Endurskoðun á samkeppnisstöðu mjólkuriðnaðarins hafin

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur látið birta drög að frum­varpi sem tekur á sam­keppn­is­stöðu mjólkur­iðn­að­ar­ins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið hefur birt drög að frum­varpi til laga sem hafa það mark­mið að end­ur­skoða sam­keppn­is­stöðu mjólkur­iðn­að­ar­ins. Eftirlit með mark­aðs­ráð­andi afurða­stöð í mjólkur­iðn­aði, MS, verður í höndum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sam­kvæmt frum­varps­drög­unum.

Samkvæmt drög­unum eiga allir aðilar í mjólkur­iðn­aði að geta keypt mjólk með sama til­kostn­aði og mark­aðs­ráð­andi afurða­stöð. Slíkri afurða­stöð verður einnig skylt að safna og taka við allri hrá­mjólk sem henni býðst frá fram­leið­endum mjólkur og verður skylt að selja óháðum afurða­stöðvum og vinnslu­að­ilum hrá­mjólk sem nemur allt að 20% af þeirri hrá­mjólk sem hún tekur við.

Þá þarf mark­aðs­ráð­andi afurða­stöð að aðskilja fjár­hag og stjórnun fram­leiðsl­unnar frá annarri starf­semi. Jafn­framt mun eft­ir­lit með mark­aðs­ráð­andi afurða­stöð vera á for­ræði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, og verð á hrá­mjólk verður áfram ákveðið af verð­lags­nefnd. Jafnræði skal gilda um önnur við­skipta­kjör og skil­mála.

Afurða­stöðvum í mjólkur­iðn­aði verður óheim­ilt að gera samn­inga sín á milli um verð­til­færslu milli til­tek­inna afurða, og verður óheim­ilt að sam­ein­ast, gera með sér sam­komu­lag um verka­skipt­ingu milli mjólk­ur­sam­laga í fram­leiðslu og ann­ars konar sam­starf við fram­leiðslu, geymslu og dreif­ingu á mjólk­ur­af­urðum.

Frum­varpið var samið með til­liti til til­lagna frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, og einnig var tekið mið af því hvernig skipu­lagi er háttað í Noregi og Hollandi, að því er segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Fram kemur í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir m.a. um land­búnað að end­ur­skoða þurfi ráð­stöfun inn­flutn­ings­kvóta og greina for­sendur fyrir frá­vikum frá sam­keppn­is­lögum fyrir mjólkur­iðn­að­inn og gera við­eig­andi breyt­ingar. Ráðu­neytið segir að unnið sé að því í ráðu­neyt­inu að forma til­lögur um hvernig best verði staðið að ráð­stöfun inn­flutn­ings­kvóta með hlið­sjón af hags­munum neyt­enda. Þær til­lögur verði kynntar sér­stak­lega þegar þær liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár