Fimmti hver Íslendingur var erlendis í apríl

Stór­aukin einka­neysla end­ur­spegl­ast í mik­illi fjölgun utan­lands­ferða og verslun Íslend­inga á net­inu. Korta­velta Íslend­inga í útlöndum hefur aldrei verið meiri en í apríl síð­ast­liðnum

Korta­velta Íslend­inga hefur aldrei mælst eins há og í apríl síð­ast­liðnum ef leið­rétt er fyrir þróun á gengi krón­unnar á tíma­bil­inu. Þetta kemur fram á vef Íslands­banka. Alls nam aukn­ing á korta­veltu í útlöndum á milli ára í apríl um 62 pró­sent en það er mesta aukn­ing sem mælst hefur eins langt aftur og tölur ná. Aukn­ingin á veltu inn­an­lands var hins vegar lítil sem engin. Ástæðan er sú að um 18 pró­sent þjóð­ar­innar var erlendis á tíma­bil­inu.

Hlutfall korta­veltu Íslend­inga í útlöndum var 17,3 pró­sent af heild­ar­korta­veltu Íslend­inga í apríl og hefur hlut­fallið aldrei verið hærra. Þessa aukn­ingu má rekja bæði til aukn­ingu utan­lands­ferða og að net­verslun hefur stór­auk­ist. Íslands­banki telur þessa að þróun gefi skýra mynd um að einka­neyslu­vöxtur verði umtals­verður á næst­unni.

Færri heima að strauja

Aukningu á korta­veltu Íslend­inga í útlöndum end­ur­spegl­ast í tölum Ferða­mála­stofu Íslands um brott­farir Íslend­inga frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Síð­ast­lið­inn apríl var næst fjöl­menn­asti mán­uður í sögu utan­lands­ferða og fóru um 62.200 Íslend­ingar erlendis í apríl eða um 18 pró­sent þjóð­ar­innar. Eini mán­uð­ur­inn þar sem utan­lands­ferðir hafa verið fleiri var í Júní 2016 en þá juk­ust utan­lands­ferðir Íslend­inga til muna í kjöl­far Evrópu meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu.

Á sama tíma og útlend korta­velta jókst um 62 pró­sent í apríl á milli ára jókst inn­lend korta­velta Íslend­inga aðeins um 0,2 pró­sent að raun­virði sem er hæg­asti vöxtur á milli ára í tvö ár. Samkvæmt Íslands­banka má að ein­hverju leyti rekja hægan vöxt inn­lendrar korta­veltu til þess að um 18 pró­sent þjóð­ar­innar var erlendis á tíma­bil­inu.

Ferðamenn eyða minna á mann en áður

Heildar korta­velta erlendra greiðslu­korta jókst um 25 pró­sent í krónum talið á milli ára á meðan heild­ar­fjöldi erlendra gesta jókst um 62 pró­sent á sama tíma. Ef tekið er til­lit til geng­is­hreyf­inga jókst korta­veltan hins vegar um 47 pró­sent sem er nær þróun á fjölda erlendra gesta.

Þetta gefur til kynna að ferða­menn taki frekar mið af neyslu í heima­mynt sinni. Samkvæmt Íslands­banka útskýrir þetta hvers vegna aukn­ing á korta­veltu ferða­manna end­ur­spegl­ast ekki í fjölgun þeirra á milli ára. Styrking krón­unnar gagn­vart erlendum gjald­miðlum valdi því að erlendir ferða­menn sem reikna útgjöld í heima­mynt eyða færri krónum en áður.

Þrátt fyrir þessa aukn­ingu á korta­veltu Íslend­inga í útlöndum og að neysla á hvern ferða­mann hefur dreg­ist saman hefur aldrei mælst eins mik­ill afgangur af korta­veltu­jöfn­uði og í apríl síð­ast­liðnum. Korta­velta Íslend­inga í útlöndum nam 11,9 millj­örðum í apríl og var korta­veltu­jöfn­uður jákvæður um rúma 6,4 millj­arða

Afgang­inn má rekja beint til fjölda ferða­manna hér á landi í sam­an­borið við fjölda Íslend­inga sam­kvæmt vef Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár