Í þá tíð… Árás Aum Shinrikyo

Þrettán lét­ust í hryðju­verka­árás sem sér­trú­ar­söfn­uð­ur­inn Aum Shin­rikyo gerði á lestarfar­þega i Tokyo.

Fórnarlamb hryðjuverkaárásarinnar í Tókýó flutt af vettvangi. Þrettán létu lífið í árásinni sem sértrúarsöfnuðurinn Aum Shinrikyo stóð fyrir, og þúsundir veiktust.
Fórn­ar­lamb hryðju­verka­árás­ar­innar í Tókýó flutt af vett­vangi. Þrettán létu lífið í árásinni sem sér­trú­ar­söfn­uð­ur­inn Aum Shin­rikyo stóð fyrir, og þús­undir veikt­ust.

Hryðju­verka­menn og aðrir ill­virkjar sem helga krafta sína því að vinna öðrum – oftar en ekki sak­lausu fólki – mein, þykj­ast oft­ast vera að vinna í þágu ein­hverra trú­ar­bragða. Gjörðir slíkra manna eru hins vegar yfir­leitt afbökun eða afskræm­ing á gam­al­grónum kenni­setn­ingum, og eiga fátt sam­eig­in­legt með grund­vall­ar­boð­skap þeirra.

Svo eru einnig til­vik þar sem trú­ar­hópar eru gagn­gert sam­an­settir með tor­tím­ingu í huga og draga jafn­val að sér fylgj­endur á þeim grund­velli.

Einn af þeim hópum er jap­anski sér­trú­ar­söfn­uð­ur­inn Aum Shin­rikyo sem taldi á sínum tíma tugir þús­unda með­lima, en er í dag helst þekktur fyrir kaldrifjuð hryðju­verk sem framin voru í hans nafni á tíunda ára­tugnum.

Búddismi í bland við heimsendaboðskap

Upphaf Aum Shin­rikyo (sem mætti þýða sem „Hinn mikli sann­leikur Aum“) má rekja aftur til níunda ára­tug­ar­ins, senni­lega um 1984, þegar Shoko Asahara (sem hét áður Chizuo Matsum­oto) stofn­aði hóp sem hugs­aður var til iðk­unar til hug­leiðslu og jóga. Kenn­ingar Asaharas, sem byggðu að mestu á búdd­isma, í bland við hindúsima og kristni, hlutu þó nokkurn hljóm­grunn og fjölg­aði skarpt í fylgj­enda­hópi hans og í kjöl­farið birt­ust við­töl við hann í fjöl­miðlum og hann var beð­inn um að flytja fyr­ir­lestra í háskólum og víðar.

Ákveðin þátta­skil urðu í Aum Shin­rikyo árið 1992 þegar Asahara gaf út bók til grund­vallar trú­ar­bragð­anna, en þar gaf hann veru­lega í hvað varð­aði heimsenda­spár sem hann sótti í Opin­ber­un­ar­bók Bibl­í­unnar og rit Nostradamusar, og lýsti því yfir að hann væri eins konar „kristur“ sem væri þess umkom­inn að taka á sig syndir mann­kyns.

Eins og oft vill vera þegar trú­ar­leið­togar boða yfir­vof­andi heimsenda, sem í þessu til­viki átti að bera til með kjarn­orku­styrj­öld sem Banda­ríkin kæmu af stað, var svar Asaharas ein­falt; áhan­gendur Aum Shin­rikyo kæmust einir af, en aðeins ef þeir legðu traust sitt á Asahara og guð­lega krafta hans. Þessi hild­ar­leikur átti að eiga sér stað árið 1997 sam­kvæmt spá leið­tog­ans.

Skuggahliðar koma í ljós

Þegar þarna var komið hafði þegar staðið nokkur styr um starf­semi Aum Shin­rikyo, þar sem grunur lék á um að margir með­limir hefðu verið ginntir til aðildar og að þar væri margs konar kúgun í gangi.

Lögmaður einn, Tsutsumi Sakamoto að nafni, hafði meðal ann­ars hafið und­ir­bún­ing að hóp­mál­sókn gegn hópnum í nafni meintra þolenda ofríkis. Árið 1989, áður en málið komst á flug voru Sakamoto, eig­in­kona hans og barn hins vegar myrt af útsend­urum Asaharas og spurð­ist ekk­ert til þeirra fyrr en að lík þeirra fund­ust árið 1995, en þá hafði tals­vert dregið til tíð­inda.

Auk þess er talið að Asahara hafi látið ráða fjölda and­stæð­inga Aum Shin­rikyo af dögum og margir aðrir særð­ust eða veikt­ust eftir til­raunir til slíks.

Á þessum árum gerð­ist Asahara mun her­skárri og hóf að byggja upp vopna­búr til að búa sitt fólk undir yfir­vof­andi hild­ar­leik. Hann lagði sér­staka áherslu á að fá til liðs við sig vís­inda­menn sem unnu að gerð eit­urs og efna­vopna, t.d. tauga­eit­urs­ins sar­íns. Sarín var fyrst þróað sem skor­dýra­eitur í Þýska­landi á fjórða ára­tugi síð­ustu aldar, en síðar nýtt til gerðar efna­vopna fyrir her Þriðja rík­is­ins. Fleiri ríki tóku það svo upp eftir því sem á leið og not­aði Saddam Hussein Íraks­for­seti það meðal ann­ars gegn Kúrdum í eigin landi og í hern­aði gegn Íran undir lok níunda ára­tug­ar­ins. Sarín er eitt virkasta tauga­eitur sem til er, þar sem dropi á stærð við títu­prjóns­haus getur orðið full­orðum ein­stak­lingi að ald­urtila.

Það var svo í júní 1994 þegar Aum Shin­rikyo lét fyrst til skarar skríða. Í borg­inni Matsum­oto, rétt vestur af Tókýó, komu útsend­arar fyrir vöru­bíl sem var útbú­inn til að sprauta sar­íni yfir hús þar sem voru til húsa dóm­arar sem höfðu til með­ferðar dóms­mál gegn söfn­uð­inum vegna fast­eigna­deilna.

Það gekk eftir og eit­ur­ský lagð­ist yfir hverfið og kost­aði sjö manns­líf auk þess sem 150 aðrir urðu fyrir áhrifum af gas­inu.

Þótt grunur félli á Aum Shin­rikyo var eng­inn liðs­maður hand­tek­inn og Asahara gat haldið áfram skipu­lagn­ingu næsta grimmd­ar­verks.

Hryllingur á lestarstöðinni

Snemma árs 1995 til­kynnti Asahara fylgj­endum sínum að Þriðja heims­styrj­öldin væri hafin, og með því aðdrag­and­inn að tor­tím­ingu heims­ins, eins og spáð hafði verið fyrir.

Næsta skref Aum Shin­rikyo var árás á almenn­ing í neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfi Tókýó, sem flutti dag­lega um fjórar millj­ónir far­þega.

Það var svo að morgni mánu­dags­ins 20. mars 1995, á háanna­tíma, að fimm með­limir – Ikuo Hayashi, Kenichi Hirose, Toru Toyoda, Masato Yokoyama og Yasuo Hayashi – karlar á aldr­inum 27 til 48 ára, stigu hver upp í sína lest sem allar stefndu í átt að mið­borg Tókýó. Þeir höfðu með­ferðis um lítra af fljót­andi sar­íni hver, í plast­poka sem var vaf­inn inn í dag­blað. Þegar dyr lest­ar­innar opn­uð­ust á fyr­ir­fram ákveð­inni stöð, stungu þeir gat á pok­ana með regn­hlíf­ar­oddum sem höfðu verið sér­stak­lega brýndir til þess arna, og ruku svo af vett­vangi á meðan rok­gjarnt eitrið leyst­ist upp og dreifð­ist um lest­ar­vagn­inn og ganga lest­ar­stöðv­ar­innar. Lest­irnar héldu svo áfram á næstu stöð og svo koll af kolli og alltaf komust fleiri í snert­ingu við eitrið Til að koma í veg fyrir að verða sjálfir sar­íni að bráð tóku þeir inn móteitur.

Hrylli­legar afleið­ingar sar­íns­ins voru fljótar að koma fram þar sem far­þegar stóðu fljótt á önd­inni, blind­aðir og ofsa­hræðsla greip um sig. Um síðir varð nær­stöddum ljóst hver upp­tökin voru og lest­irnar voru stöðv­aðar, mis­fljótt þó. Í tveimur til­vikum stukku starfs­menn lest­anna til og fjar­lægðu pok­ana úr lest­ar­vögn­unum og guldu fyrir með lífi sínu. Í einni lest­inni spark­aði far­þegi eit­ur­pok­anum út um opnar dyrnar og út á lestar­pall­inn þar sem fjórir nær­staddir lét­ust.

Þegar yfir lauk voru tólf látnir og sá þrett­ándi lést síðar af völdum eit­urs­ins. Um 5.500 manns þurftu á lækn­is­hjálp að halda og þó að flestir þeirra hafi náð sér að fullu voru margir sem urðu fyrir var­an­legum skaða. Afleið­ing­arnar hefðu þó getað orðið ennþá verri ef Aum-liðar hefðu beitt þró­aðri aðferðum til að dreifa eitr­inu, en rann­sóknir gefa til kynna að tugir þús­unda hefðu getað lát­ist.

Böndin berast að Aum Shinrikyo

Rannsókn hófst strax, eins og gefur að skilja, og ekki leið á löngu fyrr en böndin tóku að ber­ast að Aum Shin­rikyo, sér­stak­lega í ljósi fyrri til­ræða sem gat hér að ofan.

Tveimur dögum eftir hryðju­verkin gerði lög­reglan áhlaup á skrif­stofur safn­að­ar­ins og rann­sókn­ar­stofu þar sem fund­ust fjöl­mörg ílát undan efnum sem höfðu verið notuð til að fram­leiða sar­ínið. Í maí voru Asahara Shoko og á annan tug ann­arra for­víg­is­manna Aum Shin­rikyo um allt Japan, hand­teknir í tengslum við málið.

Eftir lang­vinn rétt­ar­höld þar sem 189 manns voru ákærðir, voru síð­ustu dóm­arnir kveðnir upp árið 2004. Alls voru þrettán dæmdir til dauða, þar á meðal Asahara Shoko sjálfur (sem hélt því fram að und­ir­menn sínir hefðu skipu­lagt árás­ina án hans vit­undar), fimm fengu lífs­tíð­ar­fang­elsi og 80 aðrir fengu mis­langa fang­els­is­dóma. 87 fengu skil­orðs­bundna dóma, tveir voru dæmdir til greiðslu sekta og einn ein­asti var sýkn­aður.

Enginn dauða­dómur hefur enn verið fulln­u­staður yfir Aum Shin­rikyo-liðum eins og sakir standa, en Japan er eitt fárra í hópi helstu iðn­ríkja heims sem enn leggja stund á dauða­refs­ingar. Frá alda­mótum hafa 74 fangar verið teknir af lífi með heng­ingu, eins og tíðkast þar í landi.

Á meðan Asahara Shoko situr í haldi, rúm­lega sex­tugur að aldri, er söfn­uður hans klof­inn, en enn virkur. Félags­skap­ur­inn, undir merkjum „Aleph“ og „Hikari No Wa“, telur nú á annað eða þriðja þús­und með­limi að því talið er, og er ennþá undir ströngu eft­ir­liti yfir­valda.

Þetta var mann­skæð­asta árás sem gerði hafði verið í Japan (eða á Japan) frá því að kjarn­orku­sprengj­unum var varpað á Hírosíma og Nagasakí undir lok seinni heims­styrj­ald­ar­innar, og skilur eftir sig djúp sár í þjóð­ar­vit­und Japana. Til að mynda var nú í vor, þegar 22 ár voru frá atburð­unum, vígt minn­is­merki um þá sem féllu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár