Sovétríkin: Ísskápur eða eldflaug?

Rússar þurfa að klára að gera upp for­tíð­ina og kveðja Sov­ét­ríkin. Þetta er efni nýj­ustu bókar rúss­neska rit­höf­und­ar­ins Wladimirs Kaminer. Helga Brekkan ræddi við höf­und­inn í Berlín.

Wladimir Kaminer flutti til Berlínar um það leyti þegar Sovétríkin voru að liðast í sundur árið 1990.
Wladimir Kaminer flutti til Berlínar um það leyti þegar Sov­ét­ríkin voru að lið­ast í sundur árið 1990.

Nýjasta bók rit­höf­und­ar­ins Wladimir Kaminers heitir „Goodbye Moskau“ og er kveðja til Sov­ét­ríkj­anna sem hann ólst upp í. Helga Brekkan hitti Kaminer á Meta Cafe nærri Mauerpark í Berlín.

Bókin „Plötu­snúður rauða hers­ins - Russendisko“, eftir höf­und­inn hefur komið út á íslensku og hefur hún verið þýdd á fjölda tungu­mála og kvik­mynd gerð eftir sög­unni. Kaminer seg­ist hafa heim­sótt Ísland.

„Ég hef nokkrum sinnum heim­sótt Ísland og einu sinni hélt ég fyr­ir­lestur í Reykja­vík með slæds­myndum. Um hvunn­dags­hetjur. Vinur minn safn­aði ljós­myndum af alls­konar fólki. Til dæmis af mönnum að vísa til vegar eða konur við garð­hlið eða fólk upp við hillu­sam­stæður. Alltaf þegar ein­hver keypti svona stóran hillu­vegg var tekin mynd. Vinur minn safn­aði þannig myndum á elli­heim­ilum og flóa­mörk­uðum og ég samdi sögur við mynd­irnar,“ segir Kaminer um teng­ingu sína við Ísland.

„Það gerði ég á Íslandi og fólkið hlust­aði af athygli... og já nú man ég þetta. Þemað var mann­kynið í öllum sínum myndum. Eftir fyr­ir­lest­ur­inn spurði ég hvort það væru ein­hverjar spurn­ingar en svarið var: „Nei, engar spurn­ingar um mann­kynið.“ Það hafði djúp áhrif á mig... sem sagt vel upp­lýstir Íslend­ingar með engar spurn­ingar um mann­kynið.“

Þegar Berlína­m­úr­inn féll flutti Kaminer frá heima­borg sinni Moskvu til Berlínar. Þar lærði hann þýsku og nýtur nú mik­illa vin­sælda sem met­sölu­höf­undur í Þýska­landi og víðar. Hann hefur einnig stjórnað sjón­varps­þáttum þar sem hann ferð­ast um Þýska­land. Og sterkur rúss­neskur hreimur og húmor hefur slegið í gegn.

Persónur bóka hans eru oft­ast fjöl­skyldan; tengda­móðir og móðir börnin tvö og eig­in­konan Olga. En saman mynda þau ásamt fleirum plötu­snúðateymi og útgáf­una Russi­endisko. Þau hafa lengi spilað víða um Evrópu blöndu af rúss­neskri dans­tón­list.

Þú hefur búið hér síðan 1990 ert þýskur rík­is­borg­ari og skrifar á þýsku. Ertu samt alltaf „rúss­inn“ í augum þjóð­verja?

„Satt að segja hef ég mestan áhuga á Evrópu og lít á mig sem Evr­ópu­búa. Hef áhuga á evr­ópskri sögu og hvernig þjóð­irnar hafa lifað saman hver með ann­ari. Hver er grunn­ur­inn að þessu sam­lífi?“ veltir Kaminer fyrir sér.

„Ég lít fyrst og fremst á mig sem Evr­ópu­búa, sér­stak­lega vegna fram­tíð­ar­innar hér og fjöl­skyldu minnar. En ég skil það núna þegar rúss­nesk stjórn­völd hafa ekið svona alger­lega útaf veg­inum, þá tek ég það á mig að reyna að segja frá og útskýra, og segja að Rússar séu í lagi og að þeir muni koma aftur. Að þetta sé mátt­leysi sem líði hjá. Mátt­leysi úr eigin veik­leika og af ótta við að eng­inn muni hjálpa þeim, sem er ekki rétt. Það er bara þess vegna sem ég tala um Rússland. Eig­in­lega væri ég heldur mikið meira með hug­ann við Þýska­land.“

Hver er mun­ur­inn á þýskri og rúss­neskri þjóð­ar­sál?

„Þýska þjóð­ar­sál má finna í orðum eins og for­sjálni. Þeir hugsa mikið um fram­tíð­ina þeir vilja vita hversu há eft­ir­launin sem barna­börnin þeirra fá verða. Á bak­við það er sterk trú um að hægt sé að setja reglur um allt. Setja ramma utan um fram­tíð­ina. Rúss­arnir vita hins vegar að þegar kemur að því að fara á eft­ir­laun þá kemur ríkið og tekur pen­ing­ana; Það eru engar vænt­ingar um fram­tíð­ina. Rúss­neska sálin segir: hér og nú skal lifað því það er engin fram­tíð.“

Í Goodbye Moskau er eins og þú sért að kveðja, heima­landið, Sov­ét­ríkin.

„Það er vanda­samt að kveðja þetta ríki – sem er fallið – því það er samt svo mikið eftir af því enn þá. Leyni­þjón­ustu­for­ingj­arnir stjórna; Þeir sem fengu ekki lengur að vera emb­ætt­is­menn í Austur-Þýska­landi. Þetta eru þeir sem björg­uðu sér á breyt­inga­tímum á meðan ríkið sem þeir áttu að gæta hrundi. En þeir sjálfir héldu velli og passa upp á sjálfa sig og eigið við­ur­væri á kostnað allra hinna,“ útskýrir Kaminer.

„Bókin mín heitir Goodbye Moskau vegna þess að ég vil meina að þessi afar athygl­is­verði og marg­breyti­legi sov­éski tími hefur ekki verið kvaddur almenni­lega. Í rúss­neskri hjá­trú er sagt að það sem er ekki kvatt í alvöru heldur áfram að vera til og gengur aftur í höfði fólks. Til dæmis þá trúa margir Rússar því að lík Lenins beri ábyrgð á því að þjóð­fé­lagið kemst ekki áfram. Ég skrifa til dæmis um það í bók­inni að á meðan þessi Lenin er ekki jarð­settur getur landið ekki haldið áfram veg­inn. Svo eru alls­konar hópar; Ég lýsi einum í bók­inni sem kemur í graf­hýsi Lenins með vígt vatn. Þau skvetta á hann og skipa honum að standa upp og ganga. En það getur hann ekki.“

Þú segir líka frá heila Lenins sem vís­inda­menn hafa fengið hluta af til að rann­saka.

„Já, ég las mér til um það. Þriðj­ungur er hér í Þýska­landi ein­hvers staðar, annar þriðj­ungur í Banda­ríkj­unum og sá síð­asti í Rúss­landi.“

Trúir fólk því að dreif­ing heila Lenins sé óheilla­merki?

“Nei, ekki dreif­ing heil­ans út af fyrir sig, heldur líkið. Múmían hún þarf að kom­ast út. Allar mann­eskjur eiga það skilið að vera grafnar á ein­hvern hátt. Og Sov­ét­ríkin líka. Eins og Þjóð­verjar gerðu með nas­isma þar sem voru sett nokkuð skýr mörk, þannig ættu Rússar einnig að gera upp komm­ún­ismann. Þannig að hver mann­eskja – að minnsta kosti þær sæmi­lega skyn­sömu – geta sagt við hið svo­kall­aða hægra- og vinstra­öfga­fólk: „Þakka ykkur fyrir athygl­is­verðar hug­myndir en við höfum þegar prófað þetta og það virkar ekki“.“

Fyrsta saga bókarinnar fjallar um ísskáp

„Ísskáp­ur­inn er nokk­urs konar lík­ing fyrir Sov­ét­ríkin. Allir sem ólust upp í þessu ríki – eins og ég – spyrja sig hver til­gang­ur­inn hafi verið. Það hlýtur að hafa verið ein­hver til­gangur... og varð­andi þennan risa­ís­skáp er það eins. Enginn veit fyrir hvað hann var byggður. Þeir sem það gerðu eru löngu dánir,“ segir Kaminer.

„Senni­lega er þetta raun­veru­lega eld­flaug sem fljúga á til sól­ar­innar. Og hér fjallar þetta um það þegar heilt ríki flýgur um borð í ísskáp til sól­ar­innar. Ísskápsagan er sönn eins og allar, ég bý þetta ekki til.“

Önnur sagan um frænkuna í Donetsk

Í ann­ari frá­sögn krist­all­ast sam­bandið á milli Rúss­lands og Úkraínu í frænku þinni.

„Vanda­málið með frænk­una í Donetsk var að hún fór til skiptis á mis­mun­andi mót­mæli. Það fór eftir skapi hennar en svo vakti hún grun­semdir hjá báðum hópum og varð að flýja. Sagan um frænk­una útskýrir kannski mann­legu hörm­ung­arnar sem dynja á fólki í Austur-Úkraínu að tveir þriðju hlutar íbú­anna hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín.“

Kaminer segir sög­una hins vegar ekki skýra stríðið í Úkraínu út af fyrir sig. „Því þessi mót­mæli sem hún tók þátt í voru frið­sam­leg. Alveg eins og á Krím­skaga áður. Það er ekki eins og þetta fólk hafi fallið niður af tungl­inu. Þetta var greini­leg inn­rás rúss­neskra sér­sveita. Hvorki her­námið á Krím­skaga né stríðið í Austur-Úkraínu hófust með fólk­inu þar. Heldur með inn­rás rúss­neska hers­ins. Á Krím­skaga hernumdu þeir þingið og tóku þing­menn sem gísla og þving­uðu til að leysa upp þingið. Síðan settu þeir annað fólk í stól­ana sem héldu þessar gervi­kosn­ingar. Í Donetsk var þetta nákvæm­lega eins.“

Þú komst til Þýska­lands frá fallandi Sov­ét­ríkj­unum. Nú er nýr hópur Rússa að setj­ast að í Berlín.

„Nú koma margir blaða­menn og allir sem hafa eitt­hvað að gera með fjöl­miðla því frelsi fjöl­miðla í Rúss­landi er ógnað. Allir fjöl­miðlar eru undir hæl stjórn­valda. Allir þeir sem neita að fylgja þeirri línu eru reknir eða fara til útlanda. Núna eftir fjölda­mót­mælin í lok mars eru fréttir frá Rúss­landi sem eru frá mínu sjón­ar­horni mjög mik­il­vægar og jákvæðar. Ég legg mikið á mig við að segja frá því hér í Þýska­landi og víðar í Evrópu að Rússar láta ekki bjóða sér hvað sem er frá stjórn­völdum og að þau eru ekki jafn andsnúin Evrópu og stjórn­völd þar. Ég segi frá því að Rússar séu í fínu lagi, þeir eigi bara í vand­ræðum með stjórn­völd.“

„Það er mjög mik­il­vægt fyrir mig að segja frá þessu og því sem er jákvætt. Og stöðugt er ég spurður um þessar tölur úr rúss­neskum skoð­ana­könnun: 86% stuðn­ingur! Í mót­mæl­unum á sunnu­dag­inn sáum við að það er ekki svo. Margir eldri – svona 60% – sitja heima og glápa á sjón­varpið en restin fór út á götu – um það bil 40% – að mót­mæla. Það var unga fólkið, þessir ungu strákar sem klifr­uðu upp á ljósa­staur við Pushkin-torgið.“

Og núna er búið að loka torg­inu verið að gera við stytt­una.

„Já, Puskin er alltaf sá seki!“

Hvað myndi þjóð­skáldið segja í dag?

„Hann myndi örugg­lega segja það sem strák­arnir sögðu uppi í ljósastaurnum. Af spill­ingu Medvedev for­sæt­is­ráð­herra, hvers spill­ingu fólkið var að mót­mæla. Sá er hrif­inn af orðum eins og: „Það eru ekki til pen­ingar en þraukið áfram.“ Það við­hafði hann umkringdur elli­líf­eyr­is­þegum.“

„Og þessir strákar þegar lög­reglan sá þá uppi í ljósastaurnum, þeir sögðu við lögg­urnar: „Við höfum enga pen­inga en við þraukum áfram!““

Hvert heldur þú að verði fram­haldið í Rúss­landi?

„Pútín er undir pressu, hann getur ekki gefið eftir því það þýðir að hann verður að láta sitt fólk fjúka. Hann getur ekki hent þessum for­sæt­is­ráð­herra út um glugg­ann. Því þá segja allir hinir félag­arnir í kringum hann: „Hey, hann gefur eftir bara vegna þrýst­ings frá fólki á göt­unni.“ Og það myndi veikja völd hans. Og því verður hann að auka valdið og ofsóknir. En hann heldur sig innan marka, eins og allir svona hálf-ein­ræð­is­herrar. Jafnvel þó hann vildi, þá getur hann ekki orðið Stalín.“

Hvernig var að koma til Berlínar með tvær hendur tómar fyrir 27 árum?

„Þegar ég kom til Berlínar árið 1990 þurfti ég að fylla út eyðu­blað með nafn­inu mínu og þar var þessi spurn­ing: „Hvers vegna viltu búa í Þýska­landi?“ Maðurinn við hlið­ina á mér skrif­aði: „Af því ég elska þýska menn­ingu, Nietzsche og Wagner.“ Ég skrif­aði það sama eftir honum, eins og strákur frá Afganistan sem var við hlið­ina á mér og þetta gerðu svo aðrir í röð­inni. Þetta varð svona keðju­verkun og skyndi­lega vorum við allir miklir aðdá­endur þýskrar menn­ingar.“

„Það hefur mjög margt breyst síðan ég flutti hingað, en það eru enn margir staðir eins. Til dæmis þetta kaffi­hús sem við sitjum á; það var hérna þegar ég kom og þá áttu þeir í vand­ræðum með rekst­ur­inn. Ég spurði mig fyrir 27 árum hvernig þeir færu að þessu? En ein­hvern veg­inn gengur þetta alltaf áfram. Berlín getur tekið við mörgum því borgin er nógu stór. Hér geta verið fjölda­mót­mæli, hátíðir og annað í gangi sam­tímis en ef maður vill vera í friði þá er það líka hægt.“

„Þegar ég var á Íslandi tók ég eftir því flest það sem fólk vill skoða er grjót eða úr grjóti. Við fórum í skoð­un­ar­ferð með konu sem sýndi okkur hvar fólk býr í steinum og ég lærði það. Ég nota þetta þegar ég sé stóra steina í Berlín, til dæmis hér í Mauerpark.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár