Í þá tíð… George Washington sór embættiseið

Her­for­ing­inn var settur í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna fyrstur manna. Hann mót­aði emb­ættið eftir sínu höfði og fram á þennan dag gætir áhrifa hans greini­lega.

George Washington var fyrsti forseti bandaríkjanna. Hann tók við embætti hinn 30. apríl 1789.
George Washington var fyrsti for­seti banda­ríkj­anna. Hann tók við emb­ætti hinn 30. apríl 1789.

Á þessum degi fyrir réttum 228 árum, hinn 30. apríl árið 1789, sór George Washington emb­ætt­is­eið sem for­seti Banda­ríkj­anna fyrstur manna. Þar sem engar hefðir eða for­skriftir voru til varð­andi emb­ættið fóru Washington og hans fólk sínar eigin leiðir sem eimir enn af og hefur inn­setn­ing­ar­at­höfnin þannig séð ekki breyst mikið þó að 44 for­setar hafi stigið í hans stóru fót­spor.

Fáir menn, senni­lega eng­inn, í gjör­vallri sögu Banda­ríkj­anna eru sveip­aðir eins miklum frægð­ar­ljóma og Washington. Hann var einn af land­feðr­unum svoköll­uðu, og stóð þar upp úr hópnum, bæði í bók­staf­legum skiln­ingi, þar sem hann var um 190 senti­met­erar á hæð, en einnig hvað varðar per­sónu­leika og leið­toga­hæfi­leika, enda var hann val­inn til að stýra sam­kund­unni þar sem grund­völlur að fram­tíð­ar­stjórn­skipan Banda­ríkj­anna var lagður, með stjórn­ar­skránni.

Úr landmælingum í herinn

Washington fædd­ist árið 1732 í Virginíu, sem þá var ein af nýlendum Breta í Norður-Ameríku. Faðir hans var vel stæður plantekru­eig­andi og dóm­ari, en lítið er vitað með vissu um æskuár hans. Fleiri sögur ganga þó af Washington á síð­ari ævi­skeiðum, ekki síst eftir að her­mennsku­fer­ill hans hófst.

Faðir Washingtons lést þegar hann var 11 ára og eft­ir­lét eldri hálf­systk­inum hans mest­allar eigur sínar, þannig að George þurfti að leggja sitt af mörkum á heim­ili hans, móður hans og yngri systk­ina. Hann fékk ekki klass­íska menntun í lík­ingu við marga af sam­ferð­ar­mönnum hans í efri stéttum Virginíu, en stóð sig vel, til dæmis í stærð­fræði, áður en hann hætti í skóla fimmtán ára og fór að vinna við land­mæl­ingar.

Það var tengt störfum hans við land­mæl­ingar sem fer­ill hans í hernum hófst. Hann var gerður út af örk­inni, 21 árs gam­all, til að vísa á brott frönskum land­nemum frá Kanada sem höfðu verið að koma sér fyrir á land­svæði sem þá til­heyrði Virginíu, og árið 1755 var hann gerður að yfir­manni her­afla nýlend­unnar í stríð­inu gegn Frökkum og indíánum. Eftir að stríð­inu lauk og Frökkum var stökkt frá land­svæð­inu umdeilda var Washington orð­inn ann­ál­aður, beggja vegna Atl­antsála, fyrir afrek sín á víg­vell­inum.

Goðsögurnar

Margt í ævi Washingtons er sveipað ákveðnum goð­sagna­ljóma.

Frægasta sagan sem gengið hefur af George litla var þegar hann hjó niður kirsu­berja­tré föður síns. Hann átti sem sagt að hafa fengið öxi í sex ára afmæl­is­gjöf og í spennu og ung­æð­is­hætti notað hana til að höggva í kirsu­berja­tré á land­ar­eign fjöld­kyld­unnar. Faðir hans tók það skilj­an­lega óstinnt upp en mild­að­ist þar sem piltur hafði geng­ist ský­laust við vern­að­inum með orð­unum: „Ég get ekki sagt ósatt!“

Þessum orðum hefur verið haldið á lofti síð­ustu tvær ald­irnar og þóttu þau varpa ljósi á dyggðir Washingtons, heið­ar­leika, sam­visku­semi og sann­sögli. Eina vanda­málið er að saga þessi er upp­spuni frá rótum, sem var fyrst sett á prent árið 1806, en rataði síðar inn í kennslu­bækur í barna­skólum og lifir enn í dag þrátt fyrir að sann­leiks­gildi hennar hafi verið hrakið fyrir margt löngu síðan.

Önnur saga sem gekk af honum en hljómar ekki svo senni­lega er að hann hafi getað kastað silf­ur­mynt yfir sjálfa Potomac-ána.

Þá kann­ast margir við þá sögu að hann hafi verið tann­laus og not­ast við gervi­tennur úr tré. Það er bara hálfur sann­leikur þar sem hann var vissu­lega tann­laus, en not­aði gervi­stell úr fíla- og rost­ungs­beini á seinni árum eftir að hafa fyrst um sinn gegnið með sett úr tönnum úr öðru fólki og kúm.

[adspot]

Landeigandinn og fyrirmennið Washington

Washington öðl­að­ist ómetna­lega reynslu af hern­aði og manna­for­ráðum í ófriðnum við Frakka sem áttu eftir að koma honum vel þegar fram í sótti. Hann hafði að vísu yfir­gefið her­inn árið 1758 og gengið að eiga auð­uga ekkju, Mörthu að nafni, og tekið upp búskap á Mount Vernon, þar sem hann hafði búið í æsku.

Hann bætti veru­lega við eignir sínar, meðal ann­ars féllu honum í skaut land á svæð­unum sem hann hafði barist til að halda undir merkjum Virginíu í stríð­inu. Á Mount Vernon var meðal ann­ars ræktað hveiti og tóbak og Washington hélt - eins og aðrir land­eig­endur á þessu svæði á þessum tíma – hund­ruð þræla. Hann var aldrei opin­skár and­stæð­ingur þræla­halds, en í erfða­skrá hans var öllum þrælum í hans eigu gefið frelsi. Hann var sá eini af lands­feðr­unum sem gerðu það.

Honum Mörthu varð ekki barna auðið, en hann ól upp börn hennar frá fyrri hjóna­bandi sem sín eigin. Getum er leitt að því að Washington hafi verið ófjór eftir að hafa smit­ast af berklum á yngri árum.

Washington var mik­ils met­inn maður í krafti auðs, eigna og orð­spors og tók virkan þátt í félags­lífi efri stétta og stjórn­málum í Virginíu.

Herforingi í frelsisstríði

Eftir því sem leið á átt­unda ára­tug ald­ar­innar magn­að­ist spenna milli íbúa nýlend­anna þrettán á Aust­ur­strönd­inni og hinna bresku drottn­ara. Eins og fram kom í fyrri pistli voru nýlendu­búar ósáttir við meinta skatt­pín­ingu á meðan þeir fengu ekki full­trúa á breska þing­inu.

[box]Washington fór ekki var­hluta af því og komst á þá skoðun að hags­munum íbúa væri best borgið með því að lýsa yfir sjálf­stæði.

Hann var kjör­inn full­trúi Virginíu á þingi nýlend­anna árið 1774 og þegar þingið kom aftur saman ári síðar var frels­is­stríðið hafið fyrir alvöru og Washington var útnefndur yfir­maður her­afla nýlend­anna.

Stríðið sjálft og fram­gangur þess er efni í annan og miklu lengri pistil, en hlut­verk Washingtons sem her­for­ingja og leið­toga skipti þar sköpum, enda voru hans menn illa búnir sjálf­boða­liðar sem börð­ust við þraut­þjálf­aða breska atvinnu­her­menn.

Helsta afrek Washingtons sem her­for­ingja var þó þegar hann leiddi lið sitt yfir Delaware-ána að kvöldi jóla­dags 1776 þar sem hann lagði undir sig virki Breta í Trenton.

Lengst af sner­ist bar­átta nýlendu­manna um að halda aftur af Bretum, en eftir að Frakkar gengu til liðs við sjálfs­stæð­is­sinna sner­ist lukkan þeim í hag og árið 1781 unnu þeir fulln­að­ar­sigur á Bretum við Yorktown. Tveimur árum síðar var stríð­inu lokið með frið­ar­samn­ingum og Washington taldi hlut­verki sínu þar með lokið og skil­aði umboði sínu til þings­ins og hélt aftur til Mörthu sinnar á Mount Vernon. Þótti mörgum ótrú­legt að maður sem hefði getað tekið sér hér um bil hvert það vald sem honum þókn­að­ist í nýstofn­uðum Banda­ríkjum Norður-Ameríku, gengi þar sáttur frá borði.

Nýtt hlutverk

Eftir að sjálf­stæðið var í höfn voru æðstu lög Banda­ríkj­anna hin svoköll­uðu Sam­veld­is­lög (Articles of Confederation) sam­þykkt en sam­kvæmt þeim var alrík­is­stjórnin veik­burða og ríkin réðu sér að mestu sjálf, til dæmis þurfti ein­róma sam­þykki við flestum laga­breyt­ingum.

Helsta vanda­málið var hins vegar, að mati Washingtons, pen­inga­leysi, þar sem alrík­is­stjórn­inni gekk illa að inn­heimta skatta frá ríkj­unum til að standa undir erlendum skuldum.

Þess vegna var sam­band ríkj­anna á kross­götum og hug­sjón lands­feðr­anna um kröft­ugt lýð­veldi var í hættu að margra mati. Þar í hópi voru meðal ann­ars Benjamin Franklin og sjálfur George Washington.

Árið 1787 var kallað til sér­staks stjórn­ar­skrár­þings í Fíla­delfíu þar sem full­trúar ríkj­anna þrettán komu saman í þeim til­gangi að end­ur­skoða grund­vall­ar­lög lands­ins til að þau gætu bætt stjórn sam­bands­rík­is­ins og styrkt það til fram­tíðar.

Washington var kjör­inn for­seti þings­ins og leiddi starfið til að sætta mis­mun­andi sjón­ar­mið, en harðar deilur voru um hlut­verk alrík­is­stjórn­ar­innar og hversu mikil völd hún ætti að hafa yfir ein­stökum ríkjum. Eftir mikil átök frá maí fram í sept­em­ber náðu full­trúar loks­ins saman um loka­skjal, Stjórn­ar­skrá Banda­ríkja Norður-Ameríku, sem er við lýði enn þann dag, með 27 við­aukum, og er almennt talið eitt merki­leg­asta skjal í stjórn­mála­sög­unni. Forysta Washingtons og hæfi­leikar til að sætta ólík sjón­ar­mið áttu örugg­lega stóran hlut að máli með það hvernig til tókst.

Önnur grein stjórn­ar­skrár­innar til­tekur fyr­ir­komu­lag fram­kvæmd­ar­valds­ins sem for­set­inn fer fyrir. Þegar velja átti til þessa æðsta emb­ættis lands­ins þóttu fáir betur til þess fallnir er Washington. Líkt og eftir frels­is­stríðið, stóð hugur hans hins vegar alls ekki til frek­ari póli­tískra starfa, en sem fyrr var mik­ill þrýst­ingur á að hann gæfi kost á sér og raunar höfðu margir af full­trú­unum á stjórn­ar­skrár­þing­inu gert ráð fyrir að Washington yrði fyrsti for­set­inn.

Hann lét til leið­ast og vann sann­fær­andi sigur. Kjörmenn ríkj­anna gátu valið tvo full­trúa með vægi í sam­ræmi við fólks­fjölda í hverju þeirra. Öll tíu ríkin sem tóku þátt völdu Washington með öðru atkvæði sínu, en John Adams kom honum næstur og var þess vegna kjör­inn vara­for­seti.

Með almannaheill að leiðarljósi

Þannig varð það 30. apríl 1789 að George Washington stóð á svölum Federal Hall í New York, fyrsta stjórn­ar­ráði Banda­ríkj­anna og sór emb­ætt­is­eið að við­stöddum 10.000 manns. Mörgum sem voru þar til vitnis fannst sem for­set­inn væri stress­aður og hefði jafn­vel frekar kosið að standa frammi fyrir óvini í bar­daga en einmitt þarna. Honum lá lágt rómur og sagði meðal ann­ars að í honum bærð­ust blendnar til­finn­ingar; kvíði og stolt yfir að hafa verið val­inn til starfans. Hann lagði hins vegar mikla áherslu á að settur yrði saman laga­bálkur um rétt­indi ein­stak­linga og að stjórn­völd skyldu umfram allt þjóna fólk­inu með því að vinna með almanna­hag að leið­ar­ljósi. Banda­ríkin töldu þarna ell­efu ríki (Rhode Island og Norður Karólína höfðu ekki enn stað­fest stjórn­ar­skrána) og fjórar millj­ónir íbúa.

For­seta­tíð Washingtons var for­dæma­laus eins og gefur að skilja og hann var fylli­lega með­vit­aður um að hans verk og orð kæmu til með að móta emb­ætti for­seta til fram­tíðar. Þess vegna lagði hann mikið upp úr því að starfa af heil­indum með áherslu á rétt­læti og var­færni. Hvað varðar stöðu Banda­ríkj­anna á alþjóða­vett­vangi var vin­gjarn­legt sam­band við önnur ríki talið mik­il­vægt ásamt því Washington taldi að Banda­ríkin ættu sem minnst að hlut­ast til um átök milli ann­arra ríkja og halda hlut­leysi sínu.

Loksins hvíld

Washington vann aftur sann­fær­andi sigur í næstu kosn­ingum sem fram fóru 1792 þar sem hann fékk atkvæði allra fimmtán ríkja og aftur varð John Adams í öðru sæti og hélt emb­ætti sínu sem vara­for­seti.

Heilsu hans var hins vegar farið að hraka og hann hafn­aði áköllum um að sitja þriðja kjör­tíma­bilið. Sá siður, að for­seti sæti í tvö kjör­tíma­bil hið mesta var ekki lög­fest en þó gekk eng­inn gegn þeirri hefð fyrr en Roosevelt var kjör­inn fjórum sinnum á árunum 1932 til 1944. Árið 1951 var ákvæði um hámarks­setu for­seta fest í stjórn­ar­skrána með 22. við­auk­anum.

Þá fékk Washington loks verð­skuld­aða hvíld og sneri aftur á Mount Vernon þar sem hann varði síð­ustu ævi­ár­unum í að sinna rekstri plantekru sinnar. Hann veikt­ist hast­ar­lega í des­em­ber árið 1799 og lést á aðfar­arnótt 14. þess mán­aðar, 67 ára að aldri og skilur eftir sig goð­sagna­kennda arf­leifð sem vold­ug­asta ríki ver­ald­ar­sög­unnar hvílir á enn þann dag í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár