Vilja hætta við beinar niðurgreiðslur til innanlandsflugs

Vinnu­hópur inn­an­rík­is­ráð­herra birti skýrslu á föstu­dag­inn þar sem breyt­ingar á greiðslu­fyr­ir­komu­lagi inn­an­lands­flugs voru viðr­aðar. Meðal ann­ars leggur hóp­ur­inn til að hætta skuli við beinar greiðslur rík­is­ins til inn­an­lands­flugs.

Jón Gunnarsson, samgöngumálaráðherra
Jón Gunn­ars­son, sam­göngu­mála­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinnu­hópur sem skip­aður var af Ólöfu Nordal, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, birti skýrslu á föstu­dag­inn um breyt­ingar á rekstr­ar­fyr­ir­komu­lagi inn­an­lands­flug­valla. Í henni segir að gera eigi stærstu flug­vell­ina fjár­hags­lega sjálf­stæða þannig að not­enda­gjöld flug­vall­anna end­ur­spegli í auknum mæli raun­kostnað við rekstur þeirra.

Núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag á inn­an­lands­flug­völlum er byggt á því að inn­an­lands­flug­vell­irnir eru fjár­magn­aðir að stærstum hluta með þjón­ustu­samn­ingi við ríkið. Vinnu­hóp­ur­inn leggur til í skýrsl­unni að hætt verði við þá samn­inga en að fjár­magn rík­is­ins renni að mestu í sér­tæk­ari styrki.

Þar sem þjón­ustu­gjöld far­þega séu ekki bein­tengd kostn­aði á inn­an­lands­flug­völlum geri not­endur þeirra oft ýmsar kostn­að­ar­samar kröfur til flug­vall­anna, sam­kvæmt skýrsl­unni. Með því að byggja verð­skrá á raun­kostn­aði væri hins vegar hægt að auka kostn­að­ar­vit­und flug­rek­enda og bæta hag­kvæmni í rekstri þeirra.

Í stað þjón­ustu­samn­ings ríkis við flug­valla­rek­anda yrðu ein­ungis valdar flug­leiðir eða ákveðnir far­þegar styrktir með sér­tækri nið­ur­greiðslu á flug­miðum. Val á umræddum flug­leiðum eða far­þegum væri svo í höndum ráðu­neyt­is­ins eftir því hvar væri mest þörf á að halda uppi styrkjum.

Ekki er litið á breyt­ing­arnar sem nið­ur­skurð­ar­að­gerðir, búist er við því að fram­lag rík­is­ins til flug­sam­ganga yrði óbreytt. Hins vegar yrði kostn­að­ar­byrði inn­an­lands­flug­vall­anna færð yfir á not­endur og rekstur þeirra gerður sjálf­bær­ari í auknum mæli. Samkvæmt vinnu­hópnum munu breyt­ing­arnar tryggja almenn­ingi aðgang að flug­sam­göngum á „verði sem hann er til­bú­inn að greiða.“

Viðraðar eru hug­myndir að halda áfram nið­ur­greiðslum á íslenskum far­þegum en að erlendir ferða­menn borgi fullt verð. Samkvæmt skýrsl­unni sé það „rök­rétt“ í ljósi þess að ferða­mönnum fjölgi mikið og vilji til að auka gjald­töku af þeim eykst. 

Með því að gera rekstur flug­valla sjálf­bæran er opnað á þann mögu­leika að aðrir fái áhuga á að koma að rekstr­inum og taka þátt í að byggja hann upp, bæði einka­að­ilar og sveit­ar­fé­lög. Ein­hverjir gætu séð hag í að taka þátt í rekstri flug­valla á sínu svæði til að hafa beina aðkomu að upp­bygg­ingu sam­göngu­kerfa og ferða­manna­þjón­ustu. 

Skýrslan var til­búin snemma í maí en ekki birt á vef ráðu­neyt­is­ins fyrr en síð­ast­lið­inn föstu­dag. Vigdís Häsler, aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra, segir sein­kun­ina vera hluta af eðli­legum umþótt­un­ar­tíma sem ráðu­neytið gefi sér til þess að fara yfir skýrsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

innanlandsflug

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár