Jón Gnarr: RÚV var með 70 prósent vægi í dómnefnd Edduverðlaunanna

Jón Gnarr, fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, segir RÚV hafa haft 70 pró­sent vægi í dóm­nefnd Eddu­verð­laun­anna en að 365 beri helm­ing kostn­aðar vegna veit­ingu þeirra. 365 hefðu lagt fram ýmsar til­lögur um að auka vægi almenn­ings í kjöri á verð­launa­höfum en þær til­lögur hafi ekki hlotið braut­ar­gengi. Því hafi fyr­ir­tækið ákveðið að segja sig úr Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni (ÍKSA), sem heldur Eddu­verð­launa­há­tíð­ina.

Kjarninn greindi frá þeirri ákvörðun fyrr í dag.

Eddu­verð­launin munu samt sem áður fara fram og hátíðin verður haldin um mán­að­ar­mótin febr­úar/mars 2016. Óvissa er um hvort 365 muni til­nefna efni sem fyr­ir­tækið fram­leiðir inn­an­húss til Eddu­verð­laun­anna en Bryn­hildur gerir ráð fyrir því að sjálf­stæðir fram­leið­endur, sem fram­leiða efni sem sýnt er á stöðvum 365, muni halda áfram að til­nefna það til verð­laun­anna. Á meðal þeirra er SagaFilm, sem fram­leiðir hina vin­sælu þætti Rétt, sem sýndir eru á Stöð 2.

Jón seg­ist mik­ill aðdá­andi verð­launa­há­tíða á borð við Edduna. Þær séu skemmti­legar og nauð­syn­legar upp­skeru­há­tíðir fyrir geir­ann. Til greina komi að kanna mögu­leik­ann á nýrri verð­launa­há­tíð sem 365 miðlar myndu taka þátt í að halda. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin um það.

Á síð­ustu Eddu­verð­launa­há­tíð, sem fór fram í febr­úar 2015, fékk Stöð 2 engin verð­laun.Sjón­varps­þættir og –fólk RÚV sóp­uðu hins vegar til sín verð­launum. RÚV vann nán­ast alla flokka sem stöðin gat unnið. Ævar vís­inda­maður vann sem besta barna- og ung­linga­efni árs­ins, Landinn sem frétta- eða við­tals­þáttur árs­ins, Hraunið sem leikið sjón­varps­efni árs­ins, Hæpið sem lífstíls­þáttur árs­ins, Vest­ur­farar sem menn­ing­ar­þáttur árs­ins, Orðbragð sem skemmti­þáttur árs­ins og Brynja Þor­geirs­dóttir frá RÚV var valin sjón­varps­maður árs­ins. Þá fékk Ómar Ragn­ars­son, sem und­an­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heið­ursverð­laun Eddunnar árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár