Hagar áfrýja ekki úrskurði Samkeppniseftirlitsins

Hagar eru ósam­mála for­sendum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins en telja að áfrýj­un­ar­nefnd kom­ist að sömu nið­ur­stöðu.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, hringir bjöllunni í Kauphöllinni.
Finnur Árnason, for­stjóri Haga, hringir bjöll­unni í Kaup­höll­inni. Mynd: Kjarninn.

Stjórn smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Haga hefur ákveðið að áfrýja ekki nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að hafna sam­runa Haga og Lyfju síðan 17. júlí síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar í dag.

Hagar telja að sama nið­ur­staða muni koma úr áfrýj­un­ar­ferl­inu, enda „er ljóst að nið­ur­staða áfrýj­un­ar­nefndar myndi að mestu byggja á end­ur­skoðun á þeim upp­lýs­ingum sem þegar hefur verið aflað af eft­ir­lit­inu“, eins og segir í til­kynn­ing­unni sem barst í dag.

„Það er mat Haga að með ákvörðun sinni hafi Sam­keppn­is­eft­ir­litið svipt neyt­endur þeim ávinn­ingi sem sam­run­inn gaf færi á, m.a. með lægra vöru­verði og betra aðgengi að vörum,“ segir enn­fremur í til­kynn­ing­unni.

Kaup­samn­ing­ur­inn hafði verið und­ir­rit­aður með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leika­könn­unar og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að því er segir í til­kynn­ing­u frá Högum til Kaup­hall­ar­innar sem barst 17. júlí. Fyr­ir­vörum vegna nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar var aflétt í apríl sl., en Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur nú með úrskurði hafnað sam­run­an­um. „Nið­ur­staðan er von­brigði og mun félagið taka hana til sér­stakrar skoð­unar næstu daga. Þá ber að árétta að Hagar höfðu ekki tekið við rekstri Lyfju og mun ákvörð­unin því ekki hafa áhrif á áður birt reikn­ings­skil félags­ins,“ segir í til­kynn­ing­unn­i.

Hnýta í rannsóknina

Hagar eru því ósa­mála að for­sendur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir því að hafna sam­run­anum stand­ist í dag. Í til­kynn­ing­unni segir: „Sam­keppn­is­eft­ir­litið kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Hagar séu enn í mark­aðs­ráð­andi stöðu á dag­vöru­mark­aði og byggir þar að mestu á 10 ára gam­alli ákvörðun sinni frá árinu 2008. Enginn þeirra þriggja meg­in­þátta sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði til grund­vallar þeirri ákvörðun á við í dag.“

Kjarninn sagði frá úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 18. júlí. Þar voru eft­ir­taldir punktar nefndir sem ástæður ógild­ingar sam­runa Haga við Lyfju:

Staða á mörk­uðum sem Hagar og Lyfja starfa bæði á:

„Rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að fyr­ir­tækin eru nánir keppi­nautar í smá­sölu á hrein­læt­is- og snyrti­vörum, mark­aði fyrir vítamín, bæti­efni og stein­efni og mark­aði fyrir mat- og drykkj­ar­vörur í flokki heilsu­vara.“

„Við sam­run­ann hefði sam­keppni milli fyr­ir­tækj­anna horfið og á sumum lands­væðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefði hið sam­ein­aða fyr­ir­tæki verið eini smá­sal­inn á umræddum vöru­m“.

Mark­aðs­ráð­andi staða Haga á dag­vöru­mark­aði:

„Rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiðir enn­fremur í ljós að sam­run­inn hefði styrkt mark­aðs­ráð­andi stöðu Haga. Sú styrk­ing hefði fyrst og fremst birst í auknum inn­kaupa­styrk hins sam­ein­aða félags, sam­þætt­ingu versl­ana, stað­setn­ingu versl­ana og mögu­leikum á auknu vöru­fram­boði í versl­unum Lyfju.“

Áhrif Costco:

„Það er nið­ur­staða þess­arar rann­sóknar að opnun og til­vist Costco á íslenskum mark­aði hafi tak­mörkuð áhrif á þá mark­aði sem Hagar og Lyfja starfa bæði á, þ.e. einkum á hrein­læt­is- og snyrti­vöru­mark­að­i.“

„Nið­ur­staða þessa máls verður því ekki reist á þeirri for­sendu að Hagar séu ekki lengur í mark­aðs­ráð­andi stöðu eða að sú breyt­ing verði á næst­unni. Í þessu sam­bandi er Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­mála Högum og öðrum mark­aðs­að­ilum sem hafa lýst því yfir að of snemmt sé að segja til um hvaða áhrif Costco muni hafa hér á landi til lengri tíma lit­ið.“

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að Hagar hafi lagt fram til­lögur að skil­yrðum til þess að koma í veg fyrir sam­keppn­is­rösk­un­um. Þessar til­lögur hafi hins vegar ekki verið nægar að mati Sam­keppn­is­yf­ir­lits­ins.

Í lok til­kynn­ing­ar­innar segir Pál Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins:

„Al­menn­ingur á Íslandi á að njóta lægra verðs og betri þjón­ustu á mik­il­vægum neyt­enda­mörk­uð­um, á grund­velli virkrar sam­keppni. Sam­runa­reglum sam­keppn­islaga er m.a. ætlað að tryggja þetta. Rann­sókn okkar sýnir að þessi sam­runi hefði verið skref í öfuga átt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár