Í þá tíð… Fjöldasjálfsmorð Heaven‘s Gate

Tugir með­lima sér­tú­ar­safn­að­ar­ins Heaven‘s Gate fund­ust látnir eftir fjölda­sjálfs­morð. Fólkið von­að­ist til þess að sálir þeirra myndu hverfa upp í geim­skip sem fylgdi hala­stjörnu sem sigldi nálægt Jörðu.

Óhugnanleg sjón blasti við lögreglumönnum sem komu inn í hýbýli Heaven‘s Gate þar sem lík 39 meðlima lágu, snyrtilega til lögð.
Óhugn­an­leg sjón blasti við lög­reglu­mönnum sem komu inn í hýbýli Heaven‘s Gate þar sem lík 39 með­lima lágu, snyrti­lega til lögð.

Á þessum degi fyrir réttum 20 árum síðan, hinn 26. mars 1997, fékk lög­reglan í San Diego í Banda­ríkj­unum nafn­lausa ábend­ingu um að eitt­hvað ein­kenni­legt væri á seiði í stór­hýsi einu í úthverfi borg­ar­innar. Þegar lög­reglu­menn komu á svæðið fundu þeir 39 lík, öll klædd í svarta íþrótta­galla og svart­hvíta Nike skó, með plast­poka á höfð­inu undir fjólu­bláu klæði.

[links]Fólkið reynd­ist vera með­limir sér­trú­ar­safn­að­ar­ins Heaven‘s Gate, og hafði stytt sér aldur með því að taka inn lyfja­blöndu áður en þau drógu plast­pok­ana yfir höf­uðið og köfn­uðu.

Á meðal þeirra látnu var for­víg­is­maður og annar stofn­enda safn­að­ar­ins, Marshall Applewhite að nafni, en þessi sorg­ar­at­burður átti sér ald­ar­fjórð­ungs for­sögu þar sem fram­vindan virð­ist oft eins og tekin upp úr vís­inda­skáld­sögu - enda sóttu stofn­end­urnir inn­blástur í skáld­skap og sjón­varps­þætti.

[adspot]

Tvíeykið og Geimveruguðinn

Upphaf safn­að­ar­ins er rekið til þess þegar leiðir Applewhites og Bonnie Nettles lágu saman árið 1972. Applewhite hafði komið víða við en hafði, þegar þarna kom við sögu, nýlega verið sagt upp störfum sem tón­list­ar­kenn­ari við háskóla í Texas vegna sam­bands síns við nem­anda. Nettles var hjúkr­un­ar­kona á ein­hvers konar stofnun þar sem Applewhite leit­aði sér lækn­inga vegna geð­rænna vanda­mála.

Eftir stífar trú­speki­legar vanga­veltur töl­uðu þau sig niður á að þau væru vott­arnir tveir sem talað er um í Opin­ber­un­ar­bók Jóhann­esar. Þau væru verk­færi almætt­is­ins til að upp­fylla lög­mál Bibl­í­unnar.

Með þessa full­vissu í fartesk­inu, og fátt annað, lögðu þau land undir fót og ferð­uð­ust um landið þvert og endi­langt til að afla trú sinni fylgd­ar­manna. Meg­in­stefið í þeirra boð­skap var að Guð bibl­í­unnar væri í raun afar háþróuð geim­vera sem hefði í huga að „end­ur­vinna“ Jörðina og aðeins þeir sem hög­uðu lífi sínu og trú eftir for­skrift­inni ættu þess kost að láta lyfta sér upp á næsta til­veru­stig.

Þrautseigjan borgaði sig

Ekki blés byr­lega fyrir þeim á ferða­lag­inu og þau voru í meira en ár að heilla fyrsta með­lim­inn um borð, sem reynd­ist þó ekki þaul­set­inn og hvarf á brott skömmu síðar. Eljan og sann­fær­ingin sem knúði Applewhite og Nettles áfram skil­aði sér þó að lokum og um miðjan átt­unda ára­tug­inn sóttu jafnan tugir eða hund­ruð manna kynn­ing­ar­fundi þeirra og undir lok ára­tug­ar­ins taldi söfn­uð­ur­inn um 70 fasta með­limi og flakk­aði milli sama­staða í Suður-Kali­forníu.

Eitt af aðal­á­herslu­málum safn­að­ar­ins var ein­streng­ings­leg eins­leitni þar sem hvert smá­at­riði í dag­legu lífi safn­að­ar­með­lima var útli­stað og fylgjt eftir af mik­illi nákvæmni. Meðal ann­ars var stærð og þykkt morg­un­verð­ar­pönnu­kakanna stöðluð, sem og magn síróps og smjörs sem átti að nota.

Engum sögum fer af nokk­urri kúgun, arðráni eða mis­notkun á með­limum Heaven‘s Gate, enda kom fólk og fór eins og því sýnd­ist og stund­aði vinnu sína á dag­inn. Raunar voru þau afar vel séð, enda stund­vís og lús­iðin.

Internetbyltingin og „Brottförin“

Nettles lést úr krabba­meini árið 1985 og við það hrikti eilítið í kenn­ing­ar­kerfi Heaven‘s Gate, en við end­ur­skoðun þótti ljóst að Nettles væri komin um borð í geim­skipið góða sem sigldi í kjöl­far hala­stjörn­unnar Hale-Bopp og nálg­að­ist Jörðina óðfluga.

Applewhite og fylgj­endur hans lögðu því mikla áherslu á að breiða fagn­að­ar­er­indið út sem víð­ast og tóku í sína þjón­ustu nýj­ustu tækni, hið svo­kall­aða Internet.

Heaven‘s Gate setti meðal ann­ars upp vef­síðu, sem var ekki á allra færi á miðjum tíunda ára­tugnum, og raunar var vef­hönnun ein helsta tekju­lind safn­að­ar­ins á þeim tíma. Í gegnum síð­una var hægt að nálg­ast fræðslu­efni og mynd­skeið og er raunar enn þann dag í dag þar sem síðan er enn uppi og er við­haldið af tveimur eft­ir­lif­andi með­limum. Útlit hennar er hins vegar óbreytt og ber sann­ar­lega keim af þeim tíð­ar­anda sem ríkti í vef­hönnun á þessum spenn­andi mót­un­ar­tíma nets­ins.

Þegar stytt­ist í að Hale-Bopp kæm­ist sem næst jörð­inni, á 4.000 ára spor­baug sínum um sól­ina, fóru með­limir að hugsa sér til hreyf­ings.

Hér má sjá lokaávarp Applewhites, sem var tekið upp nokkrum dögum fyrir „brottförina“, þegar meðlimir tóku inn lyf og lögðust til hinstu hvílu.

Eftir ítar­legan und­ir­bún­ing og eina loka­mál­tíð á veit­inga­stað í nágrenn­inu, þar sem allir fengu sér það nákvæm­lega sama að borða, hófust þeir handa við „brott­för­ina“ eins og þeir köll­uðu það, þegar þeir hugð­ust kasta af sér hlekkjum hins hold­lega og svífa til móts við örlögin og æðra til­veru­stig í geimnum.

Í þrjá daga voru með­limir teknir í litlum hópum og aðstoð­aðir við gjörn­ing­inn, þar til eng­inn varð eftir, nema eins, og síðar kom í ljós, hinir tveir sem sjá um síð­una og sam­skipti við áhuga­sama.

Heaven‘s Gate hefur enn þann dag í dag sterka sam­fé­lags­lega skírskotun um hinn vest­ræna heim, enda vekja svo­kall­aðir „Death-Cults“ alltaf mikla for­vitni. Heaven‘s Gate er oft til­tekið í svip­uðu sam­hengi og söfn­uður Jim Jones þar sem hund­ruð manna lét­ust, Söfnuð Sól­hofs­ins í Sviss þar sem 48 lét­ust, og söfnuð Davids Koresh í Waco í Texas þar sem 80 manns lét­ust í eldi eftir skot­bar­daga við lög­reglu.

Þó að með­lim­irnir tveir séu enn í sam­skiptum við áhuga­sama segj­ast þeir alls ekki vera að leita að fleiri með­limum. Söfn­uð­ur­inn sé ekki til í dag og þeir ráða fólki frá því að leika eftir „brott­för­ina“, enda hafi það ekk­ert upp á sig fyrst að Hale-Bopp er horfin á braut. Þau bíða hins vegar þol­in­móð eftir því að þeirra tími renni upp og þau fái að stíga upp á hærra stig og hitta trú­bræður og -systur sínar á ný.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár