Í þá tíð… Byltingarmanni banað með ísöxi

Bylt­ing­ar­mað­ur­inn rúss­neski Leon Trotský var myrtur með ísöxi af útsend­ara Stalíns árið 1940. Morð­vopnið komst nýlega í hendur safn­ara sem kom því fyrir á safni.

Klíkan sem tók völdin í Rúss­landi eftir bylt­ing­una fyrir réttri öld síðan var skipuð mörgum sví­virði­legum ill­virkjum, en helstu framá­menn­irnir í þessum hópi og sam­böndin þeirra á milli vekja enn áhuga. Það und­ir­strik­að­ist enn nú fyrir skemmstu þegar fréttir bár­ust af því að ísöxin sem notuð var til að bana Leon Trotský kom í ljós eftir að hafa verið týnd í ára­tugi.

Í framvarðarsveit byltingarmanna

Bol­sé­vikar náðu völdum í Rúss­landi árið 1917, nokkru eftir að Nikulás keis­ari hafði verið settur af. Þar fór fremstur í flokki Vladimír Ilýits Úlýanov Lenín, en einn af hans nán­ustu sam­verka­mönnum var fyrr­nefndur Trotský.

Trotský fædd­ist í Úkraínu árið 1879, sonur sæmi­lega stöndugra bænda af gyð­inga­ættum. Þegar Lev Dav­idóvits Bron­stein, eins og hann var nefndur, var níu ára var hann sendur til náms í borg­inni Odessa. Borgin sú var ólík flestum rúss­neskum borgum, suðu­pottur fólks og hug­mynda úr mörgum áttum, og er getum leitt að því að þarna hafi pilt­ur­inn orðið fyrir áhrifum sem gerðu hann að alþjóða­sinna.

Ungur fór Lev Bron­stein að hneigj­ast að Marxisma og tók að starfa með rót­tækum öflum innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Fyrir það var hann fang­els­aður árið 1898 og tveimur árum síðar var hann sendur í útlegð til Síberíu.

Þaðan slapp hann árið 1902 og komst til Englands á fölsuðum skil­ríkjum með nafn­inu Leon Trotský. Í Englandi hitti hann marga skoð­ana­bræður sína sem höfðu flúið Rússland, meðal ann­ars Lenín, en þeir voru framan af á önd­verðum meiði sós­í­al­ism­ans, þar sem Trotský var „men­sé­viki“ og hneigð­ist að lýð­ræð­is­legri aðferðum en Lenín og bol­sé­vikar.

Þegar ástandið í Rúss­landi fór að taka á sig form bylt­ingar árið 1905, eftir fjöldamorð keis­ara­varða á frið­sömum mót­mæl­endum (sem fjallað var um í fyrri pistli), hélt Trotský heim á leið en þegar róst­urnar dofn­uðu var hann aftur sendur í útlegð til Síberíu, þaðan sem hann slapp – aftur – árið 1907.

Næstu tíu ár gerði Trotský víð­reist. Hann bjó í Vín um hríð, var frétta­rit­ari í Balkan­stríð­unum, fór svo til Sviss, Parísar og Spánar. Eins og flestir for­víg­is­menn sós­í­alista var hann and­vígur þátt­töku Rúss­lands í Fyrri heims­styrj­öld­inni. Hann var af þeim sökum rek­inn bæði frá Frakk­landi og Spáni og var staddur í New York þegar fréttir bár­ust af bylt­ing­unni í Rúss­landi.

Trotský hélt þegar af stað aftur til Rúss­lands og eftir að hann hafði skipt yfir í hóp bol­sé­vika varð hann lyk­il­maður í valda­töku þeirra í Petr­ograd (síðar Lenín­grad og nú St. Pét­urs­borg), áður en Lenín sneri sjálfur heim.

Trotský var her­for­ingi bol­sé­vika í átök­unum við stjórn­ar­her Alex­and­ers Ker­en­skýs, sem hafði stýrt rúss­nesku stjórn­inni sem tók við eftir að keis­ar­anum var steypt af stóli.

Eftir að bol­sé­vikar höfðu tekið völdin var Trotský skip­aður utan­rík­is­ráð­herra, og hans fyrsta verk var að hefja vopna­hlé­svið­ræður við Þýska­land og banda­menn þeirra. Eftir að samn­ingar tók­ust tók Trotský að sér að vera yfir­maður her­afl­ans, þar sem hans beið það mikla verk að mynda Rauða her­inn úr rústum keis­ara­hers­ins.

Það gekk að óskum, miðað við að Rauði her­inn vann fulln­að­ar­sigur á Hvít­liðum and-komm­ún­ista í borg­ara­styrj­öld­inni sem lauk 1920. Trotský lagði mikla áherslu á aga og fag­mennsku í röðum hers­ins og réði meira að segja for­ingja úr keis­ara­hernum. Nálgun hans var umdeild og afl­aði hann sér margra óvild­ar­manna innan for­ystu­sveitar komm­ún­ista, meðal ann­ars Stalíns.

Þó var flestum ljóst að Trotský stóð Lenín næst að völdum á þessum tíma. Ekki var hann hið ein­asta for­ingi her­afl­ans, heldur var hann líka einn af fimm með­limum í hinni fyrstu Polit­buro, valda­mestu stofnun Komm­ún­ista­flokks­ins, og var höf­undur stefnu­yf­ir­lýs­ingar Kom­intern, alþjóða­sam­bands komm­ún­ista­flokka árið 1919.

Ókrýnda arftakanum bolað í burtu

Hann var hins vegar ekki eins sleipur póli­tíkus og margir félaga hans, og þegar Lenín veikt­ist árið 1922 tóku hinir þrír með­limir Polit­buro, Grígorí Zinovjeff, Lev Kameneff og Stalín, sig saman gegn honum og mynd­uðu eins konar þrí­veldi, eða tríum­vírat.

Lenín batn­aði nokkuð á tíma­bili og nýtti tím­ann til að rita skýrslu um fram­tíð flokks­ins þar sem hann fór meðal ann­ars yfir mann­kosti helstu und­ir­manna sinna. Þar var­aði hann við upp­gjöri milli Trotskýs og Stalíns og lagði hann meðal ann­ars til að sá síð­ar­nefndi yrði settur af sem aðal­rit­ari flokks­ins.

[adspot]

Það kom hins vegar ekki til fram­kvæmda – aug­ljós­lega – og eftir að annað heila­blóð­fall lagði Lenín að velli árið 1923, var Stalín búinn að tryggja ítök sín innan flokks­ins og stjórn­kerf­is­ins.

Umsvifa­laust var farið að grafa undan Trotský á vett­vangi flokks­ins. Stefna hans um alþjóð­lega bylt­ing­ar­hreyf­ingu sós­í­alista og „var­an­lega bylt­ingu“ var töluð niður sem trú­villa úr her­búðum men­sé­vika og lítið var gert úr fram­lagi hans til bylt­ing­ar­innar.

Loks var honum bolað úr stól sem hern­að­ar­kommisar árið 1925 og næstu miss­eri var hann rek­inn úr Polit­buro, mið­stjórn flokks­ins og loks flokknum sjálfum.

Útlegð

Árið 1928 var Trotský sendur í útlegð til Kasakstan og ári síðar var hann rek­inn úr landi. Hann kom sér fyrst fyrir í Tyrk­landi, þá Frakk­landi og Noregi, en þegar honum var ekki lengur vært þar, sökum þrýst­ings frá Sov­ét­ríkj­unum kom hann sér til Mexíkó árið 1936.

Í hreins­un­unum sem Stalín stóð fyrir á næstu árum voru stuðn­ings­menn Trotskýs ræstir út úr stjórn­kerf­inu, og Trotský sjálfur dæmdur fjar­ver­andi fyrir land­ráð.

Trotský hafði komið sér, konu sinni Natalíu og börnum fyrir í úthverfi Mexík­ó­borgar og vann þar við skriftir og að fram­gangi sós­í­al­ism­ans og var óspar á gagn­rýni á Stalín. Hann var meðal ann­ars í nánum sam­skiptum við lista­manna­hjónin Diego Rivera og Fridu Kahlo, sem höfðu haft milli­göngu um að Trotský var boðið hæli í Mexíkó.

Myrtur í annarri tilraun

Stalín gat ekki unað fjanda sínum það að reyna að grafa undan sér og sam­þykkti árið 1939 áætlun um að ráða Trotský af dögum.

Áætlunin var tví­þætt. Annars vegar var mexíkóskur lista­maður, David Alfaro Siqueiros að nafni, sem var einnig útsend­ari NKVD (for­vera KGB) lát­inn fara fyrir sveit byssu­manna sem dul­bjó sig sem lög­reglu­menn. Þeir létu byssu­kúlum rigna yfir hús fjöl­skyld­unnar nótt eina í maí árið 1940, en Trotský og kona hans sluppu ómeidd.

Hins vegar var ungur Spán­verji, Ramon Mercader, til­bú­inn til að klára verkið. Sá hafði verið feng­inn til að flytja til Mexíkó tveimur árum áður og koma sér í mjúk­inn hjá Trotský.

Þremur mán­uðum eftir fyrra til­ræðið kom Mercader að húsi Trotskýs, einu sinni sem oftar, nema nú sagði hann við líf­verð­ina að hann hafi ritað grein sem hann vildi bera undir „hinn gamla“ eins og hann sagði.

Mercader kom vopn­aður byssu, hníf og ísöxi sem hann faldi í sam­an­brotnum frakka sem hann hafði undir hend­inni. Hann ætl­aði sér að sleppa eftir verkn­að­inn og því vildi hann forð­ast í lengstu lög að nota byss­una.

Trotský hleypti unga mann­inum inn og sett­ist niður við skrif­borð sitt til að lesa grein­ina. Mercader beið ekki boð­anna og keyrði öxina í höfuð Trotskýs. Áætlunin gekk hins vegar ekki upp því að Trotský rak upp óp og réð­ist á Mercader. Verð­irnir komu fljótt aðvíf­andi og börðu árás­armann­inn nær til ólífis, en Trotský kall­aði á þá að drepa hann ekki. „Ekki drepa hann! Hann verður að tala!“ á hann að hafa sagt.

Trotský lést af sárum sínum dag­inn eftir, 60 ára að aldri, en Mercader var dæmdur til 20 ára fang­els­is­vistar. Sov­ét­ríkin sóru af sér öll tengsl við morðið, en eftir að Mercader var sleppt úr haldi var honum boðið til Kúbu þar sem hann lést árið 1978.

Roquella, eig­in­kona hans, sagði að síð­ustu orð hans á dán­ar­beð­inu hafi verið „Ég heyri það stöðugt. Ég heyri öskrið. Ég veit að hann bíður mín hinum megin.“

Öxin finnst

Ísöxin var, eins og önnur sönn­un­ar­gögn í mál­inu, í vörslu lög­regl­unnar þar til að lög­reglu­maður einn, Alfredo Salas, tók hana með sér heim, að eigin sögn í þeim til­gangi að varð­veita hana. Hann gaf dóttur sinni hana og sú geymdi öxina undir rúmi sínu í 40 ár.

Dóttirin Ana vildi fá eitt­hvað fyrir sinn snúð og banda­rískur safn­ari, Keith Melton, sem hafði leitað að öxinni um áraraðir, keypti hana loks og hefur nú komið henni fyrir á safni.

Melton seg­ist full­viss um að þetta sé öxin, enda sé hún af sömu stærð og gerð og vopnið og auk þess sjá­ist enn merki eftir blóð­ugt fingrafar morð­ingj­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár