Ásmundur gagnrýnir kostnað við hælisleitendur

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir að fjár­fram­lög til Útlend­inga­stofn­unar hafi auk­ist vegna fjölg­unar hæl­is­leit­enda hér á landi og fjölgun hæl­is­leit­enda. Hann sagði á Alþingi í morgun að fyrir sömu fjár­hæðir og fara í að standa straum af kostn­aði við hæl­is­leit­endur væri hægt að halda úti skurð­stofu á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyjum.

„Hæl­is­leit­endur er annar flokkur flótta­manna sem stöðugt sækir til lands­ins og er að mestu sam­an­settur af ungum karl­mönnum sem koma hingað vega­bréfa­lausir. Í nýsam­þykktum lögum um útlend­inga eru skila­boð Alþingis skýr til þessa hóps og eru að skila sér,“ sagði Ásmundur og tal­aði svo um mikla fjölgun hæl­is­leit­enda hér á landi.

Hann sagði dval­ar­gjöld hæl­is­leit­enda sem ekki fái úrlausn sinna mála vera 234 þús­und krónur á mán­uði á meðan lág­marks­elli­líf­eyrir væri 212 þús­und krónur. Þegar hann sagði þetta hróp­aði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, „skammastu þín“ á Ásmund.

Ásmundur sagði 1200 millj­ónir sam­tals fara til Útlend­inga­stofn­unar vegna hæl­is­leit­enda. „Það sama og myndi kosta að reka skurð­stofu á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyjum en þar er enga skurð­stofu eða fæð­ing­ar­hjálp að hafa,“ sagði Ásmundur. Hann gagn­rýndi að lokum útlend­inga­lögin nýju og sagði Íslend­inga ekki læra af reynslu ann­arra ríkja.

Bæði Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri-grænna, og Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, komu í ræðu­stól á eftir Ásmundi og gagn­rýndu hann harð­lega. „Maður spyr sig hvaða til­gangi á svona mál­flutn­ingur að þjóna?“ spurði Stein­grímur. „Er þetta nýi tals­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessum mála­flokki?“

Birgitta sagði engan mál­flutn­ing eins ömur­legan og þann að stilla saman tveimur hópum sam­fé­lags­ins gegn hvorum öðrum. „Hans mál­flutn­ingur er nákvæm­lega eins og mál­flutn­ingur þeirra sem vildu ekki taka á móti gyð­ingum í neyð,“ sagði Birgitta og bætti við að henni væri „svo stór­kost­lega mis­boðið“ vegna mál­flutn­ings Ásmundar. Hún spurði hvort aðrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru sam­mála þessum mál­flutn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár