Fleiri hafa flutt til Íslands en burt það sem af er ári

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar um að fleiri Íslend­ingar flytji nú til Íslands en frá land­inu.

„Við sjáum það nú í fyrsta skipti í mörg ár, á árinu 2016, að fleiri Íslend­ingar flytj­ast aftur til Íslands en frá land­inu.“ Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í ræðu sinni í eld­hús­dags­um­ræð­unum á Alþingi á mánu­dag. Fyrir viku síðan sagði hann svip­aða hluti á Facebook-síðu sinni, með vísan í ný gögn frá Vinnu­mála­stofnun.

Stað­reynda­vakt Kjarnans ákvað að kanna þetta, ekki síst í ljósi þess að mikil umræða hefur átt sér stað um flutn­inga Íslend­inga til og frá land­inu.

40 fleiri til landsins en frá því

Hagstofa Íslands tekur saman mann­fjölda­tölur fyrir hvern árs­fjórð­ung. Á síð­asta árs­fjórð­ungi, öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs, fluttu 150 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til lands­ins en frá því. Á fyrsta árs­fjórð­ungi fluttu hins vegar 110 fleiri burt en til lands­ins, svo að á fyrri hluta þessa árs fluttu 40 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar til Íslands en fluttu burt.

[adspot]

Munurinn er hins vegar miklu minni en und­an­farin ár. Á sama tíma­bili í fyrra höfðu 490 fleiri Íslend­ingar flutt í burtu frá Íslandi en til Íslands. Árið 2014 voru 190 fleiri Íslend­ingar fluttir burt en til lands­ins, og árið 2013 var staðan þannig um mitt ár að 135 fleiri höfðu til Íslands en í burtu. 2012 voru brott­fluttir 350 fleiri en aðfluttir, 630 árið 2011 og 590 árið 2010.

Ef tekin eru heil ár sést að í fyrra fluttu 1265 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar úr landi en til lands­ins. Árið var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar á þessu hófust, og aðeins fimm sinnum frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­fluttir verið umfram aðflutta, sam­kvæmt gagna­grunni Hag­stof­unnar. Það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára, eða árin 107, 1995, 2009, 2010 og 2011, en árið 2015 skar sig því tölu­vert úr af því að ekki ríkti kreppa hér á landi.

Spár um framhaldið

Í minn­is­blaði Vinnu­mála­stofn­unar, sem Bjarni vísar í, er sett fram spá fyrir árið 2016, líkt og sjá má í færslu Bjarna hér að neðan.

Ekki kemur fram í minn­is­blað­inu hvernig sú spá er gerð eða hvaða tölur liggja þar að baki. Kjarninn hafði sam­band við Vinnu­mála­stofnun til að fá útskýr­ingar á spánni. Í svari Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að tölur um brott­flutta og aðflutta á fyrri helm­ingi árs­ins hafi verið upp­reikn­aðar til árs­loka út frá reynslu und­an­far­inna ára, það er að um það bil 40 pró­sent búferla­flutn­inga Íslend­inga komi fram á fyrri helm­ingi árs­ins og um 60 pró­sent á þeim síð­ari. Það gildi bæði um brott­flutta og aðflutta.

Þannig er því spáð að aðfluttir verði 3.365 þegar árinu lýkur, á meðan brott­fluttir verði 3.229. Það muni því um það bil 136 fleiri Íslend­ingar flytja til lands­ins en frá því.

Vinnu­mála­stofnun tekur skýrt fram að þetta sé spá, og að hún byggi á því að um það bil 40 pró­sent flytji til og frá land­inu á fyrri hluta árs en um það bil 60 pró­sent á seinni hlut­anum.

Und­an­farin sex ár hefur þetta hlut­fall verið á bil­inu 38 pró­sent til tæp­lega 44 pró­sent á fyrri hluta árs hjá aðfluttum, og sömu sögu má segja hjá brott­fluttum. Þá gat verið tals­verður munur á hlut­falli brott­fluttra og aðfluttra innan hvers árs.

Að með­al­tali hefur 41,5% aðfluttra komið til lands­ins á fyrri hluta árs­ins und­an­farin sex ár á meðan 39,8% brott­fluttra hafa farið burt á fyrri hluta árs­ins. Ef upp­reiknað væri miðað við þessar tölur væri spáin öðru­vísi, og myndi sýna örlítið fleiri brott­flutta en aðflutta, eða um 11 manns. Þetta sýnir hversu erfitt er að spá fyrir um flutn­ings­jöfn­uð­inn þegar mun­ur­inn á milli aðfluttra og brott­fluttra er orð­inn svona lít­ill.

Hagstofa Íslands hefur spáð því í mann­fjölda­spá sinni fyrir árin 2016 til 2065 að „ís­lenskir rík­is­borg­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“ Því er spáð að að með­al­tali verði um 850 íslenskir rík­is­borg­arar brott­fluttir en aðfluttir á hverju ári.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Full­yrð­ing Bjarna um það að fleiri Íslend­ingar séu að flytj­ast aftur til Íslands en frá land­inu á við nokkur rök að styðj­ast, ef litið er á stöð­una miðað við töl­urnar sem fyrir liggja fyrir árið og stuðst er við spá Vinnu­mála­stofn­unar, líkt og hann gerir. Hins vegar er mun­ur­inn á þeim sem flytja burt og heim svo lít­ill, jafn­vel miðað við spá Vinnu­mála­stofn­unar, að það getur auð­veld­lega brugðið til beggja vona og nið­ur­staðan eftir árið orðið sú að fleiri flytji burt en heim.

Það er nið­ur­staða Stað­reynda­vaktar Kjarnans að í þessu máli sé stað­hæf­ing Bjarna á réttri leið.

Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­­­reynda­vakt Kjarn­ans? Sendu hana á sta­d­­reynda­vakt­in@kjarn­inn.­­­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár