365 miðlar hafa sagt sig úr akademíunni sem heldur Edduverðlaunin

365 miðlar hafa sagt sig úr Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unni (ÍKSA), sem halda hina árlegu Eddu­verð­launa­há­tíð. Þetta stað­festir Bryn­hildur Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri ÍKSA/Eddunnar í sam­tali við Kjarnann.

Eddu­verð­launin munu samt sem áður fara fram og hátíðin verður haldin um mán­að­ar­mótin febr­úar/mars 2016. Óvissa er um hvort 365 miðlar muni til­nefna efni sem fyr­ir­tækið fram­leiðir inn­an­húss til Eddu­verð­laun­anna en Bryn­hildur gerir ráð fyrir því að sjálf­stæðir fram­leið­endur, sem fram­leiða efni sem sýnt er á stöðvum 365 miðla, muni halda áfram að til­nefna það til verð­laun­anna. Á meðal þeirra er SagaFilm, sem fram­leiðir hina vin­sælu þætti Rétt, sem sýndir eru á Stöð 2.

Kjarninn reyndi að ná sam­bandi við Sævar Frey Þrá­ins­son, for­stjóra 365 miðla, til að fá skýr­ingar á því að fyr­ir­tækið hafi sagt sig úr ÍKSA, en án árang­urs.

Stöð 2 vann engin verðlaun á síðustu hátíð

Eddu­verð­launin voru síð­ast veitt 21. febr­úar síð­ast­lið­inn. Sjón­varpað var beint frá við­burð­inum á Stöð 2 og hitað var upp með beinni útsend­ingu frá rauða dregl­inum, líkt og tíðkast á stærstu kvik­mynda- og sjón­varps­verð­launa­há­tíðum heims. Góður rómur var gerður af hátð­inni, hún þótti skemmti­leg og sér­stak­lega vel útfærð.

Það vakti hins vegar athygli að Stöð 2, stærsta einka­rekna sjón­varps­stöð lands­ins, vann ekki ein ein­ustu verð­laun. Mörg af helstu flagg­skipum stöðv­ar­innar voru til­nefnd en ekk­ert þeirra hlaut náð fyrir augum aka­dem­í­unnar. Eina verkið með teng­ingu við Stöð 2 sem vann til verð­launa var heim­ild­ar­myndin Höggið, sem var sýnd á stöð­inni í jan­úar.

Sjón­varps­þættir og –fólk helsta sam­keppn­is­að­ila Stöðvar 2, RÚV, sóp­uðu hins vegar til sín verð­launum. RÚV vann nán­ast alla flokka sem stöðin gat unnið. Ævar vís­inda­maður vann sem besta barna- og ung­linga­efni árs­ins, Landinn sem frétta- eða við­tals­þáttur árs­ins, Hraunið sem leikið sjón­varps­efni árs­ins, Hæpið sem lífstíls­þáttur árs­ins, Vest­ur­farar sem menn­ing­ar­þáttur árs­ins, Orðbragð sem skemmti­þáttur árs­ins og Brynja Þor­geirs­dóttir frá RÚV var valin sjón­varps­maður árs­ins. Þá fékk Ómar Ragn­ars­son, sem und­an­farin ár hefur unnið fyrir RÚV, heið­ursverð­laun Eddunnar árið 2015.

Kvik­myndin Von­ar­stræti sóp­aði síðan til sín kvik­mynda­verð­launum Eddunnar 2015. Alls fékk hún tólf verð­laun, meðal ann­ars sem kvik­mynd árs­ins, fyrir leik­stjórn, hand­rit, kvik­mynda­töku og klipp­ingu. Báðir aðal­leik­ar­arnir í Von­ar­stræti, þau Þor­steinn Bachmann og Hera Hilm­ars­dóttir hlutu Eddu­stytt­una. Edduna fyrir auka­hlut­verk fengu þau Helgi Björns­son og Nanna Kristín Magn­ús­dóttir fyrir hlut­verk sín í kvik­mynd­inni París norð­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár