Auðlegðarskatturinn var alltaf tímabundinn

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingar um að rík­is­stjórnin hafi afnumið auð­legð­ar­skatt.

Umræða um auð­legð­ar­skatt fór fram á þingi á mánu­dag­inn, þegar Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ræddu um sam­fé­lags­jöfnuð. Helgi spurði Bjarna meðal ann­ars hvers vegna auð­legð­ar­skatt­ur­inn hefði ekki verið fram­lengdur, og Bjarni svar­aði því meðal ann­ars til að fjár­mála­ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar hafi lofað því að skatt­ur­inn yrði afnum­inn, eða lát­inn renna út. Stjórn­völd hafi svo aðeins látið skatt­inn renna sitt skeið.

Þessi umræða varð til­efni Stað­reynda­vakt­ar­innar til að taka málið til umfjöll­unar, án þess þó að verið sé að kanna beint sann­leiks­gildi þeirra ummæla. Hins vegar hefur sú umræða reglu­lega skotið upp koll­inum að núver­andi stjórn­völd hafi sér­stak­lega aflagt auð­legð­ar­skatt­inn, og því var ákveðið að skoða málið út frá því.

Upphaf auðlegðarskatts

Það var Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem lagði fram frum­varp um tekju­öflun rík­is­ins haustið 2009. Þar var lagt til að lagður yrði auð­legð­ar­skattur við álagn­ingu 2010, 2011, 2012 og 2013, vegna eigna fólks í lok áranna 2009, 2010 og 2011. Í fram­sögu­ræðu sinni kom hann inn á ástæður þess að skatt­ur­inn var settur á.

„Á und­an­förnum árum auðg­að­ist til­tölu­lega fámennur hópur fólks mikið á útþenslu fjár­mála­kerf­is­ins sem hrundi síðan með alvar­legum afleið­ingum fyrir almenn­ing. Af þessum ástæðum þykir nú sann­gjarnt að taka upp sér­stakan auð­legð­ar­skatt og nýta tekjur af honum til að verja barna­bóta­kerfið og hækka vaxta­bætur....Augljóst má telja að þeir aðilar sem safnað hafa miklum eignum á und­an­förnum árum og hafa notið þess að skattur á fjár­magnstekjur hefur verið lágur auk ann­arra hag­stæðra skatta­reglna hafa því notið lækk­andi skatt­lagn­ingar á meðan allur almenn­ingur hefur axlað þyngri byrðar. Af þeim sökum þykir ekki óeðli­legt að við þær aðstæður sem nú eru verði skatt­byrði þessa hóps aukin nokkuð frá því sem áður var.“

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, sem Helgi Hjörvar fór fyrir, kom sér­stak­lega fram að um væri að ræða „tíma­bund­inn 1,25% skatt á eignir manna að frá­dregnum skuldum sem eru yfir 90 millj. kr. hjá ein­stak­lingum en 120 millj. kr. hjá sam­skött­un­ar­að­ilum. Lagt er til að skatt­ur­inn verði lagður á við álagn­ingu 2010, 2011 og 2012.“

Tveimur árum síðar, haustið 2011, lagði Stein­grímur svo fram annað frum­varp, um ráð­staf­anir í rík­is­fjár­málum, þar sem lagt var til að auð­legð­ar­skatt­ur­inn yrði fram­lengdur um tvö ár, en í með­förum þings­ins tók málið breyt­ingum og skatt­ur­inn var aðeins fram­lengdur um eitt ár.

Í umræðum um það mál á þingi tók Helgi Hjörvar til máls og leið­rétti Bjarna Bene­dikts­son. „Hátt­virtur þing­maður vék að auð­legð­ar­skatt­inum og kall­aði það svik að það sem hefði verið kynnt sem tíma­bundið væri nú ekki lengur tíma­bundið. Ég verð að leið­rétta hv. þing­mann. Það er að vísu verið að fram­lengja þann skatt um eitt ár, því miður, en hann er engu að síður enn þá tíma­bund­inn.“ Þeir töl­uðu einnig um mögu­leik­ann á því að fólk sem ætti að greiða auð­legð­ar­skatt­inn flytti úr landi, og Helgi sagð­ist skilja áhyggjur „af því ef þetta yrði var­an­legt sem skatt­lagn­ing jafn­mikil og hún er einmitt núna í augna­blik­inu.“

Þegar Oddný Harð­ar­dóttir var orðin fjár­mála­ráð­herra árið 2012 var hún spurð um auð­legð­ar­skatt­inn og sagði „sá skattur er tíma­bund­inn. Fyrst mundi ég skoða þann skatt ásamt lækkun á trygg­inga­gjaldi áður en aðrar skatt­lagn­ingar væru skoð­aðar,“ um það hvort hún vildi lækka skatta.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið seinna árið 2012 sagði hún „Það eru hins vegar ákveðin vanda­mál með auð­legð­ar­skatt­inn. Hann er þó tíma­bund­inn og ég mun leggja áherslu á að end­ur­nýja hann ekki.“

Í milli­tíð­inni sagði Helgi á fundi VÍB: „Auð­legð­ar­skattur er klár­lega neyð­ar­brauð og ekki skatta­fyr­ir­komu­lag sem við viljum hafa við­var­andi. Með honum er leitað til þeirra sem eru efn­að­astir í sam­fé­lagi okkar og þeir fengnir til að leggja sér­stak­lega af mörkum tíma­bundið í erf­iðu árferði. Áætlað er að auð­legð­ar­skatt­ur­inn verði út næsta ár, þó er ekki hægt í okkar erf­ið­leikum að úti­loka að hann verði fram­lengdur eitt­hvað.“

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Ávallt var lögð á það áhersla að auð­legð­ar­skattur væri tíma­bundin ráð­stöfun, og meðal ann­ars voru það rök þegar málið fór fyrir Hæsta­rétt, að skatt­ur­inn væri tíma­bund­inn og því væri ekki talin ástæða til að líta svo á að hann bryti gegn stjórn­ar­skránni. Það er því nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar að það séu fleipur að halda því fram að rík­is­stjórnin hafi afnumið auð­legð­ar­skatt­inn. Hann var ein­fald­lega lát­inn renna sitt skeið og rík­is­stjórnin greip í raun ekki til neinna aðgerða í sam­bandi við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár