Norsk samkeppnisyfirvöld höfnuðu kaupum Eimskips á norsku fyrirtæki

Sam­keppn­is­yf­ir­litið í Noregi hefur hafnað kaupum Eimskips á norska flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu Nor Lines. Þau hefðu haft hamlandi áhrif á mark­að­inn. Mikil von­brigði segir for­stjóri Eimskips.

Norska sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stöðvað kaup Eimskips á norska flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu Nor Lines. Samkvæmt ákvörðun sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefðu kaupin haft veru­leg hamlandi áhrif á sam­keppni í flutn­ingi á frystum fiski með frysti­tog­urum frá Norður-Noregi til Norður-Evrópu.

Eimskip og Nor Lines eru sam­keppn­is­að­ilar og eru tvö stærstu fyr­ir­tækin á þessum mark­aði. Sam­an­lagt hafa fyr­ir­tækin stóran hluta mark­að­ar­ins, en nú þegar séu fáir sam­keppn­is­að­ilar á mark­aðnum. Mat norska sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var það að Eimskip myndi geta hækkað verð eða minnkað gæða­kröfur ef sam­ein­ingin ætti sér stað.

Í til­kynn­ingu sem Eimskip sendi til Kaup­hallar í morgun kemur fram að félagið muni leita ann­arra leiða til að þróa og efla starf­semi sína í Noregi. „Þessi nið­ur­staða er félag­inu mikil von­brigði þar sem norsk sam­keppn­is­yf­ir­völd horfðu mjög þröngt á mark­að­inn og telja Eimskip vera mark­aðs­leið­andi í flutn­ingum á frystum fiski í Norður Noregi. Ég tel að sam­keppn­is­yf­ir­völd hafi gert mis­tök með þess­ari þröng­sýnu ákvörðun sinni,“ segir Gylfi Sig­fús­son, for­stjóri Eimskips, í til­kynn­ing­unni til Kaup­hallar.

Tilkynnt var um fyr­ir­huguð kaup Eimskips á Nor Lines í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár