Er síðasta vígi hundaáts að falla?

Í Kína éta þeir hunda, hefur verið sagt. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér hundaát.

Í Suður-Kóreu þykir mörgum gott að skella sér á sölu­bás eða jafn­vel fínan veit­inga­stað og kaupa sér hunda­súpu eða jafn­val soðið hunda­kjöt með sósu, sér­stak­lega á heitum sum­ar­dögum. Vest­ur­landa­búum þykir þetta ill­skilj­an­legt og sumir kalla þetta hreina villi­mennsku enda er okkur tamara að líta á hunda sem félaga okkar heldur en nytja­dýr. Hundaát Kóreu­manna og ann­arra Asíu­þjóða hefur verið mikið til umræðu á und­an­förnum árum því meira liggur að baki en menn­ing­ar­munur aust­urs og vest­urs. Málið snýst fyrst og fremst um þá grimmd sem dýr­unum er sýnd í skjóli óljósra laga­á­kvæða.

Þrýstingur í aðdgraganda ólympíuleika

Nú stendur til að loka hinum alræmda Moran mark­aði í borg­inni Seongnam. Seongnam er í útjaðri höf­uð­borg­ar­innar Seoul og þar búa um ein milljón manns en mark­að­ur­inn hefur um ára­tuga skeið verið einn stærsti hunda –og katta­kjöts­mark­aður lands­ins. Mark­að­inum var komið á fót á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og þar eru seldir um 80 þús­und hundar á hverju ári, flestir til veit­inga­staða. Dýra­vernd­un­ar­sam­tök hafa lengi gagn­rýnt mark­að­inn alræmda en hann komst í deigl­una nú vegna vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna sem haldnir verða í kóreysku borg­inni PyeongChang í febr­úar á næsta ári. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Asíulönd eru beitt þrýst­ingi dýra­vernd­un­ar­sam­taka í aðdrag­anda stór­við­burða í íþróttum. Árið 1964 máttu Japanir sæta gagn­rýni fyrir hval­veiðar á ólymp­íu­leik­unum í Tókýó. Hundaát Kínverja var til umræðu fyrir ólymp­íu­leik­ana í Beijing árið 2008.

Þá hafa Kóreu­menn sjálfir lent tvisvar áður í suðu­pott­inum fyrir það sama, ann­ars vegar á ólymp­íu­leik­unum í Seoul árið 1988 og svo í heims­meist­ara­keppn­inni í knatt­spyrnu árið 2002. Nú hafa ýmis sam­tök hrundið af stað und­ir­skrif­alistum þar sem Kóreu­menn eru hvattir til að banna hundaát ellegar verði ólymp­íu­leik­arnir í PyeongChang snið­gengnir. Hund­ruðir þús­unda hafa skrifað undir þessa lista.

Þá hefur fjöldi heims­þekktra per­sóna haldið mál­efn­inu á lofti eins og t.d. leik­konan Judi Dench, grínist­inn Ricky Gervais og mann­fræð­ing­ur­inn Jane Goodall.

Borg­ar­yf­ir­völd í Seongnam hafa heitið hunda­kjöts­söl­unum á Moran mark­að­inum fjár­hags­legri aðstoð við að færa sig yfir í aðrar atvinnu­greinar en þeir eru engu að síður mjög ósáttir. Einn þeirra segir:

„Um 80% af við­skipta­vinum okkar koma hingað til þess eins að kaupa ferskt hunda­kjöt, hvað gera þeir ef við getum ekki selt þeim það lengur?“

Til að skilja afstöðu þeirra er nauð­syn­legt að skoða sögu hunda­áts á svæð­inu og hvaða þýð­ingu það hefur í þjóð­ern­is­vit­und íbú­anna. Þetta er ekki eins og hver annar iðn­aður.

Söguleg og trúarleg sjónarmið

Hunda­kjöt hefur verið borðað víða í austur-Asíu um árþús­unda­skeið. Það hefur verið borðað í norð­ur­hluta Kína síðan á brons­öld og þaðan barst það til Kóreu­skaga skömmu eftir Krists­burð. Hundaát er einnig mikið stundað í Víetnam, sér­stak­lega norð­ur­hlut­anum en þar eru einnig borð­aðir kettir, rottur og mýs. Hundaát hefur verið stundað ann­ars staðar en í Asíu í gegnum tíð­ina, t.d. á Hawaii og í Sviss, en það heyrir nú til algerra und­an­tekn­ing­ar­til­vika. Hundar eru borð­aðir báðum megin landamær­anna á Kóreu­skaga en, eins og um svo margt annað, er lítið vitað um umfangið norðan megin.

Hundaát er nú á und­an­haldi í Suður Kóreu eftir að hafa verið mjög vin­sælt um langt skeið, sér­stak­lega á 19. öld. Um þriðj­ungur Kóreu­manna seg­ist hafa smakkað hunda­kjöt ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni en ein­ungis örfá pró­sent borða það að stað­aldri. Hunda­kjöt er þó fjórða mest selda kjötið á kóreyska mark­að­inum (á eftir nauti, kjúkling og svíni) sem þýðir að þessi litli hópur neytir kjöts­ins í miklum mæli. Í dag er talið að um 15-25 milljón hundum sé slátrað árlega til mann­eldis og þar af um 2 millj­ónum í Suður Kóreu. Það er aðal­lega eldra fólk sem borðar hunda­kjöt en yngri kyn­slóðin vill ekki sjá það. Margir sem borða ekki hunda­kjöt sjálfir virða þó afstöðu þeirra sem gera það.

Í fornöld hafði hundaát trú­ar­lega teng­ingu í austur-Asíu. Heim­ildir eru til fyrir því að hundum hafi verið fórnað sem mat handa guð­unum. Það þýðir að hunda­kjöt hefur verið talin nokkuð fín fæða. Eftir ris búdd­hisma á svæð­inu á ármið­öldum breytt­ist afstaðan að ein­hverju leyti. Afstaða búdd­hista til kjöt­áts er blendin og margir þeirra eru græn­metisætur. Búdd­ha­munkum er bein­línis bannað að borða kjöt af vissum dýra­teg­undum, þar á meðal hundum. Þá telja margir búdd­histar það boða slæmt karma að borða dýr sem er svo tryggt hús­bónda sínum. Í islam er hundaát bein­línis bannað þar sem hundar þykja óhrein dýr líkt og svín. Kristnir hafa aftur á móti meira frelsi til að borða hunda­kjöt en um 20% af Suður Kóreu­mönnum eru kristnir.

Er rangt að borða hund?

Flestum Vest­ur­landa­búum býður við þeirri til­hugsun að leggja sér hund til munns. Ekki vegna þess að þeim býður við til­hugs­un­inni um kjötið sjálft heldur vegna þess að hundar eru taldir félagar manns­ins og gælu­dýr. Í mörgum til­vikum eru þeir vinnu­fé­lagar okkar. Af sömu ástæðu veigra margir sér við því að borða hrossa­kjöt, þó að það sé mun útbreidd­ara. Í austur Asíu er ekki sama hefð fyrir því að halda hunda sem gælu­dýr en þeir hafa verið not­aðir um aldaraðir sem t.d. varð­hundar. Í Kína var bein­línis bannað að eiga hunda sem gælu­dýr um tíma. Þetta þýðir ekki að Asíumenn geti ekki litið á hunda sem félaga sína, þeir gera það.

En sam­band þeirra leyfir það að hundar séu álitnir nytja­dýr. Hunda­kjöt hefur einnig djúpar rætur í þjóð­trú Aust­ur­landa. Að borða hunda­kjöt er talið auka kyn­hvöt karl­manna, gera þá sterk­ari og hamla ýmsum sjúk­dómum. Í Kóreu eru hundar aðal­lega borð­aðir á sumrin þegar virkni kjöts­ins er talin mest en í Kína og Víetnam eru hundar aðal­lega borð­aðir yfir vetr­ar­tím­ann. Þar er sagt að kjötið veiti manni sér­staka hlýju. Í Suður Kóreu er einnig fram­leitt heilsu­seyði úr hunda­kjöti, gaesoju, sem á að veita sömu virkni og kjötið. Það eru þó ekki til neinar lækn­is­fræði­legar eða líf­eðl­is­fræði­legar rann­sóknir sem styðja þetta. Hundaát hefur einnig sterka þjóð­ern­is­lega teng­ingu, sér­stak­lega í Suður Kóreu. Margir segja að dýra­vernd­un­ar­sinnar séu vest­rænir hræsnarar sem reyni að troða sínum gildum upp á Asíubúa sem hafi borðað hunda óáreittir í þús­undir ára. Af hverju er það eitt­hvað verra að borða hund en að borða lamb eða naut­grip?

Dýra­vernd­un­ar­sinnar segja þó að gagn­rýni þeirra snú­ist ekki um að gera upp á milli teg­unda heldur þeirri með­ferð sem hund­arnir eru beittir. Hunda­kjöts­mark­að­ur­inn í Suður Kóreu starfar á gráu svæði laga­lega. Á einum stað í lög­unum stendur að hundar séu hús­dýr en þeir falla hins vegar ekki undir lög um með­ferð og hrein­læti hús­dýra. Dýra­vernd­un­ar­lögin segja að ekki megi slátra dýrum á grimmi­legan hátt og ekki undir berum himni en þeim er hins vegar ekki fylgt í til­fellum hunda.

Moran mark­að­ur­inn er prýð­is­gott dæmi um það. Þar eru 22 aðilar sem selja hunda og geyma þá marga saman í alltof litlu búrum. Oft kremj­ast þeir eða kafna í þessum búrum. Hægt er að kaupa bæði lif­andi og dauða hunda en flestir velja sér lif­andi hund sem er slátrað á staðnum. Hundunum er slátrað á mjög ómann­eskju­legan hátt t.d. með bar­smíðum, raf­magni eða heng­ingu. Sagt er að adrena­lín­flæði hunds­ins rétt áður en hann deyr bæti bragð kjöts­ins. Til að ná feld­inum af hund­inum er hann annað hvort soð­inn í potti eða notað logsuðu­tæki, en í sumum til­fellum eru hund­arnir ennþá á lífi þegar það er gert. Í Suður Kóreu eru um 100 búgarðar sem rækta hunda til átu og á þeim um milljón hundar sam­an­lagt. Aðstaðan á búgörð­unum er svipuð og á mörk­uð­unum, búrin lítil og með­ferðin slæm.

Deyjandi siður

Með auknum tækni­fram­förum, vel­megun og alþjóð­legum straumum hefur gælu­dýra­hald Kóreu­manna og ann­arra Asíu­þjóða auk­ist til muna, sér­stak­lega hjá yngri kyn­slóð­inni. Hundaát fer því minnk­andi með hverju árinu og er nú ólög­legt bæði í Kína og Víetnam. Í kín­versku borg­inni Yulin hefur verið haldin sér­stök hunda­kjöts­há­tíð árlega en yfir­völd neita nú ábyrgð og segja að þetta sé einka­fram­tak borg­ar­anna líkt og hver önnur garð­veisla.

Í Víetnam hafa menn brugðið á það ráð að smygla hundum frá Tælandi til að anna eft­ir­spurn­inni. Í lönd­unum tveimur er einnig tölu­vert um það að gælu­dýra­hundum sé stolið til átu. Á ólög­legum mörk­uðum er hægt að sjá marga hunds­skrokka með hálsólar. Í Suður Kóreu hafa slík til­vik einnig komið upp en flestir hund­arnir þar koma af búgörð­unum. Algeng­asti nytja­hund­ur­inn kall­ast nure­ongi (sá guli) en hann er einnig kall­aður dong-gae (skíta hundur). Margar aðrar teg­undir eru nýttar eins og t.a.m. labrador, husky, beagle, golden retri­ever og jafn­vel hinn agn­arsmái Chihuahua.

Í land­inu eru þús­undir veit­inga­staða sem selja hunda­kjöt en þeim fer þó fækk­andi, bæði vegna minnk­andi sölu og utan­að­kom­andi þrýst­ings. Á ólymp­íu­leik­unum 1988 og heims­meist­ara­mót­inu 2002 var veit­inga­stöð­unum gert skylt að loka tíma­bundið og kjötsalar máttu ekki hafa hunda­kjöt til sýnis á almanna­færi. Ákvörðun borg­ar­yf­ir­valda í Seongnam um lokun Moran mark­að­ar­ins er hluti af þess­ari þróun. Jang In-young hjá dýra­vernd­un­ar­sam­tökum Suður Kóreu sagði að lok­unin væri stórt skref til að breyta iðn­að­inum. Borg­ar­full­trú­inn Kang Won-gu sagði að hundaát yrði að hætta og enn­fremur:

„Seongnam hefur frum­kvæði að því að breyta ímynd Suður Kóreu því að hver þjóð er metin af því hvernig hún kemur fram við dýrin sín.“

Vestræn dýra­vernd­un­ar­sam­tök hafa einnig beitt sér með beinum hætti í land­inu og gert rækt­endum kleift að hætta starf­semi. Þau taka við dýr­unum og flytja þau til Ameríku og Evrópu til þess að verða gælu­dýr.

Hundaréttir

Gaegogi er kóreyska orðið yfir hundaát. Hundar eru borð­aðir á marga vegu í Kóreu en vin­sæl­asti rétt­ur­inn er súpa sem kölluð er Gaejang-guk (hunda-og soja­bauna­súpa) eða Bos­in­tang (end­ur­nær­andi súpa). Í súp­unni er soðið hunda­kjöt ásamt græn­meti og krydd­jurtum. Það eru til margar útfærslur af súp­unni en flestar inni­halda soya­baunir og annað hvort blað­lauk eða púrru­lauk. Stundum eru aðrar jurtir á borð við fífla og taro (sem er asísk blað­jurt).

Mintu­lauf eru svo notuð til að fela lykt­ina af kjöt­inu sem er frekar sterk og fúl. Bragðið af kjöt­inu er þó sagt minna á lamba eða geita­kjöt. Súpan er svo krydduð vel með t.d. salti, pipar og chili kryddi. Með súp­unni er vin­sælt að borða rétt kall­ast á kóreysku kimchi. Það er súr­suð græn­met­is­stappa sem inni­heldur m.a. engi­fer, hvít­lauk, hreðkur og kál. Þá er ferskt græn­meti eins og agúrkur og paprikur einnig vin­sælt með­læti sem og soju (kóreyskt hrís­grjóna­vín).

Gaegogi jeon­gol er vin­sæl hunda­kássa sem er soðin í potti. Hægt er að nota ann­ars konar kjöt í jeon­gol en af hundi, t.d. nauta­kjöt eða fisk, en einnig er hægt að sleppa kjöti alveg. Sveppir eru veiga­miklir í káss­unni en einnig er not­aðar grænar baunir, tófú, kál, laukar, hreðkur og fleira. Í káss­una er svo sett hun­ang eða ávextir (t.d. perur) til að gera hana sæta en einnig bragð­sterkar krydd­jurtir á borð við chili. Sumir bæta núðlum út í káss­una.

Sumir vilja fá hunda­kjötið beint á diskinn og það heitir þá gae sujuk. Kjötið er for­soðið og svo steikt á pönnu. Það er borið fram með sósu sem gerð er úr soya­baunum, mintu­olíu, salti og hvít­lauk og fersku græn­meti s.s. blað­lauk og radísum.

Bon apetit!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár