Kvenkosturinn ógurlegi

Stefán Jón Hafstein veitir umsögn um bók Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur um Heiðu Ásgeirs­dóttur: Heiða- fjall­dala­bónd­inn.

Er Heiða bóndi á Ljót­ar­stöðum mesti kven­kostur sem nú er uppi á Íslandi? Skiptir ekki máli, því hún myndi vænt­an­lega kæra sig koll­ótta um slíka veg­tyllu ef marka má magn­aða kven­lýs­ingu Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur skáld­konu á Heiðu fjall­dala­bónda. Hún er ein­yrki með 500 fjár lengst uppi á heiði austur í Skafta­fells­sýslu, á pall­bíl, traktor, hund, vélsleða, smalar á fjór­hjóli og hlaðin hví­líkum önnum og bar­áttu­málum að þarf víðan afrétt til að hún nái að varpa önd­inni stöku sinnum. Tók við búi laust um tví­tugt og senn að nálg­ast frum mið­aldra. Nátt­úru­vernd­ar­sinni og kunn hug­sjóna­kona, sveit­ar­stjórn­ar­maður fyrir Z-list­ann (hversu zvalt er það?). Dettur inn á þing sem vara­maður fyrir Ara Trausta næst þegar hann skellir sér í Pólferð, massar fær­ustu rún­ings­menn og telur fóstur í ám um land allt. Fyrir utan að hrynja í það stöku sinnum. Slást við vott af þung­lyndi. Og þurfa veru­lega að taka á því svo röddin skjálfi ekki af kvíða þegar hug­sjónir reka hana á mál­þing, sem hún má nátt­úru­lega alls ekk­ert vera að því að sinna, en gerir samt. Rífur jafn­vel kjaft fyrir þing­nefnd (ósofin af kvíða) og hvolfir hálfri hvítvíns­flösku þegar heim kemur til að ná sér niður. Öðru máli gegnir að um hag­yrð­inga­mótin þar sem hún lætur fjúka í kvið­lingum.

Þetta er engin venju­leg kona. Því hér er fátt eitt talið.

Ritgerð Stein­unnar er klassa sjúrna­l­ismi. Kafl­arnir heita eftir árs­tíðum og kalla fram hrynj­and­ina í lífi fjár­bónd­ans og skepn­anna og fólks­ins allt í kring, lífið í sveit­inni lifnar og leikur í ljósi sólar eða skuggum vetr­ar­myrk­urs –svo kemur ösku­fall. Smátt og smátt birt­ist kven­per­sóna sem lætur móðan mása um allt og allt meðan skáld­konan vinnur sitt hljóða skrán­ing­ar­verk; raðar upp sögum, hug­leið­ingum, stöðu­færslum af Fésbók, vísum og húmor af inn­sæi og skiln­ingi á kon­unni sjálfri og hlut­verki sögu­manns sam­tímis. Þaulæfð í svona form­gerð úr skáld­sagna­skrif­unum.

Inn í þessa stóru smá­ver­öld sog­ast les­and­inn.

Erindi Stein­unnar var að skrá­setja bar­áttu fjall­dala­bónd­ans við hina ógn­andi virkj­ana­menn sem vildu leggja jörð­ina undir lón, staura­virki og ruðn­inga til að ná raf­magni. Búlands­virkjun skyldi hún heita. Þeim tekst að sundra vinum og sveit­ungum þar sem ólíkir hags­munir takast á, en hin ein­arða Heiða lætur sig hvergi og hefur í heiðri Sigríði í Bratt­holti sem fór marga suð­ur­ferð­ina til að bjarga Gull­fossi fyrir rúmri öld. Í þess­ari sögu skynjum við ógn­ina sem ein­stak­lingur stendur frammi fyrir gagn­vart gír­ugu kerfi og hve mikil áraun það er að standa á sínu og lifa and­vökunætur, kvíða­köst, vina­missi og fjár­tón; hún er svipt afkomu og frið­helgi sem hún þráir og á rétt á.

„Mín skoðun er sú að ég hafi engan rétt til að selja land eða vatn undan Ljót­ar­stöð­unum og skaða þar með jörð­ina sem ég hef til umráða yfir eina starfsævi um alla fram­tíð. Ég hefði ekki viljað að mamma og pabbi eða amma og afi hefðu selt undan jörð­inni, og keypt vara­lit og nýjan Farmal. Við mann­fólkið erum dauð­leg, landið lifir áfram, það kemur nýtt fólk, nýjar kindur, nýir fuglar og svo fram­vegis, en landið með ám og vötnum, gróðri og auðnum verður áfram, tekur ein­hverjum breyt­ingum í ald­anna rás, en er áfram.“

(bls. 320)

Þetta er alveg nóg efni í litla bók og ástæðan fyrir því að Heiða tók skrá­setn­ingu í mál. En svo ger­ist miklu meira þegar þær stöllur tala saman, að því er virð­ist á enda­lausum bíl­ferðum, síma­fundum, spjall­þráðum eða hvernig þær nú bræða sig saman. Persónan birt­ist í blæ­brigðum þess lífs og lands sem mótar hana, ekki alltaf í rök­réttum orsakar- og afleið­ing­ar­þráðum, því Heiða er eig­in­lega hin full­komna mót­sögn við sjálfa sig.

Hún er kjörkuð, sterk, en samt er hún oft svo veik, and­lega og lík­am­lega; hug­rökk, en væng­brotin inni í sér, kvíðin og lítil í sér - eða lætur vaða af svaka­legum krafti (jafn­vel svo að þarf að halda henni niðri á balli þar sem Suð­ur­orku­mað­ur­inn er að þvæl­ast!). Maður verður nán­ast lík­am­lega örmagna að taka þátt í vinnu­streð­inu sem aldrei lýkur og þakkar hrein­lega fyrir þegar hún loks­ins lætur sér líða í brjóst í Lazyboy með kött­inn malandi og Makk­in­tos­dollu við hönd­ina (seg­ist hafa séð byrjun á ótal sjón­varps­myndun en fáar enda).

Þessi saga kann vel að hafa byrjað sem ann­áll bar­áttu­konu en hún er orðin kven­lýs­ing og sam­fé­lags­mynd í víddum sem maður sér ekki oft svo vel gerða af íslenskum miðlum.

Steinunn leggur sig virki­lega í líma við að birta okkur lífið í sveit­inni, lýst með orðum Heiðu og athöfnum. Þetta er engin fegrun. Þvert á móti. Alveg djöf­uls­ins puð. Heiða vandar um fyrir fólki og skepnum jafnt en stráir um sig gæsku um leið; hrútarnir eru leið­in­legir, haf­ur­inn metfé, ærnar ill­skeyttar, litlu lömbin leika sér svo fag­ur­lega, kiðling­arnir dásemd, hund­ur­inn dýri hann Fífill er afbragð og kett­irnir fá sinn skerf hver eftir karakter. Gengur í öll verk svo mann sundlar og verkjar í lið­ina með henni, bölvuð skólp­þróin að stífl­ast þegar verst á stendur, öll þrifin maður og sápu­skúrið, sýnir sjálfri sér þá virð­ingu að baða sig (nema um sauð­burð­inn) og hefur fasta reglu á hverjum vinnu­degi, svo mjög að mann langar að vita hvað hún borðar í morg­un­mat. Smæstu atriði skipta máli: Kónga­blái lit­ur­inn á fjár­hús­þök­unum, ljósin á milli úti­húsa, týran í myrkr­inu frá næsta bæ.

Það villir um fyrir manni að framan af virð­ist hún frekar ein­föld mann­eskja í ein­földu umhverfi og jafn­vel aðeins bernsk í hinu stóra sam­hengi heims­ins - þótt hún tusk­ist á við hvern sem er í rétt­unum og hafi jafn­vel farið á djam­mið fyrir sunnan. En svo læð­ast inn fleiri þankar og utan­ferðir sem opna gat á lág­skýj­aðan him­inn­inn fyrir austan. Inni­byrgð tog­streita kemur í ljós. Játar að hún gæti jafn­vel hugsað sér að vera bóhem og búa erlendis, eiga heima í öruggu húsi hvernig sem viðrar og hvenær sem Katla gýs; þurfa ekki að bera ábyrgð á 500 lífum, geta keypt krydd­stauk ef vantar, vera „bara þar sem rokkið er“. En hún mun auð­vitað aldrei yfir­gefa Ljót­ar­staði. Því hún er alveg rót­föst í land­inu og sögu þess. Kannski.

Og allt hitt. Fyrir utan að vinna sigra í virkj­ana­málum (vonum að við getum öll sofið rótt út af aflagðri Búlands­virkjun) er hún þessi lands­fræga fóst­urtaln­inga­kona (meðal bænda) og þar erum við að tala um alvöru kaldar hendur, bogið bak og fjall­veg­as­tíma­brak um vetur. Kapps­full rún­ings­kona sem fer á heims­mót (þótt hún búist nú ekki við að verða atvinnu­kepp­andi í þeirri grein fer í hún í læri hjá þeim fremstu í útlöndum) og ryður úr sér nöfnum rún­ings­meist­ara og árang­ur­stöflum á sama hátt og for­fallnir áhuga­menn um golf. Nefnir teg­und­ina af klipp­unum sem hún á. Fer í vélsleða­ferðir með ein­hverjum njólum að vet­ur­lagi um Strandir (eina konan) og svo þessi svaka­lega törn þegar sauð­burð­ur­inn fer í hönd og dagar og nætur og vikur renna saman í einni vakt.

Þegar þar kemur sögu kall­ast þessi bók á Stein­unnar á við aðra sögu hennar sem var líka um vakt­haf­andi konu, Vigdísi sem var ein á for­seta­vakt.

Steinunn skráir þessar ítar­frá­sagnir ef miklu list­fengi fyrir strák sem einu sinni var í sveit og lifir sig inn í þetta allt - þótt nú séu aðrir tímar. Höfundur á miklar þakkir fyrir að stytta sér ekki leið svo maður merki, heldur leyfir öllu að tala, jafn­vel hel­vítis karga­þýf­inu á láns­tún­inu vorið sem kól… Og svo um það að farga skepnum, sorg­ina, draga dautt fé úr fönn, ýldu­fýl­una. Ábyrgð­ina á vel­ferð dýr­anna.

Einstæð? Já. Og tekur útskýrða ákvörðun um að eiga ekki barn.

Þær tala mergj­aða íslensku stöll­urnar. Steinunn, verð­laun­aður stílisti, var­ast skraut og póesí, lætur Heiðu tala sitt mál. Þar er nú ekki flatneskan; orð­gnótt og sam­lík­ingar utan af afrétt og innan úr þess­ari kjaft­foru kjellu sem seg­ist hafa verið alin upp við skammir og ekk­ert væl. Það hæfir að hafa fáar, svart­hvítar myndir af per­són­unni í bók­inni - fyndnar fjökyldu­myndir hefðu drepið gald­ur­inn. En vantar eig­in­lega að hafa list­rænt kort af jörð­inni og námunda við stór­fljót og eld­stöðvar. Maður vinnur bara úr því með nútíma­tækni.

Þegar árs­tíða­hring­ur­inn lok­ast og rit­gerðin fer á enda­punkt er þetta eig­in­lega bara full­komið: Búlands­virkjun komin í vernd­ar­flokk og Heiða í sögu­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár