Tímamót í íslensku samfélagi - Umburðarlyndi gagnvart kynbundnu ofbeldi ekki liðið lengur

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands segir í ályktun að sam­fé­lagið hafi ekki lengur umburð­ar­lyndi gagn­vart kyn­bundnu ofbeldi og að fréttir dags­ins séu því tíma­mót fyrir Íslend­inga.

Tímamót áttu sér stað í íslensku sam­fé­lagi í gær­kvöldi þegar rík­is­stjórn lands­ins féll, ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings atvinnu­stjórn­mála­manna, heldur vegna þess að konur höfðu hátt. Fólk hafði hátt. Þetta kemur fram í ályktun sem Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands sendi frá sér nú rétt fyrir hádegi. Þar kemur enn­fremur fram að fólk hafi haft hátt um ofbeldi sem konur og börn voru beitt. „Fólk hafði hátt þegar dæmdir ofbeld­is­menn bönk­uðu á dyr hjá vinum sínum til að biðja um greiða, til að leita sam­trygg­ing­ar­innar. Fólk hafði hátt þegar skrifræðið stimpl­aði hugs­un­ar­laust á papp­íra sem veittu ofbeld­is­mönnum upp­reist æru, án umræðu, án gagn­sæis,“ segir í álykt­un­inni.

Ástæða álykt­un­ar­innar er að stjórn Bjartrar fram­tíðar kom saman í gær­kvöldi til að ræða stöð­una sem komin var upp eftir að í ljós kom að faðir for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði undir með­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar um að hann fengi upp­reist æru. Í fram­hald­inu sleit Björt fram­tíð rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Hjalti Sigurjón Hauksson fékk upp­reist æru fyrr á árinu en hann hlaut á sínum tíma fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir barn­a­níð. Hann braut gróf­lega gegn stjúp­dóttur sinni, nær dag­lega, frá því hún var fimm til sex ára og þar til hún var á átj­ánda ald­ursári.

Mikil umræða hefur verið síðan í sumar um ferlið sem upp­reist æra felur í sér og hafa fórn­ar­lömb stigið fram og mót­mælt ferl­inu öllu. Helst hefur borið á frétta­flutn­ingi af málum þeirra Roberts Downey og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. Mikið hefur verið rætt um hvort þörf sé á að auka gagn­sæi og breyta jafn­vel ferl­inu öllu. Myllu­merkið #höf­um­hátt hefur farið eins og eldur í sinu í netheimum og margir látið í sér heyra til að mót­mæla.

Í ályktun Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands kemur einnig fram að Íslend­ingar sem sam­fé­lag hafi ekki lengur umburð­ar­lyndi fyrir kyn­bundnu ofbeldi, fyrir ofbeldi gegn konum og börnum. Allt of lengi hafi ríkt þöggun í land­inu um þá stað­reynd að stór hluti kvenna og barna verði fyrir ofbeldi af hálfu þeirra sem næst þeim standa og séu ekki örugg á þeim stað sem þau ættu að vera örugg­ust á, á heim­ilum sínum.

„Við erum full­södd á kerfi sem verndar ofbeld­is­menn og er sama um þolendur. Ofbeldi gegn konum er bein ógn við lýð­ræð­is­lega þátt­töku kvenna og þar með við lýð­ræði lands­ins. Hvernig getum við byggt jafn­rétt og fram­sýnt sam­fé­lag, þegar við getum ekki enn tryggt öryggi allra borg­ara?

Tökum nú saman höndum, hægri og vinstri, konur og karlar og við öll þar á milli, og sköpum saman sam­fé­lag sem við erum stolt af, sam­fé­lag sem sam­tryggir okkur öll, ekki bara suma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

höfumhátt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár