi dægrin. Trump sjálfur úti­lok­aði ekki – fyrir kosn­ingar, vel að merkja – að Tubman fengi ein­hvern tíma sess á seðli, en hann væri ekki til­bú­inn að láta Jackson víkja.

Mögulega yrði hún sett á 2$ seð­il­inn.

„Það væri meira við hæfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár