Engum sektum verið beitt vegna brota á auglýsingum heimagistinga

Sýslu­manns­emb­ætti Höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var úthlutað auknum fjár­munum til að standa straum af kostn­aði við hert eft­ir­lit með heimagist­ingum.

Sýslumannsembættið á höfuðborgarsvæðinu hefur um þrjú hundruð heimagistinga á skrá
Sýslu­manns­emb­ættið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur um þrjú hund­ruð heimagist­inga á skrá Mynd: Birgir Þór Harðarson

Engar sektir hafa verið gefnar út af hálfu sýslu­manns­emb­ætt­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna aug­lýs­inga á heimagist­ingu. Í nýjum lögum, sem tóku gildi um ára­mótin, segir að í öllum aug­lýs­ingum á starf­semi skráðrar heimagist­ingar skuli skrán­ing­ar­númer koma fram. Í reglu­gerð er þó veitt und­an­þága frá því að núm­erið sé lesið upp í útvarpi. Ef skrán­ing­ar­skyld starf­semi er aug­lýst án skrán­ing­ar­núm­ers getur það varðað sekt allt að einni milljón króna.

Sýslu­manns­emb­ætt­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er falið eft­ir­lit með skrán­ing­ar­skyldum heimagist­ingum á lands­vísu. Eft­ir­litið felur meðal ann­ars í sér að fylgst er með bók­un­ar­síðum á borð við Airbnb og booking.com. Þetta kemur fram í svari sýslu­manns­emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurnum Kjarnans. Einnig kemur fram í svari emb­ætt­is­ins að í fjár­lögum hafi verið gert ráð fyrir auknum fjár­veit­ingum til að sinna eft­ir­lits­hlut­verk­inu. Ekki feng­ust svör við hversu háar þær fjár­veit­ingar voru, en í umsögn emb­ætt­is­ins með frum­varpi lag­anna er áætl­aður árlegur kostn­aður með eft­ir­lit­inu 23.670.000 krónur. Auk þess var gert ráð fyrir rúm­lega níu millj­óna króna stofn­kostn­aði, meðal ann­ars vegna upp­setn­ingu á vef­síðu og for­rit­unar vinnu.

Í óform­legri athugun Kjarnans á skrán­ing­ar­núm­erum, sem aðgengi­leg eru á heima­síðu sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, komu skrán­ing­ar­númer hvergi fram í aug­lýs­ingum. Af þeim tutt­ugu gist­ingum sem flett var upp var aðeins ein aug­lýs­ing þar sem hluti skrán­ing­ar­núm­ers kom fram. Í þeirri aug­lýs­ingu komu aðeins fyrstu tveir bók­stafirnir, HG-, fram en öll skrán­ing­ar­núm­erin eiga þessa upp­hafs­stafi sam­eig­in­lega, rest­ina af núm­er­inu vant­aði.

Viðbrögð við gagnrýni á eftirlit

Samkvæmt svari sýslu­manns­emb­ættis höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru breyt­ing­arnar á lög­unum til þess ætl­aðar að bregð­ast við gagn­rýni á skort á eft­ir­liti með heimagist­ingu. Einnig var þeim ætlað að bregð­ast við þróun á gistifram­boði og leyf­is­lausri starf­semi, meðal ann­ars með því að ein­falda reglu­verkið í kringum mála­flokk­inn. Samkvæmt lög­unum mega tekjur af heimagist­ingu ekki vera hærri en tvær millj­ónir króna á ári og aðeins er heim­ilt að selja 90 gistinætur. Með­al­verð gistinætur er því 22 þús­und krónur.

Í umfjöllun á vefnum turisti.is kemur fram að með­al­verð gistinætur í heimagist­ingu er fjórum sinnum lægra í Svíþjóð, en þar er með­al­verðið rúmar fimm þús­und krónur. Einnig kemur fram á turisti.is að erfitt sé að fylgj­ast nákvæm­lega með hver veltan á þessum mark­aði er hér á landi þar sem tekjur á mark­aðnum eru taldar upp með mis­mun­andi hætti. Dæmi eru um að tekjur vegna heimagist­ingar hafi verið rang­lega atvinnu­greina­merktar og í ein­hverjum til­vikum gefnar upp sem venju­legar leigu­tekjur.

Samkvæmt nýju lög­unum er aðeins hægt að skrá til heimagist­ingar hús­næði sem skrán­ing­ar­að­ili hefur til per­sónu­legra afnota. Ef skrán­ing­ar­að­ili er ekki eig­andi fast­eign­ar­innar sem skráð er þarf hann að hafa þar lög­heim­ili og sam­þykki eig­anda fast­eign­ar­innar að liggja fyrir. Einnig getur eig­andi fast­eignar skráð fast­eign aðra en lög­heim­ili sitt til heimagist­ingar en ef svo ber undir má eng­inn annar vera skráður þar til lög­heim­ilis. Ef fast­eignin upp­fyllir ekki þessi skil­yrði eða fer fram úr fjölda leyfi­legra gistinótta eða leyfi­legum hámarks­tekjum telst hún vera atvinnu­hús­næði.

Við nán­ari athugun blaða­manns Kjarnans á fyrr­nefndum skrán­ing­ar­núm­erum kom í ljós að fyrsta skrán­ing­ar­núm­erið sem gefið var út til­heyrði íbúð sem aug­lýst er ásamt tveimur öðrum íbúðum á sam­eig­in­legu vef­svæði og undir sam­eig­in­legu nafni. Önnur þeirra íbúða er einnig skráð sem heimagist­ing hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu hin ekki. Verð á þeim gist­ingum eru frá tæp­lega 22 þús­und krónur til rúm­lega 50 þús­und króna hver nótt. Einnig fund­ust dæmi um sveitag­ist­ingar þar sem aug­lýstar voru gistinætur allt árið í kring og verð­skrá gefin upp bæði fyrir vetrar og sum­ar­tíma. Í engum þess­ara til­fella kom skrán­ing­ar­númer fram í aug­lýs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár