Enginn þingmaður Viðreisnar og Bjartrar framtíðar ræddi leiðréttinguna

Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG vakti athygli á því að eng­inn þing­maður Við­reisnar eða Bjartrar fram­tíðar tók þátt í umræðum um leið­rétt­ing­ar­skýrsl­una í þing­inu í dag. Ný rík­is­stjórn minnt­ist ekki á hús­næð­is­mál í stefnu­skrá sinni.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði leið­rétt­ing­ar­að­gerðar síð­ustu rík­is­stjórnar hafa verið ójafn­að­ar­að­gerðir á þingi í dag. „Leið­rétt­ingin var ekki aðgerð til að jafna kjör.“ Katrín var upp­hafs­maður umræðu um skýrslu um það hvernig skulda­nið­ur­færslan, leið­rétt­ingin svo­kall­aða, skipt­ist á milli lands­manna. Skýrslan var gerð opin­ber í jan­úar síð­ast­liðnum, þrátt fyrir að hafa verið til­búin fyrir kosn­ingar.

Katrín vakti athygli á því að hvorki þing­menn frá Viðreisn né Bjartri fram­tíð tóku þátt í umræð­unum. Hún sagði það end­ur­spegla að ekk­ert væri minnst á hús­næð­is­mál í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Búið væri að leiða í ljós að nið­ur­færslan hafi endað að stærstum hluta hjá þeim tekju­hæstu og eigna­mestu. Unga fólkið hafi setið eftir og það bíði eftir auknum úrræðum bæði á leigu- og eigna­mark­aði.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra varði leið­rétt­ing­una með svip­uðum hætti og hann hefur áður gert. Hann tal­aði um fyrri aðgerðir, líkt og 110 pró­senta leið­ina, sem hefðu ekki dugað til að takast á við erf­iða skulda­stöðu heim­il­anna eftir hrunið, sem hafi verið orðin að sjálf­stæðu efna­hags­legu vanda­máli. Hann sagði það hafa verið rétt­læt­is­rök, jafn­ræð­is­rök og sann­girn­is­rök fyrir því að ráð­ast í nið­ur­færslu á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Hann sagði einnig að leið­rétt­ingin hafi ekki verið tekju­jöfn­un­ar­að­gerð, hún hafi verið sér­tæk aðgerð sem var beint að þeim sem skuld­uðu og áttu heim­ili. „Hún heppn­að­ist frá­bær­lega þessi aðgerð.“ Náðst hafi að bæta skulda­stöð­una veru­lega, mun meira en á öðrum Norð­ur­lönd­unum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var í for­svari fyrir leið­rétt­ing­ar­að­gerð­irnar, tók til máls í umræð­unum. Hann lýsti yfir ánægju með það hvernig Bjarni Bene­dikts­son varði aðgerð­irnar og gagn­rýndi upp­legg Vinstri grænna „og félaga“ með skýrsl­unni sjálfri og umræðum um hana. Það sé frá­leitt að ræða það hvernig leið­rétt­ingin dreifð­ist á alla. Lilja Alfreðs­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók í sama streng og aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, og sagði að leið­rétt­ingin hefði verið „ein far­sælasta aðgerð sem ráð­ist hefur verið í.“ Hún hafi verið sann­kölluð milli­stétt­ar­að­gerð.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gerði sér­stak­lega að umtals­efni að skýrsl­unni um nið­ur­fell­ing­una hafi verið haldið frá almenn­ingi, og sagði það alvar­legt mál. Það hafi verið sífelldur felu­leikur með það hvernig fjár­mun­irnir skipt­ust milli lands­manna, og að leigj­endur, yngra fólk og lands­byggðar­í­búar hefðu setið eftir. Þá efað­ist hann um að for­sæt­is­ráð­herra myndi birta næstu óþægi­legu skýrslu. „Það þurfti nýjan fjár­mála­ráð­herra til að birta þessa skýrslu.“ Viktor Orri Val­garðs­son, þing­maður Pírata, spurði hvort nú hafi ekki mynd­ast for­dæmi, og þeir sem ekki ættu hús­næði nú fengju hækkun síð­ustu ára bætta úr rík­is­sjóði líkt og aðrir hefðu fengið skulda­stöðu sína bætta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár