Framlög til Persónuverndar tvöfölduð

Í tækni­væddum heimi eru mál sem varða per­sónu­frelsi og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga sífellt að verða umfangs­meiri.

Framlög til Per­sónu­verndar munu tæp­lega tvö­fald­ast á næsta ári, sam­kvæmt nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi. Fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar fara úr 117,3 millj­ónum á þessu ári í 209 millj­ónir á næsta ári.

Ástæðan fyrir þess­ari hækkun er meðal ann­ars breytt og umfangs­meira hlut­verkt Per­sónu­verndar vegna breyt­ingar á Evr­ópu­lög­gjöf sem varðar per­sónu­vernd­ar­mál og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga. Samkvæmt lög­gjöf­inni munu fyr­ir­tæki og stofn­unar þurfa að til­efna svo­nefndan per­sónu­vernd­ar­full­trúa, og mun Per­sónu­vernd ann­ast und­ir­bún­ing og fræðslu­starf vegna þess­ara miklu breyt­inga sem eru í far­vatn­inu.

Þá kemur fram í upp­lýs­ingum með fjár­laga­frum­varp­inu að fjölga þurfi starfs­mönnum Per­sónu­verndar umtals­vert til að anna þeim störfum breytt lög­gjöf kallar á.

Rík­is­sjóður verður rek­inn með 44 millj­arða króna afgangi á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 sem var kynnt í gær­morg­un. Afgangur fyrir vexti verður 104 millj­arðar króna en rík­is­sjóður mun greiða 73 millj­arða króna í vexti á árinu 2018, sam­kvæmt frum­varp­inu.

Á móti hefur ríkið einnig vaxta­tekjur upp á 12 millj­arða króna. Alls verða tekur rík­is­sjóðs 834 millj­arðar króna en gjöld 790 millj­arðar króna. Þar kemur einnig fram að ferða­þjón­usta fari í almennt þrep virð­is­auka­skatts í jan­úar 2019, en áður hafði verið gert ráð fyrir að það myndi ger­ast um mitt næsta ár. Á sama tíma mun almenna virð­is­auka­skatts­þrepið lækka úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent.

Á meðal helstu áherslu­mála í fjár­laga­frum­varp­inu eru að tekju­trygg­ing hækk­ar, stofn­styrkir til bygg­ingar almennra íbúða verða þrír millj­arðar króna og stuðn­ingur við fyrstu íbúð­ar­kaup verður festur í sessi. Hæstu greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi munu hækka úr 500 í 520 þús­und krónur og fram­lög vegna mót­töku flótta­manna verða þre­föld­uð.

Í til­kynn­ingu segir að hugað verði sér­stak­lega að geð­heil­brigð­is­málum í kerf­inu og að bygg­ing nýs Land­spít­ala muni hefj­ast á seinni hluta árs­ins 2018 þegar vinna við með­ferða­kjarna við Hring­braut hefst. Fram­lög til bygg­ingar spít­al­ans munu verða 2,8 millj­arðar króna á næsta ári og alls munu heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­út­gjöld hækka um 4,6 pró­sent umfram launa- og verð­lags­þró­un.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár