ÍKSA: Allar þrjár fullyrðingar Jóns Gnarr eru rangar

Íslenska kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­ían, ÍKSA, seg­ist í yfir­lýs­ingu síst af öllu vilja standa í deilum við 365, en aug­ljóst sé að Jón Gnarr, fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, sé að mis­skilja ýmis­legt varð­andi Edduna. Greint var frá því í dag að 365 hefði sagt sig frá þátt­töku í Eddunni þetta árið.

Jón sagði fyrr í dag að RÚV hefði verið með 70 pró­sent vægi í dóm­nefnd Eddunnar en 365 beri á sama tíma helm­ing af kostn­aði hátíð­ar­innar, þar sem verð­launað er fyrir það sem best er gert í sjón­varpi og kvik­mynda­gerð á Íslandi. Auk þess hafi hug­myndir 365 um að auka vægi almenn­ings við kjör ekki náð fram að ganga.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem Hilmar Sig­urðs­son, for­maður ÍKSA, og Bryn­hildur Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri, skrifa undir, segj­ast þau ekki hafa náð sam­bandi við Jón til að leið­rétta mis­skiln­ing hans. Allar þrjár full­yrð­ingar hans um Edduna, sem Kjarninn fjall­aði um í frétt fyrr í dag, væru rangar.

Þau segja það „fjar­stæðu­kennt“ að tala um að sjö­tíu pró­sent val­nefnd­ar­manna séu á ein­hvern hátt tengdir RÚV. Þá hafi 365 ekki greitt nema 15 pró­sent af rekstr­ar­gjöldum ÍKSA á síð­asta ári, en hafi auk þess greitt fyrir útsend­ing­ar­rétt­inn á Eddunni. Sé það tekið með í reikn­ing­inn hafi 365 greitt um þriðj­ung af rekstr­ar­gjöldum.

Einnig segir í yfir­lýs­ing­unni að engar til­lögur hafi verið lagðar fram af 365, þar sem lagt er til að vægi almenn­ings við kjör verði aukið. 

Yfir­lýs­ing Hilmar og Bryn­hildar, vegna ummæla Jóns Gnarr, fer hér að neðan í heild sinni.

1. Að RÚV hafi 70% vægi í dóm­nefnd Eddu­verð­launa.

Verk sem send eru inn í Eddu­verð­launin fara í gegnum tvær kosn­ingar og engin dóm­nefnd starfar á vegum Eddunnar. Látum það liggja á milli hluta og skoðum hverjir kjósa.

Í fyrsta lagi eru öll inn­send verk metin af fjórum val­nefndum Eddunnar. Ein val­nefndin til­nefnir leikið efni, önnur sjón­varps­efni, þriðja heim­ilda­myndir og sú fjórða til­nefnir ein­stak­linga til fag­verð­launa Eddunnar. Sjö aðilar eiga sæti í hverri val­nefnd, alls 28 manns. Val­nefnd­ar­menn sitja aðeins eitt ár í senn og hægt er að skoða hverjir sitja í val­nefnd­unum á vef­síð­unni eddan.is. Það er fjar­stæðu­kennt að 70% val­nefnd­ar­manna séu á ein­hvern hátt tengd RÚV.

Í öðru lagi þá kjósa svo með­limir Aka­dem­í­unnar á milli til­nefndra verka, þ.e.um það hver hlýtur Edduna í hverjum flokki fyrir sig. Meðlimir aka­dem­í­unnar eru 562 tals­ins, allt íslenskt fag­fólk úr kvik­mynda- og sjón­varps­brans­anum. Öllum er séð fyrir opnum og óheftum aðgangi að öllum verk­unum meðan á kosn­ingu stendur.

Aka­dem­íu­að­ildin er með öllu ein­stak­lings­bundin og ekki tengd fyr­ir­tækjum og hvernig Jón tengir 70% aðild­ar­fé­laga ÍKSA við RÚV er bein­línis óskilj­an­legt. Félags­skrá ÍKSA er aðgengi­leg á vef­síð­unni eddan.is. Til gam­ans má geta að þeir aðild­ar­fé­lagar ÍKSA sem eru með skráð RÚV net­föng eru 22 tals­ins en þeir sem eru með skráð net­föng hjá 365 miðlum eru 19 tals­ins.

2. Að 365 beri helm­ing kostn­aðar vegna veit­ingu Eddu­verð­launa.

Aðildar- og inn­send­ing­ar­gjöld 365 á síð­asta ári námu 15% af heild­ar­rekstr­ar­gjöldum ÍKSA.

Að auki keyptu 365 miðlar útsend­ing­ar­rétt frá verð­launa­há­tíð­inni og ef sá kostn­aður er tekin með nam fram­lag 365 alls 33% af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði ÍKSA.

3. Að 365 hafi lagt fram ýmsar til­lögur um að auka vægi almenn­ings í kjöri á verð­launa­höfum sem ekki hafi hlotið braut­ar­gengi.

Engin slík til­laga (hvað þá ýmsar) hafa verið lagðar fram af 365. Fagráð Eddunnar, þar sem full­trúar 365 hafa setið, tekur allar ákvarð­anir um fyr­ir­komu­lag Eddu­verð­laun­anna. Allar fund­ar­gerðir Fagráðs eru opin­berar og aðgengi­legar á eddan.is.

Rétt er að vekja athygli á því að Eddu­verð­launin eru fag­verð­laun en ekki vin­sæld­ar­kosn­ing og fyr­ir­komu­lag Eddunnar er sam­bæri­legt við fyr­ir­komu­lag ann­arra verð­launa­há­tíða um allan heim, svo sem Ósk­arsverð­laun­anna.

Í þessu sam­bandi viljum við líka vekja athygli á því að til skamms tíma voru ein verð­laun Eddunnar kosin í almennri síma­kosn­ingu áhorf­enda, þ.e. sjón­varps­maður árs­ins. Aðeins eru tvö ár síðan þessu var breytt úr almenn­ings­kosn­ingu í fag­kosn­ingu, að kröfu 365. Rökin voru þau að það væri fag að vera sjón­varps­maður/þátta­stjórn­andi en ekki vin­sæld­ar­kosn­ing og jafn­framt að áskrift­ar­sjón­varp gæti aldrei unnið vin­sæld­ar­kosn­ingu meðal alls almenn­ings.

Með vin­semd, Hilmar Sig­urðs­son, for­maður ÍKSA. Bryn­hildur Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Eddunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár