Myntráð væri róttæka lausn fjármálaráðherra

Tenging krón­unnar við erlendan gjald­miðil er sú rót­tæka lausn sem Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra hefur talað fyrir. Myntráð er samt ekki stefna nema eins flokks í rík­is­stjórn, en ráð­herra bindur vonir við starf pen­inga­stefnu­nefndar stjórn­valda.

Myntráð er sú rót­tæka lausn sem Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sér fyrir sér í gjald­mið­ils­málum. Hins vegar sé flokkur hans sá eini með þá stefnu. Þetta kom fram í máli Bene­dikts í svörum við óund­ir­búnum fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns VG, og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sóknar, á Alþingi í morgun.

Katrín gerði ummæli fjár­mála­ráð­herra um helg­ina að við­fangs­efni. „Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra sagði í fjöl­miðlum í fyrra­dag að staðan í gjald­mið­ils­málum væri svo alvar­leg að við yrðum að horfa á mjög rót­tækar lausnir.“ Hún velti því fyrir sér hvaða aðgerðir Benedikt væri að vísa í.

„Í ljósi þess að við þekkjum stefnu hæst­virts ráð­herra og hans flokks koma tvær rót­tækar lausnir í huga og mig langar að spyrja hæst­virtan ráð­herra: Er hann að tala fyrir fast­geng­is­stefnu með mynt­ráði eins og við þekkjum ann­ars staðar frá? Er hann að tala fyrir inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið og upp­töku evru eða upp­töku ein­hvers ann­ars gjald­mið­ils? Hvaða rót­tæku lausnir á hæst­virtur ráð­herra við?“ spurði Katrín.

Benedikt sagði rétt að hann og ýmsir aðrir hefðu komið auga á að það væri grafal­var­legt mál þegar gjald­mið­ill breyti svo hratt um gengi eins og íslenska krónan hefði gert síð­ustu tvö ár.

„Við þekkjum hvað gert hefur verið, að Seðla­bank­inn hefur verið með upp­kaup, en hann hefur lýst því yfir að hann ætli að draga úr inn­gripum. Við höfum afnumið höft á fjár­magns­flæði þannig að nú geta íslensk fyr­ir­tæki, ein­stak­lingar og líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest erlendis og keypt gjald­eyri, keypt hluta­bréf og annað. Þó að ég virði vissu­lega sjálf­stæði pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans hef ég talið að eitt af því sem máli skipti væri að vaxta­munur á milli Íslands og útlanda væri sem allra minnstur, þannig að ég hef hvatt til vaxta­lækk­ana. Fleiri aðgerðir má svo sem nefna en þessar eru þær helstu. Ég hef reyndar líka hvatt líf­eyr­is­sjóð­ina til þess að auka fjár­fest­ingar sínar í útlöndum,“ sagði hann í fyrra svari sínu.

Katrín kom í ræðu­stól í annað sinn og sagði ekki duga að telja upp það sem þegar hefði verið gert. „Hann mætti í við­tal í fyrra­dag og sagði að nú þyrfti rót­tækar lausnir til þess að koma böndum á gjald­mið­il­inn. Hann mætti líka í annað við­tal í evru­bol, vænt­an­lega ekki vegna þess að ekk­ert annað væri hreint heima hjá honum. Hæst­virtur ráð­herra er að senda ákveðin skila­boð,“ sagði Katrín. Ráð­herr­ann þyrfti að tala skýrt við Alþingi Íslend­inga um það hvaða lausnir hann eigi við.

Benedikt sagði málið mjög flókið. „Það er ekk­ert leynd­ar­mál að stefna Við­reisnar fyrir kosn­ingar var að skoða mynt­ráð. Það er leið sem við höfum verið að kynna fyrir öðrum og ég veit að margir hafa skoðað af áhuga.“ Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar væri svo talað um nefnd um umhverfi pen­inga­stefn­unnar þar sem sköpuð verði ný pen­inga­stefna sem stefni að því að draga úr sveiflum á gengi krón­unnar.

„Það er rétt að í mynt­ráði felst að gengi gjald­mið­ils­ins, krón­unnar, er tengt við erlendan gjald­miðil og þar sé ég þá rót­tæku lausn sem ég hef talað um.“

Sigurður Ingi spurði Benedikt einnig um þessi mál, og sagði ráð­herr­ann ekki þora að svara mjög skýrt um málið. Róttæka lausnin væri aug­ljós­lega mynt­ráð og um það sé engin sam­staða í rík­is­stjórn­inni. „Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið er í upp­námi.“

Benedikt sagði alveg rétt hjá Sigurði Inga að hug­myndin um mynt­ráð eða aðra fast­teng­ingu krón­unnar við annað hvort ákveðna erlenda mynt eða mynt­körfu væri ekki stefna nema eins flokks, Við­reisnar. Hann hefði hins vegar orðið var við það að margir þing­menn hefðu áhuga á að kynn­ast mál­inu betur. „Það vona ég að starf þess­arar nefndar muni leiða til þess að betri áhugi vakni á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár