365 aftur með í Eddu-akademíunni

365 verður aftur með í Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni eftir að hafa sagt sig frá Eddu-verð­laun­unum árið 2015.

365 miðlar eru á nýjan leik með­limir í Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni (ÍKSA) sem heldur hina árlegu Eddu­verð­launa­há­tíð. Þetta stað­festir Birgitta Björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri ÍSKA/Eddunnar við Kjarnann. Tilkynnt var um til­nefn­ingar til verð­laun­anna í dag.

Greint var frá því í lok árs­ins 2015 að 365 miðlar hefðu sagt sig úr Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni vegna óánægju með fram­kvæmd verð­laun­anna. Jón Gnarr, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, sagði að RÚV hefði haft 70 pró­sent vægi í dóm­nefnd en 365 hafi borið helm­ing kostn­aðar. Fyr­ir­tækið hefði lagt fram ýmsar til­lögur til að auka vægi almenn­ings í kjöri á verð­launa­höfum, en án árang­urs.

Þessu vís­aði aka­dem­ían á bug, sagði fjar­stæðu­kennt að tala um að 70 pró­sent val­nefnd­ar­manna væru tengdir RÚV, og 365 hafi greitt 15% af rekstr­ar­gjöld­unum, en ekki helm­ing. Engar til­lögur hafi heldur verið lagðar fram til að breyta nokkru.

Það er kvik­myndin Hjarta­steinn sem fær flestar til­nefn­ingar til Eddunnar í ár, sextán tals­ins. Hún er til­nefnd í öllum stærstu flokk­unum, sem mynd árs­ins, leik­stjóri árs­ins og leik­arar og leikkonur árs­ins. Kvik­myndin Eiðurinn fékk þrettán til­nefn­ingar.

Tvær þátt­araðir, Borg­ar­stjór­inn og Ligeglad, koma til greina sem leikið sjón­varps­efni árs­ins. Lífstíls­þættir árs­ins eru til­nefndir Ferðastiklur, Rætur og Ævar vís­inda­maður, og í skemmti­þætti árs­ins koma Ára­mótaskaupið, Eddan og Orðbragð til greina. Menn­ing­ar­þættir árs­ins eru til­nefndir Eyðibýli, Með okkar augum og Rapp í Reykja­vík, og frétta­þættir árs­ins eru Kastljós, Á flótta og Leitin að upp­runanum.

Lesa má um til­nefn­ing­arnar hér.

Verð­launin verða veitt sunnu­dag­inn 26. febr­úar næst­kom­andi á Hilton-hót­el­inu í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár