Bandaríkin refsa Maduro fyrir valdagræðgi

Líklegt er að banda­rísk stjórn­völd muni herða við­skipta­þving­anir við Venes­ú­ela, hætti Nicolás Maduro ekki við fyr­ir­huguð áform sín. Slíkt getur haft slæmar afleið­ingar fyrir bæði löndin.

Nicolás Maduro, forseti Venesúela, fyrr í vikunni.
Nicolás Maduro, for­seti Venes­ú­ela, fyrr í vik­unni. Mynd: EPA

Svo virð­ist sem banda­rísk stjórn­völd ætli sér að setja upp frek­ari við­skipta­þving­anir gegn Venes­ú­ela ef Nicolás Maduro, for­seti lands­ins, reynir að breyta stjórn­ar­skrá lands­ins. Við­skipta­þving­an­irnar gætu haft nei­kvæð áhrif, ekki ein­ungis á lamaðan efna­hag Venes­ú­ela, heldur einnig Banda­ríkin. Þetta kom fram í frétt á vef New York Times í gær.

Á mið­viku­dag­inn var greint frá því að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hafi sett á við­skipta­bann hjá 13 núver­andi og fyrr­ver­andi venes­ú­elskum rík­is­stjórn­ar­með­limum vegna fyr­ir­hug­aðra ein­ræð­istil­burða for­set­ans þar í landi, Nicolás Maduro. Maduro hyggst skipa í stjórn­laga­ráð næsta sunnu­dag, en Banda­ríkja­stjórn telur ráðið muni koma stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í gegn sem gefa Maduro auknar vald­heim­ildir.

Ekki er talið að umrætt við­skipta­bann muni hafa efna­hags­leg áhrif, en sam­kvæmt Mnuchin verða auknar við­skipta­þving­anir við Venes­ú­ela mögu­lega settar á hætti Maduro ekki við skipan ráðs­ins.

Mikið í húfi

Mikil verð­mæti eru í húfi ef af þving­un­unum verður í báðum lönd­unum. Umfangs­mikil olíu­við­skipti eru milli land­anna, en olía Venes­ú­ela er gróf og lítið unnin og Banda­ríkin er eitt fárra ríkja sem hefur nógu góðar olíu­hreinsi­stöðvar fyrir hana. Verði af við­skipta­banni milli land­anna myndi því rík­is­rekni olíu­fram­leið­andi Venes­ú­ela, PDVSA, missa sinn stærsta við­skipta­vin.

Sömu­leiðis myndu þving­anir hafa nei­kvæð áhrif á utan­rík­is­við­skipti í Banda­ríkj­unum, en venes­ú­elsk olía nemur einum tíunda af heild­ar­inn­flutn­ingi þar í landi.

Enn fremur, ef Banda­ríkja­menn hætta að kaupa olíu frá Venes­ú­ela mætti búast við hækk­andi heims­mark­aðs­verði á olíu. Hækkandi olíu­verð myndi hafa jákvæð áhrif á olíu­fram­leiðslu­löndin Íran og Rússland og drægi þannig úr nei­kvæðum áhrifum við­skipta­þving­ana Banda­ríkj­anna við þau.

Samkvæmt frétt NYT myndu nei­kvæð efna­hags­á­hrif í Venes­ú­ela einnig smit­ast til Banda­ríkj­anna að ein­hverju leyti, en David L. Goldwyn, sendi­herra orku­mála í fyrri rík­is­stjórn Obama, sagði í sam­tali við NYT að harðar við­skipta­þving­anir gætu leitt til flótta­manna­bylgju til Banda­ríkj­anna.

Ógnaröld í Venesúela

Ógnaröld ríkir í Venes­ú­ela núna, en tugir þús­undir íbúa lands­ins hafa flúið til nágranna­landa á meðan hag­kerfi lands­ins eru rjúk­andi rústir og ofbeldi og hungur fær­ist í auk­ana. Kreppa hefur ríkt í land­inu vegna lágs hrá­vöru­verðs und­an­far­inna ára, en stjórn­völd þar í landi hafa einnig sætt mik­illi gagn­rýni fyrir seðla­prentun og yfir­tökur rík­is­ins á ýmsum fyr­ir­tækjum.

Útflutn­ingur lands­ins hefur beðið hnekki vegna ástands­ins á síð­ustu árum. Til að mynda hefur inn­flutn­ingur á vörum frá Venes­ú­ela til Íslands snar­lækkað, en sam­tals hefur verið flutt inn að and­virði 400 millj­óna króna í fyrra, miðað við rúma 6 millj­arða árið 2015.

Líklegt er að Maduro muni skipa í stjórn­laga­ráð þvert á við­var­anir Banda­ríkja­manna, ef marka má nýleg orð hans: „(Ef Trump) hefur vogað sér að segja nei við skipun stjórn­laga­ráðs, þá svörum við: „já, já, já – stjórn­laga­ráðið mun koma saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár