Af hverju er Big Lebowski svona mikið költ?

Kvikmynd Cohen bræðra, The Big Lebowski, kom út árið 1998. Hún er orðin að költskrímsli. En hvers vegna? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti Big Lebowski sam­fé­lagið.

Hefð­bundin skil­grein­ing á költ-mynd er sú að aðdáun á henni nái út fyrir „eðli­leg“ mörk. Yfir­leitt eru költ-myndir söng­leikir, hryll­ings­myndir eða vís­inda­skáld­skapur sem byggja á ein­hverju óvenju­legu eða yfir­nátt­úru­legu. Stark Trek og The Rocky Horror Picture Show eru ein­hver bestu dæmin sem til eru um költ. En af hverju er The Big Lebowski, venju­leg gam­an­mynd um let­ingja sem hefur gaman að keilu, ein allra mesta költ-mynd sem til er?

Rólega af stað

Sjöunda mynd Coen bræðra,The Big Lebowski, kom út vorið 1998 og fékk til­tölu­lega hóg­værar und­ir­tektir, bæði af gagn­rýnendum og bíó­gestum. Atburð­ar­rásin þótti skrítin og stefnu­laus, jafn­vel á þeirra mæli­kvarða, og per­són­urnar líka. Flestum fannst myndin vera virki­leg von­brigði eftir þá mynd sem Coen bræður gerðu á undan, Fargo frá 1996. Hinn frægi kvik­myndarýnir Gene Siskel sagði að Kingpin hefði verið mun betri keilu­mynd en The Big Lebowski.

Í kvik­mynda­húsum náði myndin rétt svo að dekka fram­leiðslu­kostn­að­inn.

Tilurð mynd­ar­innar nær aftur til árs­ins 1989 þegar bræð­urnir Joel og Ethan hrip­uðu niður fyrstu lín­urnar. Hand­ritið var svo gott sem til­búið tveimur árum seinna en þá frestað­ist fram­leiðsla mynd­ar­innar vegna skipu­lags­á­rekstra. Bræð­urnir höfðu skrifað per­són­urnar með ákveðna leik­ara í huga. Sumir af þeim, þ.m.t. Jeff Bridges og Steve Buscemi, voru ekk­ert sér­stak­lega hændir að hand­rit­inu en feng­ust loks til að taka þátt en eftir að þeir höfðu unnið að öðrum verk­efnum. Bræð­urnir geymdu því hand­ritið og gerðu The Hudsucker Proxy (1994) og Fargo í milli­tíð­inni.

The Big Lebowski ger­ist árið 1991 en atburð­ar­rásin er í stórum dráttum fengin úr film noir bókum og kvik­myndum frá fimmta og sjötta ára­tugnum. Sérlegan inn­blástur fengu þeir úr verkum um einka­spæj­ar­ann Philip Marlowe, sem rit­höf­und­ur­inn Raymond Chandler skóp og leik­arar á borð við Humphrey Bogart, James Garner og Robert Mitchum hafa túlkað í gegnum tíð­ina. Fyr­ir­mynd­irnar af helstu per­sónum mynd­ar­innar voru hins vegar fengnar frá ýmsu fólki sem bræð­urnir höfðu kynnst úr kvik­mynda­brans­anum. Má þar helst nefna fram­leið­and­ann Jeff Dowd, fyrrum hippa sem kall­aður er Dude og drekkur hvíta rússa, og byssu­óða leik­stjór­ann John Milius.

Költ verður til

Kvik­myndir verða ekki költ sam­stundis heldur tekur það yfir­leitt nokkurn tíma. Í til­felli The Big Lebowski gerð­ist það eftir að hún kom út á DVD disk. Salan á mynd­inni jókst stöðugt og fleiri fóru að taka eftir henni. Um þremur árum eftir að hún kom út er hægt að tala um að eig­in­legt æði hafi átt sér stað. Tekjur af DVD sölu voru fimm­faldar á við tekj­urnar úr kvik­mynda­hús­unum. Myndin vakti sér­staka hrifn­ingu meðal háskóla­nema og hún hefur senni­lega verið til á hverju ein­asta her­bergi á hverri ein­ustu heima­vist í Banda­ríkj­unum. Aðdá­endur, sem nú voru farnir að kalla sig „afreks­fólk“ (sbr. Little Lebowski Urban Achievers), voru farnir að tala á ákveð­inn hátt, þ.e. í frösum úr mynd­inni. Þeir urðu fljótir að spotta hvern annan og fóru að átta sig á því að hér var um tölu­vert stórt sam­fé­lag að ræða.

Árið 2002 tóku nokkrir aðdá­endur sig saman og héldu hátíð til heið­urs mynd­inni í borg­inni Louisville í Kentucky fylki. Hátíðin heitir Lebowski Fest og hefur verið haldin á hverju ein­asta ári síðan. Aðdá­endur í mörgum öðrum borgum Banda­ríkj­anna og í Bret­landi hafa fylgt for­dæmi þeirra og komið á legg sinni eigin Lebowski-hátíð. Á þessum hátíðum koma gestir klæddir sem per­sónur úr mynd­inni, það er horft á mynd­ina, keppt í keilu, spiluð tón­list úr mynd­inni og með Creedence Clearwater Revival, haldnar spurn­inga­keppnir og svo eru auð­vitað drukknir ófáir hvítir rússar. Margir af aðal­leik­urum mynd­ar­innar hafa heim­sótt þessar hátíðir. Jeff Bridges sem er sér­lega dug­legur við að rækta aðdá­enda­hóp­inn er tíður gestur á þeim.

Orðið költ felur í sér trú­ar­lega teng­ingu og í vissum til­vikum getur aðdá­unin leitað inn á þær brautir. Það hefur t.a.m. gerst í til­viki Star Wars (Jedi-trú­ar­brögðin) og knatt­spyrnu­manns­ins Diego Maradona (Kirkja Maradona). Árið 2005 stofn­aði maður að nafni Oliver Benjamin trú­ar­reglu sem nefn­ist dudeismi. Starf­semin fer að mestu fram á net­inu og þar er hægt að sækja um að ger­ast vígður prestur. Um 350.000 manns um allan heim hafa gert það og í sumum fylkjum Banda­ríkj­anna hafa þeir hjóna­vígslu­rétt­indi. Dudeismi er laus­lega byggður á búdd­isma og taó­isma en kenni­setn­ingar eru fáar og ein­faldar. Skipulag er ekki það sem þessi trú­ar­brögð snú­ast um. Benjamin segir: „Því afslapp­aðra sem við höfum það, þeimun meira dude verður það.“

Í dudeisma er þó eitt­hvað skipu­lag. T.d. er haldið upp á hátíð­ina Kera­batsmas (í höf­uðið á per­són­unni Donny Kera­batsos) þann 13. des­em­ber ár hvert en það er afmæl­is­dagur Steve Buscemi. En eins og á öðrum hátíð­ar­dögum dudeisma þá felst hátíð­ar­haldið aðal­lega í því að slappa af. Jeff Bridges sjálfur hefur einnig kannað and­legu hlið kvik­mynd­ar­innar. Árið 2014 gaf hann ásamt búddíska zen-meist­ar­anum Bernie Glassman út bók­ina The Dude and the Zen Master þar sem þeir eiga sam­ræðu um eðli per­són­unnar og þann lær­dóm sem hægt er að draga úr mynd­inni. Glassman full­yrðir að ýmsar setn­ingar úr mynd­inni eins og t.d. „The Dude abides“ og „Donny, you´re out of your elem­ent“ séu í raun svokölluð koan-ljóð, sem t.a.m. eru notuð til að þjálfa búdda­munka.

Þetta eru ekki einu dæmin um það hversu aðdá­unin á The Big Lebowski nær langt út fyrir mörk hins eðli­lega. Í hverjum mán­uði kemur út hljóð­varp (podcast) þar sem myndin er krufin til mergjar. Hægt er að kaupa The Big Lebowski pakka, sem inni­heldur m.a. afsag­aða plasttá. Kóngu­ló­ar­teg­undin anelosimus biglebowski sem lifir í austur-Afríku er nefnd eftir mynd­inni. Einnig Lebowskia grandi­fola sem er útdautt barr­tré sem lifði á perm jarð­sögu­tíma­bil­inu (fyrir um 300-250 milljón árum síðan). Í New York borg er verslun sem selur ein­göngu vörur tengdar mynd­inni. Hér á Íslandi er meira að segja bar sem helg­aður mynd­inni.

Af hverju þessi mynd?

Það er oft erfitt að skýra af hverju kvik­mynd verður költ. Eitt sem víst er er að það var ekki vegna sög­unnar sem slíkrar því að myndin er í raun hálf stefnu­laus farsi. Flestum sem horfa á mynd­ina er í raun sama um glæpa­málið sem The dude er að reyna að leysa og margir muna ekki einu sinni hvernig eða hvort það leyst­ist, jafn­vel eftir að hafa séð mynd­ina margoft. Joel Coen segir:

Með þess­ari mynd átt­uðum við okkur á því að, ef hlut­irnir verða aðeins og flóknir eða óskýrir, þá skiptir það í raun­inni ekki máli. ... Þetta er svipað og hjá [Raymond] Chandler. Sögu­þráð­ur­inn skiptir minna máli en aðrir hlutir sem eru að ger­ast í verk­inu. Ég held að þó að fólk verið svo­lítið ringlað þá eigi það ekki að koma í veg fyrir að það hafi gaman að mynd­inni.

Margar af minni­stæð­ustu per­sónum mynd­ar­innar, eins og t.d. keilu­snill­ing­ur­inn og kyn­ferð­is­af­brota­mað­ur­inn Jesus Quintana, hafa nákvæm­lega ekk­ert með sögu­þráð mynd­ar­innar að gera. Það skiptir heldur ekki máli því að áhorf­and­inn er fyrst og fremst að fylgj­ast með per­són­unum sjálfum, aðstæðum þeirra og sam­töl­unum. Þar kemur helsti styrk­leiki Coen bræðra fram sem hand­rits­höf­unda, þ.e. að búa til per­sónur og sam­töl sem eru skrítin en jafn­framt sniðug og fyndin og fyrst og fremst eft­ir­minni­leg.

Valið á Jeff Bridges sem the dude var full­komið. Hann naut sín við tök­urnar og per­sónan dró allt það besta fram úr honum. The dude er ekki ein­ungis aðal­per­sóna mynd­ar­innar heldur er hann við­staddur í hverju ein­asta atriði mynd­ar­innar. Margar aðrar per­sónur í mynd­inni eru ógleym­an­legar og eiga frá­bærar línur en költ The Big Lebowski snýst fyrst og fremst um The dude. Hann er nokk­urs konar and-hetja, latur og ábyrgð­ar­laus, en honum er ýtt inn í aðstæður sem hann ræður illa við. Hann er eins langt frá því að vera einka­spæj­ari á borð við Philip Marlowe sem hugs­ast getur. The dude er nautna­seggur sem vill bara slaka á og margir áhorf­endur tengja því ein­stak­lega vel við hann. Coen bræður hafa búið til sæg af eft­ir­minni­legum per­sónum í gegnum tíð­ina, s.s. óléttu lög­reglu­kon­una Marge Gund­er­son úr Fargo, raðmorð­ingj­ann með ljóta hárið Anton Chigurh úr No Country for Old Men og rit­stíflaða leik­rita­skáldið Barton Fink úr sam­nefndri mynd. En engin per­sóna er jafn greipt í minni fólks og The dude. Will Russell, stofn­andi Lebowski Fest, segir:

The dude nær yfir öll mörk. Hann er þessi and-hetju, and-efn­is­hyggju, lág-metn­aðar, sátt-með-sjálfa-sig, ósvikna per­sóna. Fólk bregst við þannig karakter. The dude þarf ekki fínan bíl eða stórt hús. Hann er bara ham­ingju­samur ef hann kemst í freyði­bað og í keilu með vinum sínum. Það er allt sem hann vill.

Í nútíma sam­fé­lagi geta fæstir lifað eins og The dude. Vænt­ingar sam­fé­lags­ins og utan­að­kom­andi þrýst­ingur er ein­fald­lega of mik­ill. Nákvæm­lega þess vegna er hann svona dáður. Hann er það sem við viljum vera.

Samtölin, hinar ein­stöku setn­ingar og aðstæð­urnar sem þær eru skrif­aðar inn í, eiga einnig einn stærsta þátt­inn í vin­sæld­unum. Það er ógrynni af gullnum línum sem gerir það að verkum að hægt er að horfa á mynd­ina aftur og aftur og aftur. Það kemur ekki á óvart að hún hafi selst svona vel á DVD og Blu-ray, hún er hin full­komna mynd til að eiga heima hjá sér. Það er alltaf hægt að setja hana í gang, finna eitt­hvað nýtt eða end­ur­vekja kynnin við fra­sana sem maður þekkir svo vel. Allir eiga sínar upp­á­halds línur úr mynd­inni.

Framhald

Vegna þess­arra síð­búnu vin­sælda The Big Lebowski hefur verið þrýst á Coen bræður að gera fram­halds­mynd. Þeir eru aftur á móti alls ekki á þeim bux­unum að verða við því. Joel hefur t.a.m. sagt að hann ein­fald­lega fyr­ir­líti fram­halds­myndir. Bræð­urnir hafa ávallt farið sínar eigin leiðir og samn­ingur þeirra við kvik­mynda­verin tryggir þeim fullt list­rænt frelsi sem er mjög óal­gengt í kvik­mynda­brans­anum í dag. Í mörg ár hefur leik­ar­inn John Turturro þrá­beðið þá um að gera sér­staka kvik­mynd (spin-off) um per­són­una sem hann lék í mynd­inni, Jesus Quintana. Nýverið gáfu þeir loks leyfi fyrir slíkri mynd en þeir munu þó sjálfir ekki koma nálægt henni heldur mun Turturro sjálfur skrifa og leik­stýra mynd­inni sem mun bera tit­il­inn Going Places. Hann mun vita­skuld sjálfur fara með hlut­verk Quintana og meðal leik­ara mynd­ar­innar verða Susan Sarandon og Audrey Tautou sem varð fræg fyrir hlut­verk sitt sem Amelie í sam­nefndri mynd frá árinu 2001. Handrit mynd­ar­innar er byggt á Les Val­seu­ses, franskri kvik­mynd frá árinu 1974 sem skartar m.a. Gerard Depar­dieu og þótti mjög umdeild á sínum tíma vegna mik­illar nektar og óheflaðs orð­bragðs. Lítið annað er vitað um gerð mynd­ar­innar annað en það að tökur hófust nú í ágúst.

Menningarverðmæti

Árið 2014 var ákveðið að taka The Big Lebowski inn í Þjóð­ar­kvik­mynda­safn banda­ríska þings­ins. Það þýðir opin­ber­lega að hún þykir hafa menn­ing­ar­legt, sagn­fræði­legt og/eða list­fræði­legt gildi í sjálfu sér og njóti því verndar rík­is­ins. Af um 650 kvik­myndum, stutt­myndum og heim­ild­ar­myndum er hún meðal þeirra 5 yngstu á list­anum. Myndin er því ekki ein­ungis mik­il­væg í hugum aðdá­enda hennar, hún er svart á hvítu skil­greind sem menn­ing­ar­verð­mæti.

Það er í raun ekki und­ar­legt því að The Big Lebowski hefur sett sitt mark, þóg hóg­vært sé, á menn­ingu okkar og skapað tákn­myndir sem allir þekkja. Keilu­kúla, hvítur rússi, afskorin tá, vík­inga­hjálmur,rauð­leitt pers­neskt teppi og hin óborg­an­lega blanda af sand­ölum, baðsloppi og sól­gler­augum. Allt eru þetta hlutir sem fólk tengir strax við þessa kvik­mynd sem svo ólík­lega til varð að alþjóð­legu fyr­ir­bæri.

Tíu af þekkt­ustu setn­ingum mynd­ar­innar:

"The Dude abides." – Dude

"Shut the fuck up, Donny!" – Walter

"I had a rough night and I hate the fuckin´ Eagles, man!" – Dude

"You said it man. Nobody fucks with the Jesus." – Jesus

"Over the line! – Walter"

"Yeah, well, you know, that´s just, like, your opinon, man." – Dude

"This is what happ­ens when you fuck að stranger in the ass, Larry!" – Walter

"Careful man, there´s a beverage here!" – Dude

"Calmer than you are." – Walter

"The Knutsens? Who the fuck are the Knutsens?" – Dude

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár