Topp 10 – Kvikmyndir ársins 2016

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í kvik­mynda­árið 2016. Óskarinn fer fram aðfar­arnótt mánu­dags.

Ósk­arsverð­launin verða veitt í 89. sinn aðfar­arnótt mánu­dags­ins 27. febr­úar. Sagt hefur verið að verð­launa­há­tíðin sé fyr­ir­sjá­an­leg og eina spurn­ingin sé hversu mörg verð­laun söng­leik­ur­inn La La Land fái. En hátíðin er nokkuð merki­leg í þetta skiptið í ljósi þess að flestar helstu kvik­mynd­irnar koma úr ólík­legum áttum á meðan gamlir Hollywood risar halda að sér höndum. Þá er met­fjöldi svartra leik­ara, leik­stjóra og hand­rits­höf­unda til­nefndir í þetta sinn og erlendu mynd­irnar ein­stak­lega sterkar. Þetta er fjöl­breyti­leg­asta kvik­myndaár í langan tíma.

10. En man som heter Ove

Íslend­ingar þekkja vel sög­una um hinn sænska Ove. Bók Fredriks Backman var met­sölu­bók hér á landi árið 2013 og nú stendur yfir sýn­ing Þjóð­leik­húss­ins á verk­inu. Kvik­myndin sænska hefur einnig slegið í gegn. Maður sem heitir Ove segir frá 59 ára gömlum ekkli sem er sífellt trufl­aður við það að reyna að fremja sjálfs­víg. Trufl­unin kemur frá fjöl­skyldu sem er nýflutt í hverfið og þá sér­stak­lega hinni óléttu Parvaneh sem lætur Ove ekki í friði. Ove er rudda­legur, hisp­urs­laus, smá­muna­samur og ónær­gæt­inn með ein­dæmum og hann þolir illa þegar nágrannar hans fylgja ekki umgengn­is­regl­unum til hins ítrasta. Í mynd­inni er flakkað fram og aftur í tíma og áhorf­and­inn fær inn­sýn inn í líf og per­sónu Ove og af hverju hann er svo stað­ráð­inn í því að svipta sig lífi. Þrátt fyrir alvar­leika hennar er myndin bráð­fyndin og sér­stak­lega ein­stök ást Ove á Saab-bif­reiðum. Myndin er ein­stak­lega vel leikin, þá sér­stak­lega af Rolf Lassgård, sem leikur Ove í nútím­anum, og Bahar Pars, sem leikur Parvaneh.

9. Arrival

Mál­fræð­ingar eru sjaldan sögu­hetjur á hvíta tjald­inu. Það er þó raunin í Arrival sem fjallar um komu tólf geim­skipa frá fjar­lægri plánetu til jarðar. Þær dreifast vítt um jörð­ina en eru alger­lega kyrrar og geim­ver­urnar hafa ekk­ert sam­band við menn­ina. Það er því hlut­verk mál­fræð­ings­ins, sem leikin er af Amy Adams, að reyna að læra tungu­mál þeirra og koma af stað sam­tali við þær. Þegar á líður minnkar aftur á móti þol­in­mæði sumra og víg­væð­ingin hefst. Arrival er ekki venju­leg geim­veru­mynd eða vís­inda­skáld­skapur. Hún er hæg og dimm og draum­kennd á köflum. Tónlist Jóhanns Jóhanns­sonar gerir mikið fyrir and­rúms­loft mynd­ar­innar en þetta er þriðja sam­starfs­verk­efni hans og kanadíska leik­stjór­ans Denis Vil­leneuve (Pri­soners, Sicario). Arrival fjallar í raun meira um mann­kynið sjálft heldur en geim­ver­urnar. Hvernig við getum skilið eitt­hvað svo fram­andi og hvort alþjóða­sam­fé­lagið getur tekið á stórum og flóknum málum.

8. The Jungle Book

The Jungle Book er “leikin” end­ur­gerð af sam­nefndri Disney-teikni­mynd frá árinu 1967 og byggð á ævin­týr­inu um Mowgli frá 1894. Leikin innan gæsalappa vegna þess að nán­ast allt mynd­inni er tölvu­gert nema Mowgli sjálfur. Gald­ur­inn við teikni­mynd­ina voru karakt­er­arnir og tón­listin. Tal­setn­ing­inn í leiknu mynd­inni er með ein­dæmum góð og leik­ar­arnir vel valdir. Sér­stak­lega Bill Murray sem björn­inn Balli, Scarlett Johans­son sem slangan Karún og Christopher Walken sem apa­kóng­ur­inn Lúlli. Þessi mynd er hins vegar mun dekkri og spennu­þrungn­ari en teikni­myndin og sungna tón­listin verður því svo­lítið hjá­kát­leg. Atriðið í apa­hof­inu sem var ógleym­an­legt í teikni­mynd­inni fyrir dúndr­andi jazz og létt and­rúms­loft er nú orðið ógn­væg­legt bar­daga­at­riði og alls ekki fyrir yngstu börnin. Þá er tíg­ur­inn Shere-Khan, leik­inn af Idris Elba, orð­inn að morð­óðum sósíópata. The Jungle Book er til­valin fyrir eldri börn og full­orðna því sagan er ennþá heill­andi. Hún er ótrú­legt sjón­ar­spil og tækni­brell­urnar ein­hverjar þær bestu sem sést hafa.

7. Hacksaw Ridge

Það er ávallt við­burður þegar leik­stjór­inn Mel Gibson gefur út kvik­mynd. Hacksaw Ridge er sann­sögu­leg mynd um her­lækn­inn Desmond Doss sem vann afrek þegar hann bjarg­aði 75 her­mönnum í orr­ust­unni um Okinawa undir lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Eins og vana­lega hjá Gibson þá eru kvik­mynda­taka, klipp­ing, bún­ingar og fleiri tækni­leg atriði óað­finn­an­leg. Þá leikur Andrew Garfield hlut­verk Doss nokkuð vel.

En myndin er sér­stök að mörgu leyti, t.d. hversu skörp skilin eru milli fyrri og seinni hluta hennar. Fyrri hlut­inn fjallar um æsku Doss og þjálfun­ina (og auð­vitað smá ást­ar­saga líka) og er í frekar hefð­bundnum ævi­sögu stíl. Hinn seinni er orr­ustan sjálf sem er á köflum eins og splatter-mynd. Myndin er aft­ur­hvarf til eldri stríðs­mynda þar sem óvin­ur­inn (Japanir) sjást ekki nema í orr­ust­unni sjálfri og eru ekki eig­in­legar per­sónur heldur nafn­laus og mál­laus ógn. Ólíkt eldri stríðs­myndum hefur Hacksaw Ridge þó sterkan frið­ar­boð­skap. Líkt og í fyrri verkum Gibson þá hefur myndin sterkan trú­ar­legan tón, þ.e. hún lík­ist helst krafta­verka­sögu dýr­lings.

6. Weiner

Árið 2011 sagði banda­ríski full­trúa­deild­ar­þing­mað­ur­inn Anthony Weiner af sér þing­mennsku vegna þess að hann sendi konu einni kyn­ferð­is­lega mynd af sér á Twitter (inn­an­brókar hold­ris). Weiner var rísandi stjarna í Demókra­ta­flokknum og taldi sig eiga aft­ur­kvæmt í stjórn­málin þrátt fyrir skandal­inn. Hann ákvað því að bjóða sig fram í borg­ar­stjóra­kosn­ingum New York borgar árið 2013 og fékk Josh Kriegman til að mynda fram­boðið. En þá komu fleiri Twitter skandalar í ljós, sem inni­halda m.a. klám­mynda­leikkon­una Ginger Lee. Myndin er far­sa­kennd, ákaf­lega fyndin og óbæri­lega pín­leg. Sum atriðin eru hreint ótrú­leg og minna um margt á gervi­heim­ild­ar­myndir (mockumentaries) Ricky Gervais og Christopher Guest. Erf­ið­ustu atriðin inni­halda flest eig­in­konu Weiners, Humu Abedin sem er einn af nán­ustu ráð­gjöfum Hillary Clinton. Weiner sjálfur ber þó mynd­ina. Hann er ákaf­lega líf­legur, við­kunn­an­legur, beittur, kjaft­for en einnig mjög aumk­un­ar­verður…….og með fyndið nafn.

5. Toni Erdmann

Toni Erdmann hefur farið sig­ur­för um heim­inn og þykir lík­leg til að vinna ósk­arsverð­laun sem besta erlenda kvik­myndin þetta árið. Það er nokkuð merki­legt í ljósi þess að þetta er þriggja klukku­tíma löng þýsk gam­an­mynd. Myndin fjallar um feðgin sem eiga í mjög stirðu en þó ekki óvin­veittu sam­bandi. Hún ger­ist að mestu leyti í Rúmeníu þar sem dóttirin Ines starfar sem ráð­gjafi í olíu­brans­anum en fað­ir­inn Winfried er tón­list­ar­kenn­ari í óboð­inni heim­sókn hjá henni.

Hann þyk­ist svo vera allt annar maður, hinn fárán­legi Toni Erdmann, til að hrista upp í sam­band­inu á milli þeirra. Myndin er mjög fyndin á köflum en þó á und­ar­legan og vand­ræða­legan hátt. Hún hefur mjög sér­staka atburð­ar­rás og kemur manni sífellt á óvart. Toni Erdmann er alger­lega borin á herðum aðal­leik­ar­anna tveggja, hinnar þýsku Söndru Müller og hins aust­ur­ríska Peter Simonischek. Þau ná saman að mynda alveg sér­staka stemn­ingu sem hefur ekki sést í kvik­myndum áður.

4. Moonlight

Moonlight er í þremur hlutum þar sem litið er stutt­lega inn í barn­æsku, ung­lingsár og full­orð­insár hins þögla Chiron. Hann er svartur og býr í fátækra­hverfi í Miami-borg eða nágrenni hennar. Í upp­hafi snertir myndin á við­kvæmum málum þar sem Chiron er lagður í gróft ein­elti og ein­stæð móðir hans er krakk-fík­ill. Til að flýja hleypur hann í faðm Juan, eit­ur­lyfja­sala frá Kúbu. Seinna í mynd­inni áttar Chiron sig á því að hann er sam­kyn­hneigður. Þetta er við­fangs­efni sem sjaldan ber á góma, þ.e. sam­kyn­hneigð í svörtu klíku­sam­fé­lagi. Því má segja að hinn ungi leik­stjóri mynd­ar­innar, Barry Jenkins, ráð­ist ekki á garð­inn þar sem hann er lægstur. Myndin, sem var gerð fyrir lítið fjár­magn, er byggð á leik­rit­inu In Moonlight Black Boys Look Blue eftir Tarell McCraney sem sett var upp í leik­list­ar­skóla. Meg­in­þema Moonlight er útskúfun sem birt­ist sterkt í þögn Chiron. Því eru hlut­verk auka­per­són­anna veiga­mesti þáttur mynd­ar­innar og sagan er í raun sögð af þeim.

3. Deadpool

Það er algjör ofmettun í gangi í Hollywood þegar kemur að ofur­hetju­myndum byggðum á teikni­mynda­sögum. Marvel og DC pumpa að jafn­aði út 5-6 fyr­ir­sjá­an­legum og til­breyt­ing­ar­lausum myndum á ári. Deadpool er því kær­komin vegna þess að hún hristir alger­lega upp í form­inu. Myndin tekur sig mátu­lega alvar­lega, er ákaf­lega fyndin og klúr og Deadpool sjálfur gerir sér full­kom­lega grein fyrir því að hann er karakter í bíó­mynd. Hann brýtur reglu­lega fjórða vegg­inn og talar beint til áhorf­enda. Ryan Reynolds fer með aðal­hlut­verkið og veldur því full­kom­lega. Hingað til hefur hann aðal­lega verið þekktur fyrir að leika sæta stráka í frekar lélegum myndum en hér sýnir hann á sér alger­lega nýja hlið. Veik­leiki mynd­ar­innar er ill­mennið Francis Freeman sem er síður en svo eft­ir­minni­legur karakter. En það skiptir litlu máli. Myndin snýst ekki um sögu­þráð­inn, heldur Deadpool sjálfan, tækni­brell­urnar, klipp­ing­arnar, tón­list­ina og hinn frá­bæra húmor.

2. Hell or High Water

Hell or High Water fjallar um tvo bræður (leikna af Chris Pine og Ben Foster) í Texas sem ræna banka til að bjarga fjöl­skyldu­bú­garð­inum. En ein­ungis lítil útibú bank­ans sem á kröf­una í búgarð­inn verða fyrir barð­inu á þeim. Myndin minnir á vestra með byssu­bar­dögum, elt­inga­leikjum og allt-umlykj­andi töffara­tali. Jafnvel minnstu karakt­erar hafa bit eins og eit­urslöngur. Jeff Bridges leikur lög­reglu­mann sem hefur það hlut­verk að elta þá uppi og hann stelur mynd­inni alger­lega. Enda hefur hann mikla reynslu af því að bera kúreka­hatt og tala djúp­raddað á sjar­mer­andi hátt. Þó að Hell or High Water sé fyrst og fremst spennu­mynd þá eru einnig sterk Hróa-hattar-skila­boð í henni. Hvorki banka­ræn­ingj­arnir né lög­reglan eru ill­mennin, heldur bank­inn og kerfið sjálft sem neyðir fólk út í örvænt­ing­ar­fullar aðgerðir. Myndin var ekki fram­leidd fyrir mikið fjár­magn en er ein­stak­lega vel gerð, þá sér­stak­lega kvik­mynda­takan og klipp­ingin.

1. Under sandet

Danska kvik­myndin Undir sand­inum ger­ist við lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar og fjallar um þýska stríðs­fanga í haldi danska hers­ins. Í stríð­inu bjugg­ust Þjóð­verjar við stórri árás banda­manna á vest­ur­strönd Jótlands og því grófu þeir um tvær millj­ónir jarð­sprengja í fjör­una þar. Sú árás kom hins vegar aldrei og stríðs­fang­arnir voru neyddir til að hreinsa fjör­una af sprengjum, en flestir þeirra voru aðeins tán­ingar. Í Undir sand­inum eru Danir alls ekk­ert að fegra sinn hlut nema síður sé. Myndin er ákaf­lega vel gerð í alla staði og sér­lega fal­lega kvik­mynduð. En þó að danska fjaran sé fal­legt umhverfi þá veit maður að svæðið er stór­hættu­legt. Atriðin þegar drengirnir grafa upp sprengj­urnar taka því veru­lega á taug­arnar. Roland Möller fer með aðal­hlut­verk mynd­ar­innar sem verk­stjóri eins hóps­ins og gerir það af stakri snilld. Rauði þráð­ur­inn í mynd­inni er einmitt við­horf hans til drengj­anna og hvernig það breyt­ist með tím­anum. Þó að Undir sand­inum sé dönsk þá er talið í henni að lang­mestu leyti á þýsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár