Brasilísku gettóstrákarnir sem sigruðu heiminn

Bræð­urnir Igor og Max Cavalera eru á leið til lands­ins. Hverjir eru þetta? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér sögu þeirra og magn­aðan feril í heimi þung­arokks­ins.

Meðlimir þung­arokks­hljóm­sveit­ar­innar Sepultura, og þá einkum bræð­urnir Cavalera, eru hylltir sem þjóð­hetjur í heima­landi sínu Brasilíu líkt og Pelé, Paulo Coelho og Ayrton Senna. Það er sjald­gæft að tón­list­ar­menn frá þriðja heims löndum nái við­líkri frægð og þeir náðu fyrir rúm­lega 20 árum síðan þegar þeir spil­uðu fyrir hund­ruðir þús­unda á tón­leikum og seldu millj­ónir platna. Þeir nýttu sér þessa sér­stöðu í tón­list­inni sem þró­að­ist hratt á leið þeirra á topp­inn. En áföll og hjaðn­inga­víg gerðu þá einnig eitt umtal­að­asta og umdeildasta band síns tíma.

Skóli eða rokk

Cavalera fjöl­skyldan bjó í Sao Paulo, stærstu borg Brasilíu, á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn Graziano var ítalskur að upp­runa og vann sem erind­reki í sendi­ráð­inu og móð­irin Vania starf­aði sem fyr­ir­sæta. Þau áttu þrjú börn, bræð­urna Max og Igor og Kiru litlu systur. Fram­tíðin var björt hjá fjöl­skyld­unni og árið 1979 var stefnan sett á Róm­ar­borg, þar sem Graziano bauðst staða.

En þá kom upp atburður sem setti allt úr skorðum. Fjöl­skyldan var á leið í barna­af­mæli þegar Graziano fékk hjarta­á­fall undir stýri og lést, ein­ungis rúm­lega fer­tugur að aldri. Max og Igor, sem voru í bílnum, voru ein­ungis 10 og 9 ára gamlir á þeim tíma. Með Graziano fór fjár­hag­ur­inn og Vania þurfti að flytja til for­eldra sinna í borg­inni Belo Horizonte skömmu síðar. Lífið var erfitt í Belo Horizonte en bræð­urnir fengu útrás fyrir gremju sinni í tón­list. Sem börn höfðu þeir lært á hljóð­færi og spilað samba og aðra þjóð­lega tón­list. Max á gítar en Igor á trommur.

En á ung­lings­ár­unum komust þeir í kynni við rokktón­list hljóm­sveita á borð við Queen, Deep Purple og Black Sabbath. Smekk­ur­inn þyngd­ist sífellt og þeir stofn­uðu loks hljóm­sveit­ina Sepultura (gröf á portú­gölsku) árið 1984 þegar þeir voru 14 og 13 ára gamlir. Breska hljóm­sveitin Venom var helsta fyr­ir­myndin hjá Sepultura-liðum sem spil­uðu nýja teg­und af tón­list, dauðarokk. Móðir þeirra var síður en svo letj­andi í þessu fikti bræðr­anna og hún gerði svo­lítið sem fæstum for­eldrum dytti í hug. Hún lét þá velja um að halda áfram í skóla eða hætta og ein­beita sér að fullu að tón­list­inni. Þeir völdu seinni kost­inn og Vania tók það að sér að ýta Sepultura úr vör. Hún klæddi þá í leð­ur­jakka og rifnar galla­buxur, klippti þá, keyrði þeim á tón­leika og gerði húsið þeirra að mið­stöð og æfinga­hús­næði hljóm­sveit­ar­innar. Árið 1985 kom fyrsta EP-platan út, titluð Bestial Devastations en þá voru Max og Igor ein­ungis 16 og 15 ára gamlir.

Frægðarstiginn

Bestial Devastations var gefin út hjá litlu brasil­ísku útgáfu­fyr­ir­tæki að nafni Cogumelo Records og ber þess glögg­lega merki að vera verk barna, þ.e. hvað varðar laga­smíð, hljóð­færa­leik og upp­töku. Á ung­æð­is­legan hátt var Max titl­aður sem “hinn and­setni” og Igor sem “kúpu­brjót­ur­inn” á plöt­unni. En hún sáði fræum fyrir fyrstu plötu þeirra í fullri lengd, Morbid Visions, sem kom út ári seinna. Manna­breyt­ingar voru tíðar í bland­inu á upp­hafs­ár­unum en Cavalera bræður voru stað­ráðnir í því að „meik­aða”.

Þeir fluttu með bassa­leik­ar­anum Paulo Xisto til Sao Paulo til að fá fleiri tæki­færi á að koma sér á fram­færi og þar kynnt­ust þeir gít­ar­leik­ar­anum Andreas Kisser sem gekk til liðs við þá. Þegar önnur plata þeirra í fullri lengd, Schizophrenia, kom út árið 1987 var bæði kom­inn á stöð­ug­leiki og umtals­verðar fram­farir í tón­smíð og hljóð­færa­leik. Tón­list­ar­stefna þeirra var einnig að þró­ast á þessum tíma úr hreinu dauðarokki yfir í hraðan thrash-metal.

Það var á þessum tíma sem að umheim­ur­inn fór að taka eftir band­inu og hol­lensk/amer­íska útgáfu­fyr­ir­tækið Roa­drunner Records voru fyrstir til að grípa gæs­ina. Líkt og góðir íþrótta­menn bættu þeir sig með hverri plöt­unni. Beneath the Remains kom út árið 1989 og vakti heims­at­hygli innan þung­arokks­ins og fékk ómælt lof gagn­rýnenda. Sepultura spil­uðu sína fyrstu tón­leika í Banda­ríkj­unum á hrekkja­vöku þetta sama ár og ári seinna höfðu þeir flutt höf­uð­stöðvar sínar til Phoenix í Arizona fylki. Aðlög­unin tók nokkurn tíma vegna þess að með­limir hljóm­sveit­ar­innar töl­uðu nán­ast enga ensku þrátt fyrir að hafa gefið út fjórar plötur á tungu­mál­inu.

Um þetta leyti gift­ist Max umboðs­manni hljóm­sveit­ar­innar, Gloriu Bujnowski, sem vakti nokkra athygli í ljósi þess að hún var 15 árum eldri en hann. Sig­ur­ganga Sepultura hélt áfram með Arise, fyrstu gull­plöt­unni, árið 1991 og þá var farið að nefna Sepultura í sömu andrá og risa­bönd á borð við Metallica, Slayer og Anthrax. Igor var einnig far­inn að vekja athygli sem einn fær­asti trymb­ill rokk­heims­ins. En tón­list hljóm­sveit­ar­innar var ennþá í mótun. Þegar Chaos A.D. kom út árið 1993 voru dauðarokks­á­hrifin nán­ast horfin en pönkið farið að láta á sér kræla. Text­arnir fjöll­uðu ekki lengur um skrímsli og djöfla heldur um raun­veru­leg sam­fé­lags­leg mál­efni. Platan var mun hæg­ari en fyrri plötur og Sepultura-liðar leyfðu sér tölu­verða til­rauna­starf­semi. Eitt lag á Chaos A.D. fékk marga til að lyfta annarri augna­brún­inni, þ.e. hið óraf­magn­aða og söng­lausa “Kaiowas” sem var nokk­urs konar óður til frum­byggja Brasilíu. Það var þó ein­ungis for­smekk­ur­inn.

Rætur

Haustið 1995 héldu Sepultura-liðar djúpt inn í Amazon-frum­skóg­inn til að hitta frum­byggja úr ætt­bálki sem kallar sig Xavante. Þrátt fyrir að vera Bras­il­íu­menn var þetta ver­öld sem var þeim alger­lega fram­andi. Sem betur fer tal­aði höfð­ingi ætt­bálks­ins örlitla portú­gölsku og því gátu þeir átt sam­skipti við frum­byggj­ana. Þeir dvöldu þar um stund, spil­uðu fyrir þá, lærðu af þeim og fengu inn­blástur. Höfð­ing­inn sagði þeim að tón­list Xavante-ætt­bálks­ins væri ekki samin heldur kæmi til þeirra í draumi. Sepultura bjuggu til og hljóð­rit­uðu þar tvö lög við erf­iðar aðstæður þar sem þeir þurftu að nota bílaraf­hlöð­una til að knýja upp­töku­tækið.

Þarna var tónn­inn sleg­inn fyrir næstu plötu þeirra, Roots, sem er án efa þeirra þekktasta verk og ein af þeim plötum sem mót­uðu þung­arokks­sög­una. Sepultura fengu marga að borð­inu við gerð plöt­unnar, þar á meðal samba-slag­verks­leik­ar­ann Carlinhos Brown sem útsetti tromm­urnar og slag­verkið í sam­vinnu við Igor. Útkoman var ein­stakur bræð­ingur af þjóð­legum og alþjóð­legum straumum. Ein af mik­il­væg­ustu per­són­unum við gerð plöt­unnar var Dana Wells, stjúp­sonur Max en þó ein­ungis 6 árum yngri.

Hann kynnti hljóm­sveit­ina fyrir hinni nýju bylgju nu-metals sem var að ryðja sér til rúms í Banda­ríkj­unum með hljóm­sveitum á borð við Korn, Deftones og Limp Bizkit. Þessi áhrif leyndu sér ekki við gerð Roots og Wells kom þar mikið við sögu. Platan sló ræki­lega í gegn, seld­ist í bíl­förmum og sást ofar­lega á almennum vin­sæld­ar­listum um allan heim. Frægð hljóm­sveit­ar­innar náði nú út fyrir heim þung­arokks­ins. Þeir voru orðnir að þriðja heims tón­list­ar­hetjum, líkt og Bob Marley, Youssou N´dour og Ravi Shankar. Þetta var hlut­verk sem þeir tóku opnum örmum sem sást best þegar þeir gerðu ábreiðu af Bob Marley lag­inu “War” sem er byggt á ræðu Eþíóp­íu­keis­ar­ans og Ras Tafari spá­manns­ins Haile Selassie I. Max Cavalera tók þetta sér­stak­lega upp á sína arma, þar sem hann fór að skarta rasta-fléttum, skreyta sig með ætt­bálkaglingri og tala eins og sós­íal­ískur skæru­liða­for­ingi í við­tölum. Frægð hans olli því hins vegar að hinir með­limir hljóm­sveit­ar­innar fóru að ókyrr­ast.

Et tu, Igor?

Sumarið 1996 túr­uðu Sepultura um Evrópu sem eitt stærsta rokkkband heims­ins og fram­tíðin virt­ist ákaf­lega björt. En skömmu áður en hljóm­sveitin átti að stíga á svið á Monsters of Rock hátíð­inni í Englandi þann 17. ágúst fengu Max og Gloria þær fréttir að Dana Wells hefði lát­ist í bílslysi heima í Phoenix. Hjónin flugu strax heim en bandið spil­aði sem þrí­eyki þennan dag og Andreas Kisser leiddi hljóm­sveit­ina í fjar­veru Max.

Skömmu síðar fund­uðu þeir með Max þar sem þeir kröfð­ust þess að Gloria myndi stíga til hliðar sem umboðs­maður Sepultura. Þeir sögðu að fókus Gloriu væri alfarið á honum sjálfum á meðan þeir sætu eftir. Max tók þessu afar illa og sagði skilið við hljóm­sveit­ina. Honum fannst sem bróðir sinn hefði svikið sig og Kisser stolið band­inu af sér. Næstu vikur og mán­uði var um fátt annað fjallað í rokk­press­unni en Sepultura-skiln­að­inn og aðdá­end­urnir skipt­ust í tvær fylk­ingar. En hver yrði ofan á?

Árið 1997 fór í að melta atburð­ina og að skipu­leggja næstu skref. Sepultura réðu nýjan söngv­ara, hinn banda­ríska Derrick Green, á meðan Max stofn­aði nýja hljóm­sveit, Soulfly. Báðar hljóm­sveit­irnar gáfu út plötur ári seinna. Plata Sepultura, Against, olli miklum von­brigðum bæði hvað varðar sölu og gagn­rýni. Max náði hins vegar að halda dampi með því að halda sér á svip­uðum slóðum og Sepultura höfðu gert með Roots. Hann hélt frum­byggja og heims-þem­anu áfram og fékk nu-metal stjörnur á borð við Chino Moreno úr Deftones og Fred Durst úr Limp Bizkit til að koma fram á sam­nefndu frum­verki Soulfly. Hann fór einnig dýpra inn í and­lega og trú­ar­lega þætti í texta­gerð sinni. Tónlist hans féll ein­fald­lega betur að tíð­ar­anda þung­arokks­ins á þessum tíma en tón­list Sepultura sem þótti stöðnuð og óspenn­andi. Hann stólaði þó mikið á forna frægð á tón­leikum og spil­aði mikið af eldra Sepultura efni. En skiln­að­ur­inn kom á end­anum niður á báðum aðilum. Vin­sæld­irnar og plötu­salan hríð­féll með hverri plöt­unni á fyrsta ára­tug 21. ald­ar­innar og gald­ur­inn virt­ist vera horf­inn. Það eina sem hreyfði við fólki var til­hugs­unin um sættir milli aðil­anna og að gamla Sepultura myndi ein­hvern tím­ann stíga aftur á svið.

Sögulegar sættir

Í júlí mán­uði árið 2006 fékk Gloria Bujnowski óvænt sím­tal frá Igor Cavalera. Hann var þá hættur í Sepultura og baðst afsök­unar á fram­ferði sínu. Svo var Max réttur sím­inn en það var í fyrsta skipti í 10 ár sem bræð­urnir töl­uð­ust við. Þeir sætt­ust sam­stundis og Max bauð honum til Phoenix í heim­sókn. Skömmu síðar spil­aði Igor nokkur gömul Sepultura lög á tón­leikum með Soulfly við mikil fagn­að­ar­læti áhorf­enda. Max sagði honum (rang­lega) að hann væri með heila plötu til­búna sem þeir bræður gætu unnið saman að og Igor sló til.

Úr varð hljóm­sveitin Cavalera Conspiracy sem hefur gefið út 3 plötur síðan þá. Hljóm­sveitin spilar gam­al­dags thrash-metal og dauðarokk og er nokk­urs konar aft­ur­hvarf til gull­aldar Sepultura á níunda og tíunda ára­tugnum, þó að vin­sæld­irnar og plötu­salan hafi ekki náð sömu hæðum. Aðdá­endur voru þó ánægðir með að sjá bræð­urna aftur sam­an­komna á sviði. Ennþá heyr­ast þó þær raddir sem vilja fá að sjá alla gömlu hljóm­sveit­ina sam­an­komna en sam­bandið milli Max og Andres Kisser er ennþá mjög stirt. Þeir senda hvorum öðrum reglu­lega pillur í við­tölum og þegar þeir mæt­ast á tón­leika­há­tíðum er and­rúms­loftið ávallt vand­ræða­legt og þrúg­andi.

Cavalera Conspiracy hefur alltaf verið hlið­ar­verk­efni hjá bræðr­unum. Soulfly er ennþá aðal­hljóm­sveit Max og hefur nú gefið út 10 plötur. Igor (eða Iggor eins og hann kallar sig nú) býr nú í Lundúnum, hannar föt og spilar með eig­in­konu sinni í elektrónísku dans­hljóm­sveit­inni Mixhell. Árið 2016 voru liðin 20 ár frá því að platan Roots kom út og í til­efni af því ákváðu Cavalera bræð­urnir að spila plöt­una í heild sinni á tón­leika­há­tíð í Kanada þá um sum­arið, undir nafn­inu Max & Iggor Return to Roots.

Það gekk það vel að þeir skipu­lögðu tón­leika­ferð um Ameríku og Evrópu um haustið með sama fyr­ir­komu­lagi. Ferða­lagið var svo fram­lengt fram á árið 2017 og nýlega var til­kynnt að bræð­urnir myndu spila hér á Íslandi í fyrsta sinn. Þeir munu stíga á stokk þann 7. júlí í Nes­kaups­stað á tón­list­ar­há­tíð­inni Eistna­flugi ásamt fleiri þekktum rokk­núm­erum. Þrátt fyrir tak­mark­aðan fjölda sem kemst þar að er ekki hægt að segja annað en að þetta sé einn af stærri við­burðum í rokk­sögu Íslands, enda hafa bræð­urnir selt meira en 20 millj­ónir platna í gegnum tíð­ina og eru meðal umtöl­uð­ustu þung­arokk­ara allra tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár