Gerir ekki athugasemdir við vinnslu persónuupplýsinga 365

Per­sónu­vernd hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að hún geri ekki athuga­semdir við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga 365 við leit þeirra á ein­stak­lingum sem stunda ólög­legt nið­ur­hal.

Höfuðstöðvar 365 miðla
Höf­uð­stöðvar 365 miðla Mynd: Þórunn Elísabet Bogadóttir

Samkvæmt yfir­lýs­ingu Per­sónu­verndar fyrr í dag eru engar athuga­semdir gerðar leit 365 miðla að þeim sem hlæðu íslensku sjón­varps­efni inn á ólög­legar nið­ur­hals­síður. 

Í við­tali 365 miðla hf. Við frétta­stofu RÚV seint í nóv­em­ber á síð­asta ári kom fram að fyr­ir­tækið hafði kært tvo menn fyrir að dreifa ólög­lega höf­und­ar­rétta­vörðu efni. Þar sagði þáver­andi for­stjóri 365 miðla m.a.: „Það sem við gerum er að við fáum frá FRÍSK upp­lýs­ingar um hverjir hafa sett efnið okkar með ólög­mætum hætti á netið. Og það sem við­höfum ein­fald­lega gert er að skoða hverjir mögu­lega geti verið þarna á bak við. Og við höfum sent kæru til lög­regl­unnar.”

Í kjöl­far við­tals­ins ákvað Per­sónu­vernd að kanna nánar þá vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem umrætt eft­ir­lit hefði í för með sér. Var það ótt­ast að félagið stund­aði umfangs­mikið og kerf­is­bundið sjálf­virkt eft­ir­lit með til­greindum ein­stak­lingum, en við rann­sókn máls­ins kom hins vegar í ljós að svo væri ekki.

Í til­kynn­ingu Per­sónu­verndar er birt bréf lög­manns 365 þar sem ferli félags­ins er lýst: Ein­faldur hug­bún­aður hafi verið þró­aður til að fylgj­ast með hvort höf­unda­vörðum titlum og verkum væri hlaðið upp á tor­rentsíð­unni deildu.net. Þegar ákveðnum titlum er hlaðið upp á síð­unni getur 365 leit­ast eftir IP-tölum þeirra aðila. Í bréf­inu segir einnig að fram­an­greint ferli hafi ein­ungis verið gert í þeim til­gangi að kæra til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár