Stofnandi „eiturlyfja-Ebay“ dæmdur

Aðstand­andi net­síðu þar sem fíkni­efna­við­skipti fóru fram fékk þungan dóm að lokum. Mál hans vekur upp spurn­ingar.

Þegar við ímyndum okkur eit­ur­lyfja­barón fáum við mynd í hug­ann af mið­aldra karli, örlítið bútt­uðum, smjör­greiddum, sól­bekkja­brúnum, í lit­ríkri skyrtu með efstu töl­unum hneppt frá. Sitjandi við sund­laug­ar­bakka, umkringdan fáklæddu kven­fólki og skugga­legum mönnum með hríð­skotariffla. Ross Ulbricht passar illa við þessa staðalí­mynd. Hann er ungur og við­kunn­an­legur tölvunörd, bóka­ormur og skáti sem þó stjórn­aði einum stærsta eit­ur­lyfja­mark­aði heims­ins á frírri wi-fi teng­ingu almenn­ings­bóka­safns. Mál hans vekur upp margar spurn­ingar um net­frelsi, frið­helgi einka­lífs­ins, ofbeldi og stríðið gegn eit­ur­lyfjum.

Frjálshyggja í verki

Ross Ulbricht er 33 ára gam­all, fæddur og alinn upp í Austin borg í Texas. Sonur hjón­anna Kirk og Lyn sem stunda fast­eigna­við­skipti í Mið-Amer­íku­rík­inu Kosta Ríka. Hann stefndi á feril í vís­indum og sótti háskóla­gráður í bæði eðl­is­fræði og verk­fræði. En þegar hann útskrif­að­ist árið 2009 hafði hann misst áhug­ann og var far­inn að hugsa meira um stjórn­mál og við­skipti. Hann aðhyllt­ist nýfrjáls­hyggju og stjórn­leys­is­hug­myndir og leit upp til Ron Paul, guð­föð­urs Teboðs­hreyf­ing­ar­innar innan Repúblíkana­flokks­ins. Ulbricht hugð­ist þó ekki taka beinan þátt í stjórn­málum heldur vildi hann finna hug­sjónum sínum far­veg í frum­kvöðla­starf­semi. Þetta kom mörgum á óvart því á háskóla­ár­unum var hann nokkuð hlé­drægur og ófram­fær­inn. Ulbricht var opinn fyrir flestu en horfði fyrst og fremst til mark­aðs­starf­semi á net­inu. Það fyrsta sem hann kýldi á var mark­aður fyrir not­aðar bækur, Good Wagon Books.

Sú starf­semi var að miklu leyti drifin áfram af hug­sjón og hluti ágóð­ans rann til góð­gerð­ar­mála. En sá hluti var ekki stór því að bók­salan gekk mjög illa og Ulbricht missti brátt áhug­ann. Um mitt ár 2010 til­kynnti hann á sam­fé­lags­miðlum að nýtt og háfleygt verk­efni væri í bígerð. Opinn markað án afskipta rík­is­valds­ins og því ofbeldi sem fylgir skatt­lagn­ingu og reglu­verki. Fæstir vissu hvað Ulbricht átti í raun og veru við, þ.e. hvernig slíkur mark­aður ætti að geta starfað. Ólíklegt er að margir hafi pælt mikið í þessum orðum hins nýút­skrif­aða bók­sala frá Texas. Sér­stak­lega ekki í ljósi þess að þegar verk­efnið leit loks dags­ins ljós var hann hvergi skráður fyrir því.

Eiturlyfja-Ebay

Í febr­úar árið 2011 opn­aði vef­mark­að­ur­inn Silk Road, nefndur eftir fornri versl­un­ar­leið milli Evrópu, Afríku og Asíu. Á mark­að­inum var notað svo­kallað Tor-kerfi (handa­hófs­kennt dulkóð­un­ar­kerfi) sem gerir það erf­ið­ara að finna not­endur, bæði kaup­endur og selj­endur. Síðan var því hluti af hinu alræmda myrkra­neti (dark web) sem birt­ist ekki í hefð­bundnum leit­ar­vélum á borð við Google eða Yahoo heldur þarf sér­stakan hug­búnað til að nálg­ast það. Að auki var bitcoin not­aður sem gjald­mið­ill á Silk Road, sem gerir það ennþá erf­ið­ara fyrir yfir­völd að fylgj­ast með not­endum og greiðslum þeirra á milli.

Silk Road var ekki að fara í sam­keppni við Ebay eða Amazon því að vör­urnar sem þar voru á boðstólnum voru flestar ólög­legar víð­ast hvar í heim­inum. Þar mátti finna stera, fæðu­bót­ar­efni, sjúkra­hús­varn­ing, sterka orku­drykki og fleira en lang­mest umferðin var með fíkni­efni. Í upp­hafi var lítil umferð á Silk Road en hálfu ári eftir opn­un­ina birt­ist grein um vef­inn á hinni geysi­vin­sælu blogg­síðu Gawker og við það marg­fald­að­ist umferðin. Hægt var að kaupa flest þau fíkni­efni sem fyr­ir­finn­ast í ver­öld­inni, bæði í miklu magni og í smá­skömmtum, og send­ingin var sam­komu­lags­at­riði milli kaup­anda og selj­anda. Má þar nefna mor­fín­skyld-efni, amfetamín-skyld efni, ofskynj­un­ar­lyf, deyf­andi lyf, kókaín og kanna­bis-efni (sem voru þau vin­sæl­ustu). Vefurinn óx hratt og brátt voru not­end­urnir um ein milljón tals­ins. Hluti sölu­and­virð­is­ins rann til stjórn­enda síð­unnar sem gerði vef­inn gríð­ar­lega ábata­sam­ann.

Heiður meðal dópsala

Í upp­hafi virt­ist eng­inn stýra vefnum en svo allt í einu birt­ist not­andi með stjórn­un­ar­vald sem bar heitið Dread Pirate Roberts, eftir aðal­sögu­hetju skáld­sög­unnar (og kvik­mynd­ar­innar) The Princess Bride. Fleiri stjórn­endur voru að vefnum en Roberts var aug­ljós­lega sá sem hafði mest völd. Ólíkt not­endum vef­mark­aða á borð við Ebay og Amazon þá mynd­uðu not­endur Silk Road nokk­urs konar sam­fé­lag. Spjall­þræðir voru virkir og not­end­urnir mynd­uðu raun­veru­leg tengsl. Þó að margir hafi notað vef­inn ein­vörð­ungu til að kaupa eða selja fíkni­efni þá voru aðrir virkir í hug­mynda­fræði­legum umræðum um frjáls­hyggju, stjórn­leysi og hið opna og frjálsa inter­net. Það var meira að segja starf­ræktur bóka­klúbbur á síð­unni þar sem þessu hug­myndum var hampað. Í við­tali við vefritið Wired segir Roberts:

„Eitt sem ég hef lært af því að leika Dread Pirate Roberts er að aðgerðir manns gera sumum til geðs en gera aðra ákaf­lega reiða. En við getum ekki þagað að eilífu. Við höfum mik­il­væg skila­boð og nú er rétti tím­inn fyrir heim­inn að heyra þau. Þetta snýst ekki um að redda okkur skammti eða að sýna yfir­völdum hvar Davíð keypti ölið. Þetta snýst um rétt okkar sem mann­eskjur og að neita að lúta þegar við höfum ekk­ert gert af okkur. Silk Road er far­vegur fyrir þau skila­boð. Allt annað skiptir minna máli.“

Fíkni­efna­mark­aður kann að virð­ast und­ar­legur staður til að veita hug­sjónum sínum braut­ar­gengi því að erfitt er að sjá sam­fé­lags­lega ávinn­ing­inn af slíkri starf­semi. Grunn­hug­mynd frjáls­hyggju­manna og stjórn­leys­ingja er hins vegar sú að ein­stak­ling­ur­inn beri ávallt ábyrgð á sjálfum sér og vald­boð sé aldrei gott. Með því að taka við­skiptin af göt­unni og inn á nafn­laust myrkra­netið sé hættan á ofbeldi, hvort sem er frá lög­reglu eða selj­endum, tekin úr umferð. Að stríðið gegn eit­ur­lyfjum, sem staðið hefur yfir í hart­nær hálfa öld, þjóni ein­göngu rík­is­vald­inu og stór­fyr­ir­tækjum á meðan almenn­ingur líður fyrir það. Stjórn­endur Silk Road héldu því ekki fram að fíkni­efni væru holl eða mann­bæt­andi en á síð­unni voru leið­bein­ingar um notkun þeirra til að minnka skað­ann og auka öryggi. Síðan var heldur ekki að öllu leyti frjáls því að ýmis varn­ingur var bann­aður af stjórn­endum. Má þar nefna barnaklám, fals­aða pen­inga­seðla, þýfi, leigu­morð og vopn (sem voru þó seld á tengdri síðu).

Gripinn á bókasafni

Lög­reglu­yf­ir­völd vissu strax af síð­unni við opnun hennar en létu hana að mestu í friði til að byrja með. Hand­tökur í tenglsum við eit­ur­lyfja­smygl víða um heim fóru þó í auknum mæli að vísa á síð­una og lög­reglan fór að sýna henni meiri áhuga. Það var hins vegar öld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn Chuck Schumer sem beindi kast­ljósi almenn­ings að síð­unni og krafð­ist aðgerða gegn stjórn­endum hennar. Við það færð­ist mik­ill þungi í rann­sókn­ina og margir lög­reglu­menn skráðu sig á vef­inn til þess eins að reyna að fá upp­lýs­ingar um stjórn­end­urnar. Vatna­skil urðu þegar þeir náðu að hand­sama einn af þeim í jan­úar árið 2013.

Maðurinn sem gekk undir dul­nefn­inu Chronicpain var í raun Curtis Clark Green, mið­aldra fjöl­skyldu­maður frá Utah. Eftir hand­tök­una bauðst Dread Pirate Roberts til þess að borga fyrir morð á Green og lög­reglan svið­setti það til að narra hann. Green hjálp­aði til við rann­sókn­ina og um sum­arið vissi lög­reglan að Ross Ulbricht væri hinn alræmdi Dread Pirate Roberts. Ulbricht hafði búið í San Francisco síðan Silk Road hóf göngu sína og enga af vinum hans grun­aði að hann stýrði víð­femum fíkni­efna­mark­aði. Hann bjó í lít­illi leigu­í­búð ásamt nokkrum her­berg­is­fé­lögum. Hann kall­aði sig Joshua Terrey og sagð­ist vinna við gjald­eyr­is­við­skipti. Í októ­ber­mán­uði árið 2013 var hann grip­inn á almenn­ings­bóka­safni með far­tölv­una sína þar sem hann var að vinna á síð­unni.

Á sama tíma var Silk Road lokað af alrík­is­lög­regl­unni, FBI. Lög­reglan lagði hald á bitcoin mynt af tölvu­bún­aði Ulbricht, bæði frá honum sjálfum og öðrum not­endum, sam­an­lagt yfir 3 millj­arða íslenskra króna. En talið er að hann lúri á enn stærri fjár­hæðum, jafn­vel allt að 5% af heild­ar­mynt­inni í heim­inum. Það sem lög­reglan náði var selt á upp­boðum haustið 2015.

Vefþjónar á Íslandi

Í jan­úar árið 2015 hófust rétt­ar­höldin yfir Ross Ulbricht á Man­hattan í New York borg. Ákær­urnar gegn honum voru sjö tals­ins, þar á meðal sam­særi um fíkni­efna­sölu, pen­inga­þvætti og stjórn umsvifa­miklilla glæpa­sam­taka. Ein ákæran var tekin út áður en rétt­ar­höldin hófust, þ.e. sam­særi um morð á sex ein­stak­lingum. Ekkert þess­ara morða átti sér stað og ákæru­valdið treysti sér ekki til að sanna það að hann hefði fyr­ir­skipað til­ræðin. Engu að síður var oft minnst á þetta í rétt­ar­höld­unum sjálfum. Ulbricht við­ur­kenndi strax að hafa stofnað vef­inn en sagð­ist hafa eft­ir­látið öðrum aðilum stjórn­ina snemma.

Hann sagði að margir aðilar hefðu gengið undir nafn­inu Dread Pirate Roberts, líkt og í skáld­sög­unni. Þetta þótti ekki trú­verð­ugt í ljósi þess að Ulbricht var á vefnum á þeirri stundu þegar hann var hand­tek­inn.

Ulbricht sagði hins vegar að öllum gögnum sem bendla hann við vef­inn á þeim tíma, svo sem ummælum á spjall­þráðum, hafi verið plantað þar af öðrum. Vörn Ulbricht var þó aðal­lega byggð á 4. grein banda­rísku stjórn­ar­skrár­innar sem segir að ekki megi leita á fólki, heim­ilum þeirra eða öðrum munum án heim­ildar. Ljóst var að yfir­völd höfðu kom­ist yfir vef­þjóna Silk Road sem stað­settir voru á Íslandi og í Þýska­landi. Einnig hafði verið brot­ist inn á reikn­inga hans á sam­fé­lags­miðlum, tölvu­póst og fleira. Af hverju ættu að gilda aðrar reglur um hinn raf­ræna heim en hinn ver­ald­lega? Verj­endur vildu sýna Ulbricht sem hug­sjóna­mann og písl­ar­vætti líkt og Edward Snowden eða Julian Assange. Ulbricht naut ein­hvers stuðn­ings og sumir mættu fyrir utan rétt­ar­sal­inn til að mót­mæla.

Það reynd­ist þó erfitt að fá fólk til að hafa sam­kennd með manni sem hafði grætt tug­millj­ónir doll­ara á fíkni­efna­við­skiptum. Meira að segja flestir félagar hans af Silk Road létu sig hverfa. Helsta von Ulbricht kom í miðjum rétt­ar­höld­unum þegar tveir fyrrum alrík­is­lög­reglu­menn voru hand­teknir í Kali­forníu.

Þeir höfðu unnið að rann­sókn­inni á Silk Road og voru sak­aðir um að eiga við sönn­un­ar­gögn, fjár­kúgun og pen­inga­þvætti. Kvið­dómur leit hins vegar fram hjá öllu þessu og dæmdi Ulbricht sekan í öllum 7 ákæru­lið­unum. Þann 29. maí árið 2015 var hann dæmdur til lífs­tíð­ar­fang­elsis án mögu­leika á reynslu­lausn. Enn­fremur var honum gert skylt að afhenda 183 millj­ónir doll­ara (um 17,5 millj­arða króna) sem talið var að hann hafi grætt á starf­sem­inni. Dómurinn var stað­festur af áfrýj­un­ar­dóm­stól þann 31. maí síð­ast­lið­inn með sömu refs­ingu jafn­vel þó að þá hafi alrík­is­lög­reglu­menn­irnir tveir verið sak­felldir fyrir sína glæpi tengda Silk Road.

Gorkúlur

Hinn harði dómur Ross Ulbricht er aug­ljós­lega skila­boð til ann­arra sem gætu hugsað sér að opna sam­bæri­legan markað á myrkra­vefnum og mjög í takti við þá stefnu stjórn­valda að taka hart á eit­ur­lyfja­sölum. Enginn grein­ar­munur er gerður á þess­ari starf­semi og hefð­bundnum eit­ur­lyfja­hringjum sem hafa vopn­aðar her­sveitir á sínum snærum. En dóm­ur­inn virð­ist ekki hafa fælandi áhrif frekar en aðrir harðir dómar í fíkni­efna­heim­inum.

Silk Road mark­að­inum var komið aftur á lagg­irnar í tvígang eftir að honum var upp­runa­lega lokað. Fjöldi ann­arra mark­aða þar sem kaupa má eit­ur­lyf og annan ólög­legan varn­ing hafa sprottið upp á myrkra­vefnum síðan þá. Má þar nefna Hansa Market, AlphaBay, Valhalla, RAMP, Deepbay, Outlaw Market og marga tugi í við­bót. Líkt og þegar Pablo Escobar var felldur árið 1993 fylltu aðrir í skarðið á svip­stundu. Ross Ulbricht mun að öllum lík­indum sitja í fang­elsi út lífið í New York og senni­lega munu fáir gráta það nema nokkrir sér­stakir áhuga­menn um net­frelsi. Dómur hans mun hins vegar ekki hafa nein áhrif á fram­boð og eft­ir­spurn fíkni­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár