Össur lækkað um 15 prósent á einu ári

Eitt verð­mætasta félag sem skráð er á markað hér á landi hefur lækkað tölu­vert í kaup­höll­inni að und­an­förnu.

Sölu­vöxt­ur Öss­ur­ar nam ell­efu pró­sentum á þriðja árs­fjór­ungi þessa árs miðað við árið í fyrra. Sal­an nam 129 millj­ón­um Banda­ríkja­dala, eða um 15,6 millj­örðum ís­lenskra króna sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hallar. „Sala á stoð­tækj­um var ein­stak­lega góð og var drif­in áfram af bi­onic vör­um og vör­u­nýj­ung­um,“ er haft eft­ir Jóni Sig­urðs­syni, for­stjóri Öss­ur­ar í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

„Í sept­em­ber fest­um við kaup á Medi Prosthetics, sem fram­leiðir og sel­ur mek­an­ísk stoð­tæki á heims­vísu. Með þess­um kaup­um bjóðum við enn betra vöru­úr­val og styrkj­um stöðu okk­ar frek­ar á stoð­tækja­mark­að­inum. Rekstr­ará­ætl­un árs­ins hef­ur verið upp­færð vegna tíma­bund­inna áhrifa frá ný­leg­um fyr­ir­tækja­kaup­um sem og nei­kvæðum áhrif­um vegna styrk­ingu ís­lensku krón­unn­ar á fram­legð fyr­ir­tæk­is­ins," segir enn fremur.

Hagnaður nam 13 millj­ón­um Banda­ríkja­dala (1,6 millj­örðum ís­lenskra króna) eða tíu pró­sent af sölu.

Mark­aðsvirði Össurar er nú 178 millj­arðar króna, en gengi bréfa félags­ins hefur lækkað um 15 pró­sent á und­an­förnum tólf mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár