Í þátíð… Flóttinn mikli – Hinir sönnu atburðir

Djörf og þaul­skipu­lögð flótta­til­raun úr þýskum fanga­búðum í seinni heims­styrj­öld­inni gat af sér göng sem voru verk­fræði­legt þrek­virki. 76 fangar sluppu út úr búð­unum en mættu flestir grimmi­legum örlögum.

Til­raunir til flótta úr hinum og þessum prís­undum eru afar vin­sælt stef í bókum, sjón­varps­þáttum og kvik­myndum, enda er enda­laust hægt að spinna góðar sögur í kringum bar­áttu lít­il­magn­ans gegn ofríki „vondu kall­anna“. Þarna má t.d. nefna þætt­ina um Hetjur Hogans og þeirra rimmur við Klink ofursta, snilld­ar­mynd­ina Raising Arizona og (hina nett ofmetnu en samt fínu) The Shawshank Redemption.

Ein af þeim eft­ir­minni­leg­ustu er The Great Escape frá árinu 1963 þar sem eðaltöffar­inn Steve McQueen fór fyrir hópi stór­leik­ara. Myndin er laus­lega byggð á sönnum atburðum þar sem mörg hund­ruð stríðs­fanga í búð­unum Stalag Luft III skipu­lögðu flótta um jarð­göng árið 1944.

Stalag Luft III voru stað­settar í Sílesíu, innan landamæra Póllands í dag, og hýstu um 10.000 fanga. Vistin þar var ekk­ert í lík­ingu við það sem les­endur þekkja af sögum úr útrým­ing­ar­búð­unum, en þrátt fyrir það var lítið varið í vist­ina þar, og mat­ar­skammt­arnir voru sér­stak­lega skornir við nögl.

Á stríðs­ár­unum voru flótta­til­raunir stríðs­fanga mjög algengar og Stalag Luft III var einmitt val­inn staður með afar gljúpum sand­ríkum jarð­vegi sem átti að gera gangna­gröft erf­iðan. Auk þess voru svefn­skálar fang­anna um það bil 60 sm frá jörðu og hljóð­nemar voru grafnir í jörðu til að greina mögu­leg hljóð frá gangna­greftri. Loks voru Þjóð­verjar með sér­staka hópa manna sem fóru á milli búða til að fletta ofan af til­raunum til að skipu­leggja flótta.

Þrátt fyrir allar þessar ráð­staf­anir var hópur fanga í Stalag Luft III stað­ráð­inn í að brjót­ast út í frelsið.

Þegar Roger Bushell, suður-afrískur for­ingi í RAF, breska flug­hernum, var fluttur í búð­irnar komst ráð­bruggið á fullt. Bushell, sem hafði áður flúið tvisvar úr haldi nas­ista, en náðst aftur, barði kjark í félaga sína á und­ir­bún­ings­fundi vorið 1943 þar sem hann sagði meðal ann­ars:

„Með réttu ættum við allir að vera dauðir! Eina ástæðan fyrir því að Guð gaf okkur þessa fram­leng­ingu líf­daga er svo við getum skap­raunað Þýskur­unum!“

Hann boð­aði gerð þriggja gangna, sem gengu undir heit­unum Tom, Dick og Harry. Hug­myndin var að ef ein göngin myndu finn­ast þá væri hægt að ein­beita sér að þeim sem eftir væru. Hann safn­aði saman kunn­áttu­mönnum á ýmsum sviðum, meðal ann­ars gangna­gerð­ar­mönnum, föls­urum, skrödd­urum og fleirum.

Áætlun Bushells var gríð­ar­lega metn­að­ar­full þar sem um 600 fangar tóku þátt í und­ir­bún­ingnum og yfir 200 fangar áttu að sleppa, með skil­ríki, dul­bún­inga og fleira til að auð­velda þeim flótt­ann eftir að út var komið. Þeir voru meira að segja komnir með tíma­töflu fyrir lest­ar­stöð í nágrenn­inu. Margt af bún­aði og hlutum fengu þeir í gegnum fanga­verð­ina sem voru margir ginn­keyptir fyrir mútum eða jafn­vel kúg­unum.

Á níu metra dýpi

Göngin voru ýmist undir kamínu í skál­unum eða undir nið­ur­falli. Fang­arnir grófu sig fyrst um níu metra niður áður en stefnan var tekin út fyrir girð­ingu. Eins og áður sagði var jarð­veg­ur­inn mjög gljúpur þannig að graf­ar­arnir þurftu að styrkja göngin. Það gerðu þeir með spýtum sem teknar voru úr rúmum fang­anna. Þær voru 60 sm á lengd og voru göngin því ekki breið­ari en það.

Eftir því sem göngin lengd­ust jókst þörf á frek­ari ráð­stöf­unum.

Fang­arnir höfðu not­ast við nið­ur­suðu­dósir til að smíða sér allra­handa verk­færi, en síðar voru þær not­aðar til að gera loft­ræstilagnir. Þeir útbjuggu einnig sér­staka loft­dælu sem var knúin handafli, svipað og róðr­ar­vél.

Að sjálf­sögðu var ákveð­inn haus­verkur að losna við jarð­veg­inn sem féll til við gröft­inn, en lausnin þeirra er nú orðin klisju­leg. Fang­arnir fóru sumsé með sand­inn út í sekkjum sem þeir földu í buxna­skálmum og þykkum frökkum og létu renna út svo lítið bar á. Magnið af jarð­vegi var þó gríð­ar­legt, jafn­vel rúmir 80 rúmmetrar, sem jafn­gildir 8.000 lítrum, og því merki­legt hvað gekk lengi að losa sig við hann.

Verð­irnir voru ekki alfarið glærir, heldur grun­aði þá lengi að eitt­hvað væri á seyði, en þeim tókst aldrei að standa neinn almenni­lega að verki til að finna göngin sjálf… það er þangað til að þeir fundu „Tom“. Stuttu síðar féll „Dick“ um sjálfan sig þegar fanga­búð­irnar voru víkk­aðar út yfir stað­inn þar sem þau göng áttu að koma upp. Þannig var „Harry“ einn eftir.

4.000 rúmspýtur teknar til handargagns

Þau göng lágu frá skála 104 og voru rúm­lega 100 metra löng. Á leið­inni var, eins og áður sagði loft­ræst­ing og þrjú svæði þar sem grafnar höfðu verið út eins konar hvelf­ingar til að athafna sig á leið­inni. Gríð­ar­lega mikið efni þurfti til gangna­gerð­ar­innar og voru fang­anir ein­stak­lega úrræða­góðir að bjarga sér í því til­liti. Þar voru mik­il­vægastar hinar fyrr­nefndu rúm­spýtur, en talið er að alls hafi um 4.000 spýtur verið not­aðar í verkið. Í hverju rúmi voru 20 spýtur, en um átta voru jafnan skildar eftir.

Auk þess tóku þeir sér til handa­gagns: 1.699 rúm­teppi, 161 kodda­ver, 34 stólar, 52 lang­borð, 478 skeiðar, 582 gafflar, 3.424 hand­klæði og 246 vatns­flöskur svo fátt eitt sé nefnt af lista sem yfir­stjórn búð­anna lét taka saman eftir að upp komst um flótt­ann.

Örlagadagurinn rennur upp

Þegar komið var fram í mars árið 1944 voru göngin nær til­búin og því fátt að van­bún­aði. 220 manns voru dregnir út hópi mann­anna sem stóðu að gangna­gerð­inni og áttu þeir að fara út á aðfar­arnótt hins 25. sama mán­aðar.

Babb kom hins vegar í bát­inn þar sem þegar sá sem rak haus­inn fyrst upp úr ganga­end­anum langsótta. Enn vant­aði um þrjá metra upp á að þeir væru komnir í skjól skóg­ar­ins handan girð­ingar og þeir voru innan við 10 metra frá næsta varð­turni (sem vissi sem betur fer frekar inn í búð­irnar en út á við). Auk þess var snjór á jörð­inni þannig að flótta­menn­irnir áttu eftir að skilja eftir sig slóð fótspora.

Til að auka enn á vand­ræðin var raf­magnið tekið af öllum búð­unum vegna loft­árása banda­manna þannig að niða­myrkur var í göng­unum.

Allt þetta hægði veru­lega á straumnum um göngin þannig að það var fljót­lega ljóst að 220 menn myndu aldrei kom­ast út.

Svo gerð­ist það, rétt fyrir kl 5 um nótt­ina, að vörður varð var við það þegar einn flótta­mann­anna skaut höfð­inu upp úr hol­unni og allt fór í gang. Þeir ell­efu sem voru eftir í göng­unum sneru við og ruku aftur upp í skála. Þar var ljóst að upp hafði kom­ist um ráða­bruggið og fanga­verð­irnir voru komnir áður en langt um leið.

Hitler trylltist

Ekki gekk þeim sem sluppu út sem best að kom­ast leiðar sinnar, en sökum taf­anna og mis­kiln­ings við að rata á braut­ar­stöð­ina misstu margir af lest­inni sem þeir höfðu fyr­ir­hugað að taka og tóku þess vegna bara næstu lestar burt.

Þegar fregn­irnar bár­ust upp um valda­stiga þýska hers­ins voru við­brögðin snögg. Mikið lið var sent út af örk­inni til að hand­sama flótta­menn­ina, enda var Adolf Hitler frá­vita af bræði. For­ing­inn krafð­ist þess að allir þeir sem næð­ust, yrðu teknir af lífi umsvifa­laust.

Það gekk vit­an­lega gegn samn­ingum um með­ferð stríðs­fanga og nokkrir und­ir­manna Hitlers náðu að róa hann niður, en þó var lend­ingin sú að Gestapo skildi sjá til þess að 50 sér­valdir menn úr hópi flótta­mann­anna skyldu vera skotnir.

Það fór því þannig að eftir því sem menn­irnir náð­ust, einn af öðrum, voru þeir látnir í hendur Gestapo. Þeir voru svo teknir, einn og einn eða í stærri hópum, í bíl­ferð út í sveit. Þeim var svo boðið að pissa úti í vega­kanti þar sem þeir voru teknir af lífi með byssu­skoti.

Jafnan var skýrsla lög­reglu­mann­anna sam­hljóða; menn­irnir höfðu hlaupið af stað í pissu­stopp­inu og verið skotnir á flótt­anum.

Roger Bushell var einn af þeim sem mættu örlögum sínum með þessum hætti, en alls náð­ust 73 af 76 flótta­mönn­unum. Sautján voru fluttir aftur til Stalag Luft III, fjórir í Sachsenhausen útrým­inga­búð­irnar (þaðan sem þeir sluppu í gegnum göng en náð­ust aftur) og tveir í búð­irnar Oflag IV-C Colditz.

Þrír sluppu, en það voru tveir Norðmenn sem sluppu til Sví­þjóðar og einn Hol­lend­ingur sem komst til Spánar þar sem hann leit­aði skjóls í breskri ræð­is­manna­skrif­stofu.

Eftirmálar

Banda­menn voru vit­an­lega reiðir yfir með­ferð­inni á föng­unum, enda brutu morðin gegn alþjóða­sátt­málum um með­ferð stríðs­fanga, sem Þýska­land hafði skrifað undir.

Bretar hófu, í stríðs­lok, sína eigin rann­sókn á því sem gerð­ist en það end­aði með því að fjöl­margir Gestapo-liðar voru dæmdir fyrir morð og teknir af lífi.

Í dag eru aðeins tveir eft­ir­lif­andi úr hópi þeirra sem unnu að göng­unum, Kanada­mað­ur­inn Gordon King. Hann vann á loft­dæl­unni, en komst aldrei niður í göngin um nótt­ina örlaga­ríku. Hér má sjá við­tal við King þar sem hann segir frá und­ir­bún­ingnum.

Dick Churchill komst hins vegar út, en náð­ist fljót­lega. Talið er lík­legt að honum hafi verið þyrmt vegna þess að hann hafði sama eft­ir­nafn og Winston Churchill for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hann er 97 ára gam­all.

Þar sem Stalag Luft III stóð forðum er nú minn­is­varði um göngin og þá flótta­menn sem létu lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár