Keypti fyrir 2,3 milljarða af skattakóngi og konu hans

Fram­taks­sjóður Lands­bréfa keypti fyr­ir­tæki Gísla J. Frið­jóns­sonar og konu hans á rúma 2,3 millj­arða í fyrra.

Hagvagnar, sem eru í eigu Gísla, sjá um rekstur á strætisvögnum
Hag­vagnar, sem eru í eigu Gísla, sjá um rekstur á stræt­is­vögnum Mynd: Mynd. Strætó.

Horn III, fram­taks­sjóður í rekstri Lands­bréfa keypti félögin Hagvagna, Hópbíla og Hvaleyri fyrir rúma 2,3 millj­arða í fyrra. Félögin voru öll í eigu Gísla J. Frið­jóns­sonar, skatta­kóngs Íslands, og Hafdísar Alex­and­ers­dóttur, konu hans. Þetta kom fram í Mark­aðnum í Frétta­blað­inu í dag.

Samkvæmt frétt Mark­aðs­ins kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi sjóðs­ins að 207 millj­óna króna tap hafi orðið af rekstri Horns III í fyrra. Sjóð­ur­inn hafi farið í tvennar stórar fjár­fest­ingar, ann­ars vegar keypi það 80% hlut í Basko á rúm­lega 1,5 millj­arða króna og hins vegar hóp­bif­reiða­fyr­ir­tækin í eigu Gísla og Hafdísar á rúma 2,3 millj­arða króna.

[adspot]

Basko, sem sjóð­ur­inn keypti hlut í, á rekstr­ar­fé­lag Tíu ell­efu hf., Ísland verslun hf. og Imtex ehf. Meðal versl­ana sem heyra undir þessi félög eru Dunkin’ Donuts, Bad Boys Burgers & Grill, versl­anir Iceland og 10-11.

Kjarninn greindi frá því í júní að Gísli J. Frið­jóns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Hópbíla, sé skatta­kóngur Íslands, en hann greiddi 570,5 millj­ónir króna í opin­ber gjöld í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár